Morgunblaðið - 17.11.2012, Síða 32
32 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012
Gylfaflöt 16-18 · 112 Reykjavik · Sími 553 5200 · solo.is
Ásgeir Einarsson
hönnuður
Sindrastólsins
(1927 – 2001)
Viðskiptavinir geta valið þá gæru og
litaafbrigði sem þeir vilja á sinn stól
sem gerir hvern stól einstakan.
Stóllinn er alfarið framleiddur á Íslandi.
Söluaðilar: Sólóhúsgögn og
G.Á. Húsgögn
Stóll
162.000 kr.
Skemill
48.000 kr.
Sindrastóllinn
50 ára afmælisútgáfa
(1962 – 2012)
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Arabíska vorið varð til þess að staða
Hamas-samtakanna á Gaza-svæðinu
styrktist mjög og einangrun þeirra
rofnaði. Samtökin höfðu einkum reitt
sig á stuðning klerkastjórnarinnar í
Íran, einræðisstjórnarinnar í Sýr-
landi og Hizbollah-samtaka sjíta í
Líbanon en með arabíska vorinu
eignuðust þau öfluga bandamenn í
ríkjum þar sem súnní-múslímar eru í
meirihluta, einkum í Egyptalandi.
Hamas-samtökin láta nú reyna á það
hversu langt þessir nýju bandamenn
eru tilbúnir til að ganga í stuðningi
sínum við þau, að mati fréttaskýr-
enda.
Auk Egyptalands njóta Hamas-
samtökin nú stuðnings stjórnvalda í
löndum á borð við Tyrkland og
furstadæmið Katar. Furstinn í Katar
fór á Gaza-svæðið í október og varð
þar með fyrsti þjóðhöfðinginn til að
koma þangað í heimsókn frá því að
Hamas-samtökin komust þar til
valda árið 2007.
Forseti Egyptalands, Mohamed
Morsi, hefur gagnrýnt loftárásir Ísr-
aelshers á Gaza harðlega og forsætis-
ráðherra Egypta fór þangað í gær til
að sýna samstöðu með Hamas--
mönnum og reyna að koma á vopna-
hléi. Hamas á rætur að rekja til
Bræðralags múslíma, samtaka
egypska forsetans.
„Átökin sýna hversu mikið þessi
heimshluti hefur breyst frá því að
uppreisnir araba hófust,“ hefur The
New York Times eftir Nathan Thrall,
sérfræðingi hugveitunnar Inter-
national Crisis Group. „Nú þegar
Gaza verður fyrir árásum koma há-
værustu raddirnar ekki frá and-
spyrnuöxlinum svokallaða – Íran,
Sýrlandi og Hizbollah – heldur frá
bandamönnum Bandaríkjanna á
borð við Egypta og Katara.“
„Nýi óvissuþátturinn er að
Egyptaland er nú hluti af blöndunni,“
hefur The New York Times eftir
David Makovsky, öðrum sérfræðingi
í málefnum Mið-Austurlanda. Hann
telur að leiðtogar Hamas vilji senda
Ísraelum þau skilaboð að ef þeir
gangi of hart fram gegn samtökunum
verði það til þess að samskipti Ísraels
og Egyptalands versni.
Siglir milli skers og báru
Hassan Nafaa, stjórnmálafræðing-
ur við Kaíró-háskóla, telur að Hamas
vilji láta reyna á það hversu djúpt
stuðningur nýju ráðamannanna í
Egyptalandi risti og loftárásir Ísr-
aela setji Morsi forseta í vanda.
„Hann þarf að bregðast hart við en
veit aftur á móti að átökin mega ekki
magnast núna. Viðbrögð hans verða
kröftug en ákveðin af varfærni,“ hef-
ur fréttavefur breska ríkisútvarpsins
eftir Nafaa.
Einræðisstjórn Hosnis Mubaraks,
fyrrverandi forseta Egyptalands, var
á meðal mikilvægustu bandamanna
Bandaríkjanna. Morsi bjó um tíma í
Bandaríkjunum og fréttaskýrandi
BBC segir að forsetinn telji mikil-
vægt að halda tengslunum við landið.
Morsi þurfi að sigla milli skers og
báru, sýna stuðning við Hamas án
þess að stofna tengslunum við
Bandaríkin í hættu.
Fréttaskýrendur telja að víga-
menn í öðrum palestínskum hreyf-
ingum hafi sótt í sig veðrið á Gaza-
svæðinu, m.a. vegna lögleysunnar
sem hefur verið á Sínaískaga eftir fall
stjórnar Mubaraks. Að sögn The
New York Times hafa Hamas-menn
reynt að hafa hemil á hreyfingunum
síðustu mánuði.
Palestínsku hreyfingarnar hafa þó
gert flugskeytaárásir á Ísrael síðustu
daga en þarlend stjórnvöld segja að
Hamas-samtökin hafi einnig staðið
fyrir mörgum árásanna. Stjórn Ísr-
aels segir að Hamas beri ábyrgð á
öllum árásunum á landið, þar sem
samtökin geti stöðvað þær.
„Lögðu gildru fyrir Hamas“
Dagblöð í Ísrael segja að her
landsins hafi komið leiðtogum Ham-
as í opna skjöldu á miðvikudag þegar
yfirmaður hernaðararms samtak-
anna, Ahmed al-Jabari, beið bana í
loftárás á bíl hans í Gazaborg. Ísr-
aelskir ráðherrar höfðu lýst yfir því
að þeir teldu að tilraunir Egypta til
að koma á vopnahléi hefðu borið
árangur og Palestínumenn myndu
hætta flugskeytaárásunum á Ísrael.
„Svo virðist sem Jabari hafi haldið að
Ísraelum væri alvara með vopna-
hléinu og ákveðið að fara út,“ hefur
fréttaveitan AFP eftir Abu Saada,
prófessor í stjórnmálafræði við há-
skóla á Gaza. „Ísraelar lögðu gildru
fyrir Hamas þegar þeir gáfu til
kynna að þeir myndu virða vopna-
hléið.“
Láta reyna á stuðning Egypta
AFP
Eyðilegging Palestínumaður virðir fyrir sér rústir byggingar innanríkisráðuneytis stjórnar Hamas-samtakanna í
Gazaborg eftir eina af loftárásum Ísraelshers. Yfir 20 Palestínumenn hafa beðið bana í árásunum, m.a. fimm börn.
Staða Hamas-samtakanna hefur styrkst eftir arabíska vorið Nýr forseti Egypta reynir að verja
Hamas-menn á Gaza-svæðinu án þess að stofna tengslum Egyptalands við Bandaríkin í hættu
Árásirnar fordæmdar
» Mohamed Morsi, forseti
Egyptalands, lýsti loftárásum
Ísraelshers á Gaza sem „ósvíf-
inni árás gegn mannkyni“ og
skoraði á leiðtoga Vesturlanda
að stöðva hernaðinn.
» Forsætisráðherra Egypta-
lands, Hisham Qandil, fór í
nokkurra klukkustunda heim-
sókn til Gaza í gær til að sýna
samstöðu með Gazabúum og
Hamas-samtökunum. Stjórn
hans hefur beitt sér fyrir
vopnahléi.
Palestínumenn hafa skotið hundruðum flugskeyta á Ísrael frá Gaza-
svæðinu og Ísraelsher hefur hert loftárásir sínar á Gaza.
Ekkert lát á blóðsúthellingunum
Ashdod
Netivot
Jabaliya
Beit Lahiya
Gan Yavne
Kiryat Gat
Beersheva
Tel Avív
Kiryat Malachi
Ashkelon
EG
YP
TA
LA
N
D
JÓ
RD
A
N
ÍA
ÍSRAEL
10 km
Khan Yunis
GAZABORG
GAZA-SVÆÐIÐ
Sderot
Rafah
MIÐJARÐARHAF
Flugskeytaárásir
Palestínumanna
Loftárásir
ÁrásirPalestínumenn
á Gaza skutu
flugskeyti að
Tel Avív í Ísrael
í gær, annan
daginn í röð.
Bæði flug-
skeytin lentu í
sjónum, en að
sögn frétta-
skýrenda BBC
er þetta í fyrsta skipti sem Pal-
estínumenn á Gaza beita svo öfl-
ugum flugskeytum gegn
Ísraelum. Flugskeyti var einnig
skotið á hús í byggð gyðinga ná-
lægt Jerúsalem en fregnir
hermdu að ekki hefði orðið
manntjón í árásinni.
Her Ísraels kvaddi í gær út
16.000 liðsmenn í varaliði hans
eftir að stjórnin heimilaði að allt
að 30.000 varaliðsmenn yrðu
kallaðir út.
Ríkisstjórn Ísraels áréttaði í
gær að til greina kæmi að beita
landhernaði til að stöðva flug-
skeytaárásir Palestínumanna.
Fréttaveitan AFP segir að herinn
hafi sent skriðdreka að landa-
mærunum að Gaza.
Kalla varalið út
VIÐBÚNAÐUR Í ÍSRAEL
Ísraelskir
brynvagnar.