Morgunblaðið - 17.11.2012, Page 43

Morgunblaðið - 17.11.2012, Page 43
UMRÆÐAN 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012 Réttindaskerðingar almannatrygginga vegna greiðslna úr líf- eyrissjóðum hafa verið harðlega gagnrýndar. Þessi gagnrýni hefur einkum beinst að mikl- um skerðingum fram- færsluuppbótar, sem skerðist nú um 100% gagnvart öllum öðrum tekjum. Þetta er svo- kölluð krónu fyrir krónu skerðing, sem getur gengið svo langt, að ein- hleypur ellilífeyrisþegi hefur engan ávinning af 73 þúsund króna greiðslu á mánuði úr lífeyrissjóði. 100 þúsund króna greiðsla úr lífeyrissjóði skilar honum aðeins 11 þúsund krónum á mánuði. Afleiðingar þessara miklu skerð- inga eru m.a. þær, að fólk sér lítinn eða engan ávinning af þeim rétt- indum, sem það hefur áunnið sér með áratuga greiðslu iðgjalda í lífeyrissjóð. Betra sé að geyma peningana undir koddanum, á bankabókum eða ávaxta þá eftir öðrum leiðum. Slíkt fráhvarf frá lífeyrissjóðunum gæti haft mikil og neikvæð áhrif á starfsemi þeirra og framtíðarhorfur. Á síðasta ári skipaði velferð- arráðherra starfshóp til að endur- skoða lög um almannatryggingar. Hann lagði áherslu á einföldun kerf- isins, skoðun víxlverkana (skerðingar) og aukið gagnsæi. Í hópnum eru fulltrúar stjórnmálaflokka, aðila vinnumarkaðarins og hagsmuna- samtaka. Nýlega var einróma sam- þykkt tillaga um einföldun ellilífeyr- iskerfisins, fækkun bótaflokka og að draga úr fyrrnefndum skerðingum. Lands- samband eldri borgara og fulltrúi Sjálfstæð- isflokksins lögðu fram sérstakar bókanir við af- greiðslu tillögunnar. Þess má vænta, að senn verði lagt fram á Alþingi frumvarp, sem byggist á þessari tillögu. Í kjarabaráttu sinni hefur Landssamband eldri borgara, LEB, lagt á það áherslu, að eldri borgurum verði bættar þær skerð- ingar, sem hafa orðið á kjörum þeirra. Engu að síður hafa fulltrúar þeirra tekið ríkan þátt í vinnu endurskoð- unarhópsins, sem með tillögu sinni bætir til muna kjör eldri borgara á næstu árum. Tillagan gerir ráð fyrir því, að bóta- flokkarnir ellilífeyrir, tekjutrygging og heimilisuppbót verði sameinaðir í einn. Þessi breyting kostar ríkissjóð um 400 milljónir króna. Þá er gert ráð fyrir, að skerðing vegna tekna við út- reikning heimilisuppbótar lækki í 70% á fyrsta ári gildistöku laganna, –á næsta ári í 60% og þarnæsta í 50% og sameinist síðan ellilífeyri. Því hefur verið haldið fram, einkum af Björgvini Guðmundssyni, fulltrúa í kjaramálanefnd LEB, að þessar til- lögur skerði kjör og réttindi eldri borgara. Það er nauðsynlegt að svara þessari röngu fullyrðingu, og benda á, að sam- kvæmt útreikningum Tryggingastofn- unar ríkisins og Talnakönnunar hf. hækka útgjöld Tryggingastofnunar til málaflokksins á fyrsta ári eftir gild- istöku laga, sem byggjast á fyrr- nefndri tillögu, um 2,5 milljarða króna, eða um 7% og á næsta ári um 3,8 milj- arða króna, eða um 10%. Þess ber að geta, að í útreikningum Talnakönn- unar hf. er reiknað með fjölgun lífeyr- isþega, sem verður umtalsverð á næstu árum og áratugum. Þannig ger- ir mannfjöldaspá Hagstofunnar ráð fyrir því, að hlutfall ellilífeyrisþega af vinnandi fólki á aldrinum 21-66 ára muni tvöfaldast fram til ársins 2050, eða úr 18% í tæp 40%. Hins vegar ríkir talsverð óvissa um skatttekjur ríkissjóðs af auknum greiðslum lífeyrissjóða til eft- irlaunaþega, en þær tekjur kæmu þá til mótvægis við aukin útgjöld rík- issjóðs til málaflokksins. Almennt er gert ráð fyrir því, að lífeyrissjóðirnir taki að verulegu leyti við greiðslum eftirlauna (ellilífeyrisgreiðslum) þegar fram líða stundir, og að skatttekjur ríkissjóðs af þessum greiðslum hækki umtalsvert. Kjarni þessa máls er sá, að það er röng staðhæfing, þegar því er haldið fram, að tillögur endurskoðunarhóps- ins verði til þess að greiðslur til ellilíf- eyrisþega skerðist. Þvert á móti mun tillagan, ef að lögum verður, bæta kjör þeirra til langrar framtíðar. Dregið úr skerðingum, bótaflokkar sameinaðir Eftir Árna Gunnarsson » Þá er gert ráð fyrir, að skerðing vegna tekna við útreikning framfærsluuppbótar lækki í 50% á næstu árum. Árni Gunnarsson Höfundur er fyrrverandi þingmaður og formaður starfshóps um endur- skoðun almannatryggingalaga. Opið virka daga frá 10-18 og laugardaga frá 11-16 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646 16:30-16:35 Ráðstefnan sett. Sigrún Lillie Magnúsdóttir forstöðumaður Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. 16:35-16:40 Ráðgjafarþjónustan. Ásdís Káradóttir hjúkrunarfræðingur segir frá þjónustunni. 16:40-16:45 Lungnahópur – fyrir hverja? Ingibjörg Þorleifsdóttir segir frá sinni reynslu í lungnahóp og kynnir www.lungnakrabbamein.is 16:45-16:55 Einkenni og greiningarferlið. Hrönn Harðardóttir lungnalæknir. 16:55-17:05 Nýjungar í lyfjameðferð. Agnes Smáradóttir krabbameinslæknir. 17:05-17:15 Nýjungar í skurðmeðferð við lungnakrabbameini. Tómas Guðbjartsson skurðlæknir. 17:15-17:35 Lengra og betra líf. Alice Skjold Braae formaður dönsku lungna- samtakanna segir frá mikilvægi árvekninnar. 17:35-17:50 Jafnvægi í daglegu lífi. Þórunn Gunnarsdóttir iðjuþjálfi á Reykjalundi. 17:50-18:00 Ávextir og spjall. Allir velkomnir – ókeypis aðgangur Örráðstefna 22. nóvember kl. 16:30-18:00 í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8 í tengslum við alþjóðlegan árveknidag gegn lungnakrabbameini Krabbameinsfélagið Fundarstjóri: Felix Bergsson leikari, útvarpsmaður og söngvari. Ertu að hósta úr þér lungunum? Lungnakrabbamein – snemmgreining skiptir sköpum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.