Morgunblaðið - 17.11.2012, Síða 42
42 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012
Hreppsnefnd Súða-
víkurhrepps hafnaði
árið 2004 viðræðum
um sameiningu sveit-
arfélaga á norðan-
verðum Vestfjörðum.
Í bókun frá fundi
hreppsnefndarinnar
frá 2. apríl segir m.a.:
„Með vísan til íbúa-
þings Súðavík-
urhrepps er haldið
var 14. mars sl. þar sem um 30%
íbúa mættu og tóku þátt höfnuðu
íbúar umræðu um mögulega sam-
einingu Súðavíkurhrepps við að-
liggjandi sveitarfélög. Ástæður
þess eru margþættar, m.a. er
sveitarfélagið fjárhagslega sterkt
og hefur góða burði til að takast á
við krefjandi verkefni þess.“
Bókunin var samþykkt sam-
hljóða.
Þetta er rifjað hér upp með það
í huga að Súðavíkurhreppur fékk
á dögunum 10 milljóna króna
styrk úr ríkissjóði til að standa
straum af þeim kostnaði sem
hlaust af gróðureldunum í Laug-
ardal í Ísafjarðardjúpi í lok sl.
sumars.
Hreppsnefnd Súðavíkurhrepps
hefur gefið það út að kostnaðurinn
sé í heild rúmar 20 milljónir sem
samsvarar um fjórðungi útsvars-
tekna hreppsins á ársgrundvelli.
Auðvitað gleðjumst við þegar
samfélagshjálpin er annars vegar,
en málið hefur fleiri hliðar.
Hreppsnefnd Súðavíkurhrepps
valdi það að sameinast ekki stærri
heild árið 2004.
Það dugar ekki þegar rekstur
sveitarfélags er annars vegar að
taka svona ákvörðun á gömlu
hugsuninni „það reddast“.
E.t.v. hafa aðilar séð að ekki
gengur þannig hugafar því aftur
var upp á teningnum fyrir vestan
árið 2009 að kanna sameining-
armál.
Hundraðdaganefnd, skipuð full-
trúum sveitarstjórna sveitarfélaga
á norðanverðum Vestfjörðum, Bol-
ungarvíkurkaupstaðar, Ísafjarð-
arbæjar og Súðavík-
urhrepps, fólu
ráðgjafarfyrirtækinu
Melland Partners að
vinna að skoðun á
kostum þess og göll-
um að sameina sveit-
arfélögin í eitt.
Skýrslan kom út
árið 2010. Þar segir
m.a. í málaflokknum
„Brunamál og bruna-
varnir“:
„Málaflokknum er
vel sinnt og hann í
heild sinni í góðu lagi bæði í þétt-
býli og dreifbýli.“
Í sömu skýrslu segir: „Slökkvi-
liðsstjóri er í 10% starfi og sinnir
einnig eldvarnaeftirliti og fræðslu.
Einn slökkviliðsbíll. Ráðum illa við
stóra bruna eða mengunarslys.
Auknar kröfur sem öllum slökkvi-
liðum er gert að hlíta. Aukin sam-
vinna um málaflokkinn.“
Með það í huga sem hér er sett
fram vaknar sú spurning hvort
ósanngjarnt hafi verið að styrkja
Súðavíkurhrepp vegna gróðureld-
anna í Laugardal sem slökkviliðið
þeirra réð ekki nægjanlega vel
við.
Hvað með Hringrásarbrunann í
Reykjavík sem sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu í sameig-
inlegu slökkviliði urðu að greiða
án ríkishjálpar?
Áleitin spurning kemur upp,
Súðvíkingar vilja ekki vera með í
stærri heild og ættu því að axla
ábyrgð sem því fylgir að vera
sveitarfélag með öllum skyldum
þess.
Öll málefni hafa fleiri en eina
hlið.
Þetta er framsetning máls sem
einnig hefur fleiri en eina hlið.
Súðavíkurhreppur, sem og mörg
önnur sveitarfélög, hefur ekki
burði til að fást við stóráföll sem
fylgja miklum eldsvoðum. Óhætt
er að setja fram að ekkert sveitar-
félag í landinu hefur bolmagn til
að standa straum af stóru áfalli.
Dæmin sanna að við Íslendingar
stöndum saman þegar gera þarf
upp stórt áfall, við eru góð í þess-
um efnum.
Varðandi gróður- og skógarelda
gera allir aðilar sem koma að mál-
inu sér ljóst að hefja þarf heild-
stæða vinnu sem skilar af sér
áætlunargerð um forvarnastarf
vegna gróðurelda og eftirvinnu ef
stóráfall verður.
Heilmikil vinna hefur farið fram
í landinu varðandi umræðu um
forvarnir. Félag slökkviliðsstjóra
(FSÍ) hefur skoðað málið frá ýms-
um hliðum og skógarbændur í
landinu hafa rætt þessi mál á
ýmsum þingum. Mannvirkj-
astofnun hefur tekið málið upp og
nú á dögunum kom fram að þing-
menn ætla að leggja fram ályktun
um málefnið.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um málið samfara þeirri miklu
breytingu sem orðið hefur á gróð-
urfari hér á landi.
Nú er komið að því að sameina
þessa umræðu í einn farveg þar
sem allir aðilar koma saman og
byggja á þeim grunni sem til er
fyrir.
Þessi mál verða m.a. rædd á
málþingi sem forystumenn Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga efna
til á næstunni. Stjórn sambands-
ins, með formann sinn í far-
arbroddi, samþykkti á fundi sínum
7. sept. sl. að standa að þinginu í
samvinnu við þá aðila sem láta sig
málið varða. Aðalumræðuefnið
verður geta samfélagsins, sveitar-
félaga og ríkis til að takast á við
stórbruna af völdum gróður- og
skógarelda. Er átt við getu þeirra
á öllum sviðum málaflokksins,
þ.m.t. kostnaðarhliðin eftir áfall.
Vonandi verður niðurstaða mál-
þingsins upphaf að öflugri vinnu
sem nýtast mun öllum aðilum við
uppbyggingu landsins þar sem til-
lit er tekið til þess mikla vágests
sem eldurinn er.
„Það reddast“ –
Gróður- og skógareldar
Eftir Kristján
Einarsson » Óhætt er að setja
fram að ekkert
sveitarfélag í landinu
hefur bolmagn til að
standa straum af stóru
áfalli.
Kristján Einarsson
Höfundur er slökkviliðsstjóri Bruna-
varna Árnessýslu og stjórnarmaður í
félagi slökkviliðsstjóra.
ÓDÝRU BÍLALEIGUBÍLARNIR
VORU AÐ KOMA!
Vertu fyrstur, fáðu þann besta!
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | hofdahollin@hofdahollin.is
Eigum allskonar bíla,
langar þig í einn?
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 580 8900 | bilalind.is
Ertu með kaupanda?
Skjalafrágangur frá 14.990 kr.
Löggildir bílasalar tryggja öryggi beggja aðila
Fylgstu með okkur á facebook
Sölulaun
frá 39.900 kr.
Kristján Davíðsson
Óskum eftir verkum
Kristjáns Davíðssonar í sölu
fyrir viðskiptavini okkar.
Nánari upplýsingar
gefur Guðmundur Jónsson
í síma 8632121 eða
gudmundur@listamenn.is.
Listamenn
innrömmun og gallerí
Skúlagötu 34 sími 5611995
Seth Godin
Invisible
or Remarkable?
Skráning og nánari upplýsingar á imark.is
...alveg með’etta
Fylgir Morgunblaðinu alla fimmtudaga