Morgunblaðið - 17.11.2012, Side 29
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is
Jólagardínur í miklu úrvali
Falleg og mjúk handklæði
í jólapakkann
Úrval - gæði - þjónusta
unum getur verið eftir þrjú ár
þannig að fólk geti komið húsnæð-
inu upp og fjármagnað allan fram-
kvæmdakostnað í einu. Lóðirnar
voru einnig markaðssettar m.a. með
auglýsingum í sjónvarpi.
„Við höfum úthlutað mörgum lóð-
um á undanförnum mánuðum. Það
lætur nærri að við höfum selt lóðir
fyrir um tvo milljarða á þessu ári,“
segir Ármann.
Íbúum í Kópavogi hefur fjölgað
öll árin eftir hrun og horfur á að
fjölgunin haldi áfram, að sögn Ár-
manns. Hann segir að það megi
ekki gleymast að þörf sé fyrir um
1.500 íbúðir á ári á höfuðborgar-
svæðinu miðað við eðlilega fjölgun.
Spáð er allt að 1,8% íbúafjölgun í
Kópavogi á þessu ári og svipuðu á
næsta ári. Það er meira en náttúru-
leg fjölgun sem er rúmlega 1% á
ári.
Nýju íbúarnir eru á breiðu
aldursbili. Fyrr í þessari viku heim-
ilaði bæjarráð Kópavogs hjúkr-
unarheimilinu Sunnuhlíð að selja
verktakafyrirtækinu JÁ-verk þrjár
lóðir sem ætlaðar eru fyrir húsnæði
fyrir eldri borgara. Einnig er að
rísa fjölbýli fyrir eldri borgara á
Kópavogstúni. Ármann segir að fólk
sem er búið að koma upp börnum
sæki mikið á þetta svæði og eins í
Lund.
Nokkuð var um hálfköruð fjöl-
býlishús í nýjustu hverfum Kópa-
vogs eftir efnahagshrunið. Ármann
segir að framkvæmdum hafi verið
haldið áfram við þessi hús og búið
sé að flytja inn í flestar íbúðirnar, ef
frá eru taldar íbúðir sem Íbúðalána-
sjóður sat uppi með. Þau hús hafa
verið klædd og gengið frá þeim að
utan.
„Það var flutt mjög hratt inn í
þessi hús og hefur fjölgunin í bæn-
um verið á bilinu 1,3-1,4% á árunum
eftir hrun,“ segir Ármann. Þessi já-
kvæðu teikn í framkvæmdum gefi
Kópavogsbúum tilefni til bjartsýni.
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Framkvæmdir í Kópavogi
Lundur
Lokið er byggingu Lundar 1 og 3 með 76 íbúðum.Verið er að flytja
inn í Lund 86-92 en þar eru 52 íbúðir.Framkvæmdir eru hafnar við
Lund 2, 4 og 6 með 60 íbúðum.Mikill hugur er í BYGG að halda
áframmeð Lund 17-23 með 52 íbúðum. Í Lundi 25 verða 11 íbúðir.
Þá eru ótalin rað- og parhús. Vinna er að hefjast við tvö hús með
alls fimm íbúðum. Næsta röð kemur fljótlega til samþykktar.
Kópavogstún
Kópavogsbraut 1D (gamla starfsmannahúsið) endur-
nýjað með 30 íbúðum. Dverghamrar byggja 18 íbúða
hús við Kópavogsgerði 2-4. Nýverið var úthlutað lóðum
fyrir þrjú fjölbýlishús við Kópavogstún 10- 12 alls 28
íbúðir; Kópavogsgerði 1-5 með 18 íbúðum og
Kópavogsgerði 5-7 alls 18 íbúðir.JÁ-verk hefur fengið
byggingarétt þriggja fjölbýlishúsa við Sunnuhlíð, alls 70
íbúðir.
Þorrasalir
Byggingu Þorrasala 1-3 er lokið,
samtals 32 íbúðir. Framkvæmdir við
Þorrasali 5-7 eru hafnar. Samtals 35
íbúðir. Þorrasölum 9-11 (35 íbúðir) og
13-15 (38 íbúðir) hefur verið úthlutað
og framkvæmdir að hefjast.
Þorrasölum 17 hefur verið úthlutað og
þar er óskað eftir að verði 26 íbúðir.
Austurkór (Rjúpnahæð)
Austurkór 104, framkvæmdir hafnar við sex
íbúðir. Byggingarnefndarteikningar sam-
þykktar fyrir Austurkór 88, 90, 92, 94, 96, 98,
100, 102, samtals 48 íbúðir. Í Austurkór 63-75
og 77 er verið breyta skipulagi og fjölga úr 20 í
29 íbúðir. Mjög víða er verið að byggja sérbýli á
svæðinu.
Valla- og Vindakór
Byggingarleyfi hefur verið samþykkt fyrir 52 íbúðir í Vallakór 2.
Alls eru 54 íbúðir tilbúnar til innréttinga í Vindakór 4-6-8 sem
er í eigu Íbúðarlánasjóðs.
Engjaþing
Lóðum 1, 3, og 5 hefur verið
úthlutað, samtals 24 íbúðir.
Lóðaúthlutanir
2011: 48 lóðir með 118 íbúðum.
2012: (til 15. nóvember sl.): 78 lóðir með 386 íbúðum. Þrjár lóðir undir hesthús.
FRÉTTIR 29Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012