Morgunblaðið - 17.11.2012, Side 28
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Fjör er í byggingaframkvæmdum í
Kópavogi þessa dagana og ástandið
gjörbreytt frá tímabili kyrrstöðu
eftir efnahags-
kollsteypuna
haustið 2008.
Víða er verið að
slá upp, steypa
og gera lóðir til-
búnar í bænum.
En hvað skýrir
þetta fram-
kvæmdafjör?
„Við höfum
alltaf sagt að
Kópavogur sé
einstaklega vel staðsettur, á miðju
höfuðborgarsvæðisins. Fólk er farið
að meta það mikils,“ segir Ármann
Kr. Ólafsson bæjarstjóri. „Það er
uppsöfnuð þörf fyrir húsnæði og
þjónustustigið er hátt hjá okkur.
Við erum með tilbúnar lóðir sem
tengjast beint við innviði bæjarins,
skóla, leikskóla, félagsmiðstöðvar
og íþróttamannvirki. Þá fundum við
greinilegan kipp þegar nýr meiri-
hluti tók við, enda boðaði hann
aukna áherslu á uppbyggingu og
framsækni bæjarfélagsins.“
Ármann segir þessa þætti og
fleiri gefa Kópavogi forskot í sam-
keppninni milli sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu. Hann segir fólk
sækja í að koma börnum sínum í
skóla bæjarins og kannanir sýni
gott ástand á meðal ungmenna í
bænum þegar horft er til vímu-
efnaneyslu og fleiri þátta. Íþrótta-
félögin í bænum hafi einnig staðið
sig einstaklega vel. Bæjaryfirvöld
gripu einnig til aðgerða til þess að
örva framkvæmdir í bænum.
„Við breyttum greiðsluskilmálum
og liðkuðum fyrir lóðakaupum,“
segir Ármann. Skilmálum var
breytt þannig að fólk gæti verið
með lægra byggingarmagn á lóð-
unum. Við það lækkuðu bæði gjöld
og byggingarkostnaður. Lán bæjar-
ins vegna lóðasölu bera ekki vexti í
sex mánuði eftir lóðakaup til að gefa
kaupendum svigrúm til að ganga
frá teikningum og öðrum undirbún-
ingi. Fyrsta afborgun af lóðakaup-
Morgunblaðið/Golli
Lundur Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Lundi og hugur í mönnum að halda áfram með Lund 17-23 með 52 íbúðum. Búið er að byggja Lund 1 og 3 með samtals 76 íbúðum sem flutt er inn í.
Verið er að flytja inn í Lund 86-92 þar sem eru 52 íbúðir og framkvæmdir hafnar við Lund 2, 4 og 6 með samtals 60 íbúðum. Í Lundi 25 verða ellefu íbúðir. Þá eru ótalin rað- og parhús á svæðinu.
Framkvæmdafjör í Kópavogi
Íbúðarhús af öllum stærðum og gerðum eru í byggingu í Kópavogi Bærinn hefur selt lóðir fyrir
um tvo milljarða á þessu ári Búið er að úthluta 78 lóðum á þessu ári fyrir hús með 386 íbúðum
Morgunblaðið/Golli
Þorrasalir Íbúar eru fluttir inn í nýtt 32 íbúða fjölbýlishús að
Þorrasölum 1-3. Framkvæmdir eru hafnar við Þorrasali 5-7.
Morgunblaðið/Golli
Rjúpnahæð Nokkur hús með sérbýli eru risin á Rjúpnahæð og
framkvæmdir við fleiri slík að hefjast. Þaðan er mjög víðsýnt.
Morgunblaðið/Golli
Undirbúningur Jarðvinnuvélar eru víða í gangi við að undir-
búa lóðir fyrir byggingaframkvæmdir í Kópavogi.
Ármann Kr.
Ólafsson.
Morgunblaðið/Golli
Kópavogstún Miklar framkvæmdir eru í hjarta Kópavogs. Verið er að endurbyggja hús með 30 íbúðum, 18 íbúða
fjölbýlishús er í byggingu og búið er að úthluta lóðum fyrir þrjú fjölbýlishús að auki á Kópavogstúni.
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012