Morgunblaðið - 17.11.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012
Hjálparhellur Helga Margrét og Karen Ýr Jóelsdóttir (t.h.) á æfingu.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Jólaævintýrið heitir jólasöng-leikur sem Borgarbörn,barna- og unglingaleikhússetur upp nú í desember og
sýnir í Iðnó. Sýningin fjallar um
stúlkur á munaðarleysingjahæli
sem áskotnast jólaglerkúla sem er
þeim töfrum gædd, að við hvern
hristing birtast ýmsar þekktar æv-
intýrapersónur úr kúlunni. Þetta er
að vissu leyti spennandi en verra
er þó að þær persónur sem birtast
eru ekki allar góðar frekar en
forstöðukona munaðarleysingjahæl-
isins.
Jólatextar við Bieber
Hópurinn Borgarbörn varð til
út frá söng- og leiklistarskólanum
Sönglist en þátttakendur hafa allir
sótt þar námskeið. Eru leikararnir
á aldrinum 10-18 ára og er þetta í
sjöunda sinn sem Borgarbörn setja
upp jólasýningu og í ár leika þau
ekki eingöngu heldur syngja líka
og dansa.
„Oftast hefur leikritið verið
frumsamið og það inniheldur alltaf
jólaboðskap og skemmtun. Það á
að höfða einna mest til barna en
hentar í raun öllum aldurshópum.
Leikritið er fullt af boðskap og
skemmtun en við semjum líka jóla-
texta við þekkt lög, t.d. með Justin
Bieber. Búningana útvegum við
sjálf og í raun er engin leikmynd
heldur eru leikararnir í litríkum
búningum og koma inn á sviðið
með ýmsa leikmuni,“ segir Karen
Jólatöfrar
Borgarbarna
Í jólasöngleik Borgarbarna dúkka ýmsar þekktar
ævintýrapersónur upp úr töfrum gæddri jólaglerkúlu.
Leikarahópurinn er frá 10-18 ára og er þetta sjöunda
sýningin sem Borgarbörn setja upp.
Dansandi Leikarar eru á aldr-
inum 10-18 ára og auk þess að
leika syngja þeir líka og dansa í
litríkum fatnaði líkt og hér sést.
Jón Karlsson er einn af fáum kaup-
mönnum á horninu sem eftir eru í
vesturbænum. Jón fagnar 40 ára af-
mæli verslunar sinnar Úlfarsfells um
helgina. Jón hefur staðið vaktina á
bak við búðarborðið í 22 ár og segir
mannlega þáttinn skemmtilegastan
við starfið.
Rótgróin hverfisverslun
Jón og eiginkona hans Hafdís
Ólafsdóttir höfðu um árabil starfað
saman við hótelmennsku úti á landi
þegar þau tóku við Úlfarsfelli sem þá
var þegar rótgróin verslun.
„Okkur langaði að breyta til og
sáum þessa verslun auglýsta til sölu.
Ég hef alltaf haft áhuga á bókum, las
mikið þegar ég var yngri og er bóka-
safnari þannig að mér leist vel á
þetta og við slógum til. Það höfðu
verið tveir eigendur að versluninni
áður og var hún þá blönduð hverf-
isverslun. Við Hafdís störfuðum hér
saman til að byrja með en nú er hún
komin aftur í hótelreksturinn,“ segir
Jón. Hann segir reksturinn hafa
gengið bærilega mest allan tímann
en þó hafi nokkuð tekið að hallast
eftir hrunið. Þá hefur hlutverk bóka-
búðarinnar breyst mikið og hefur Jón
fylgt eftir aukinni tækni og fengið til
sín menn til að vinna við stafræna
framköllum og photoshop-vinnslu
eftir því sem þarf.
Upplestur, kökur og kaffi
Afmælinu verður fagnað í dag,
laugardag 17. nóvember, með upp-
lestri úr nýjum bókum auk þess sem
tertur og kaffi verða á boðstólum.
Fjórir þekktir rithöfundar lesa úr
verkum sínum, þau Guðrún Helga-
dóttir, Gerður Kristný, Stefán Máni
og Þórarinn Eldjárn. Upplesturinn
verður frá 14:30-16:30 en opið er frá
11-17. Þá verða afmælistilboð einnig
í tilefni dagsins.
„Skemmtilegasti þátturinn við
starfið er að þekkja marga og hér
koma margir sem hafa komið lengi og
maður lendir á spjalli við,“ segir Jón.
Á hinn bóginn hefur umhverfi
smærri bóksala breyst mikið í gegn-
um árin og eru litlar og sætar bóka-
búðir, líkt og þær sem við sjáum
gjarnan í kvikmyndum, við það að
deyja út hérlendis. Fáa vantar frí-
merki, bækur eru seldar mun víðar en
áður og verulega hefur dregið úr
framköllun.
„Það var þónokkuð af svona búð-
um á höfuðborgarsvæðinu og úti á
landi en nú sýnist mér ég við að
verða seinasti móhíkaninn í slíkum
rekstri. Það er skemmtilegt fyrir
kúnnana að koma inn í litlar búðir líkt
og við sjáum gjarnan í kvikmyndum
og fólk segir við mig að ég megi ekki
hætta og loka en það dugar mér ekki
til að lifa af því. Þess vegna er mik-
ilvægt að fólk hugi að því að styðja
við kaupmanninn á horninu eigi slík-
ur verslunarrekstur að lifa af,“ segir
Jón.
Bóksalinn á horninu
Ljósmynd/Frikki
Kaupmaður Jón selur bækur, leikföng, ritföng og fleiri vörur í verslun sinni.
Rótgróin versl-
un í vestur-
bænum fagnar
40 ára afmæli
Nú fer að styttast í aðventuna og
margir vilja hafa tímann fyrir sér og
dúlla sér og dútla við köku- og kon-
fektgerð áður en aðventan skellur á.
Enda er oft nóg við að vera í desem-
bermánuði og því gott að vera búinn
að undirbúa sig svolítið fyrirfram.
Inni á Facebook-síðu Odense marsíp-
an er að finna margar girnilega upp-
skriftir að konfekti. Marsípan er und-
irstaðan í flestum molunum en á
síðunni má finna uppskrift að klass-
ískum kókostoppum og marsípan-
stöngum en líka óvenjulegri konfekt-
mola eins og t.d. marsípankonfekt
með skógarberjum og engiferhnúta.
Það er bæði skemmtilegt og gott að
gera konfekt og er konfektgerðin
nokkuð sem öll fjölskyldan getur gert
saman. Eigum notalega sam-
verustund í skammdeginu og njótum
þess að búa til eitthvað gott.
Vefsíðan www.facebook.com/odensemarsipan
Morgunblaðið/Ómar
Girnilegt Konfektgerð er skemmtileg dægradvöl fyrir alla fjölskylduna.
Marsípan með ýmsu góðgæti
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.