Morgunblaðið - 17.11.2012, Side 47

Morgunblaðið - 17.11.2012, Side 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012 þakka ég og fjölskylda mín fyrir samfylgdina í gegnum árin. Fjölskyldu Halldóru eru send- ar innilegar samúðarkveðjur, löngu og farsælu lífi er lokið. Blessuð sé minning hennar. Sigríður Bjarnadóttir. Loksins komið sumar og við á leið í langþráða ferð í Reykholt, sumarlandið okkar systra. Þegar rennt er í hlað þá stendur Dóra í Reykholti í dyragættinni með út- breiddan faðminn og Kanis ekki langt undan. Það er sannarlega vel tekið á móti okkur. Við eigum dásamlegar minn- ingar frá dvöl okkar í Reykholti hjá Dóru og Nonna. Okkur er efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að njóta okkar til fulls þegar við vorum litlar stelpur á heimili þeirra, úti á túni, uppi í Hálsi, niðri á Eyri, úti á Egg- ertsflöt og um allt í Reykholti. Dvöl hjá þeim hefur sannarlega haft jákvæð áhrif á líf okkar. Dóra var hæglát, hláturmild og hafði afar góða nærveru. Vin- átta hennar og mömmu okkar, Ásdísar Ólafsdóttur, var þeim báðum mjög kær. Þær héldu nánu sambandi alla tíð. Dóra var fyrirmyndarhúsmóð- ir og bar heimili þeirra hjóna vott um það. Alltaf var verið að vinna í eldhúsinu, baka, elda og var „púkabekkurinn“ í borð- króknum oft þéttsetinn. Kvöld- kaffið var engu líkt. Klukkan tíu á kvöldin var sest niður við drekkhlaðið borðið og slegið á létta strengi. Það voru mörg hlátursköstin sem við fengum með fólkinu hennar Dóru, enda lífsgleðin mikil á heimilinu. Búr- ið hennar Dóru var einstakt. Þar voru allar hillur fullar og allt til. Dóra vann verkin sín hljóðlega og af metnaði, fór fyrst á fætur og síðust að sofa. Vinnudagur Dóru gat verið langur því hún var einnig símstöðvarstjóri og þurfti oft að standa vaktina á nóttunni þegar mikið lá við. Það var fjölmennt á heimilinu á sumrin og tíður gestagangur. Alltaf var pláss fyrir alla. Þvott- urinn var mikill og þær voru æv- intýralegar ferðirnar í þvottahús sveitarinnar á Kleppjárnsreykj- um þegar Dóra átti þvottadag. Garðurinn hennar Dóru var fallegur enda ræktaði hún hann af alúð eins og allt annað. Dóra vildi hafa falleg blóm í garðinum; hádegisblóm, morgunfrúr og eld- liljur voru þar á meðal og hann var sleginn reglulega. Dóra var leikkona af guðs náð og tók þátt í mörgum upp- færslum á vegum Ungmenna- félags Reykdæla. Sérstaklega er okkur minnisstætt þegar hún lék kerlinguna í Gullna hliðinu og henti sálinni hans Jóns síns inn í himnaríki. Þegar Dóra og Nonni fóru í innkaupaferð í Borgarnes feng- um við systur stundum að fara með og sátum aftur í Land Ro- vernum. Þetta voru sögulegar ferðir. Þá upplifðum við í fyrsta skipti að fara út að borða. Okkur var boðið á Hótel Borgarnes í hádegisverð, sem oftast var skyr með rjóma. Á heimleiðinni var boðið upp á pulsu og gos í Hvítárvallaskála. Þetta fengum við bara með þeim. Þegar sumardvölinni lauk þá laumaði Dóra ávallt ferðalaga- peningi í lófa okkar og sagði okk- ur að kaupa eitthvað gott í Hval- firði. Í lífi hvers og eins eru stoðir sem styrkja mann og bæta. Ein af stoðunum í lífi okkar systra er Dóra í Reykholti. Hún var góð kona. Sólveig, Hafdís og Snædís Baldursdætur. Það eru ekki margir sem geta sagt að frá fæðingu hafi einhver verið í lífi sínu. Það get ég þó sagt um hana Dóru. Hún nefni- lega aðstoðaði þegar ég kom í heiminn. Hún fékk þar með eina nöfnu en seinna nafn mitt er ein- mitt í höfuðið á henni. Frá því ég man eftir mér hef ég verið mjög stolt af nöfnum mínum. Ömmu minni sem var mér mjög kær og Dóru minni sem einnig var mér mjög kær. Hún var í mínum huga litla hnellna konan með risastóra hjartað. Fyrstu minningarnar um hana eru þegar maður var að koma í vinnuna til mömmu á símstöðinni í Reykholti. Það var mjög spenn- andi fyrir unga snót að koma í þennan undraheim sem símstöð- in var og ekki var nú síðra að koma og fá knús og spjall hjá Dóru. Hún var ávallt í huga mér stór manneskja, og þá er ég ekki að vísa í annað en að hún var ein- staklingur með stórt hjarta, breitt bros og lét mann ætíð finna að til hennar væri maður mjög velkominn. Ég man að það kom mér mjög á óvart á fullorð- insárum að uppgötva að Dóra mín var nú frekar lágvaxin kona þar sem í mínum huga var hún (og er enn) ein af mínum stóru fyrirmyndum. Í dag kveð ég þessa fyrirmynd mína og þakka henni fyrir alla hlýjuna sem hún gaf mér og öðr- um í gegnum árin. Þakka fyrir að hafa fengið að kynnast henni og enn frekar fyrir að hafa feng- ið þann heiður að bera nafnið hennar. Dóra mín, nú ert þú komin á annað tilverustig en ég lofa þér því að ég mun gera mitt til að bera nafn þitt með sóma. Kærleikskveðja til ættingja þinna. Þín Hjördís Halldóra Guðlaugsdóttir (Dísa Dóra). Kynslóðir koma, kynslóðir fara. Með Halldóru Þorvalds- dóttur hverfur endanlega sú kynslóð sem réð ríkjum á Reyk- holtsstað á ungdóms- og skóla- árum okkar Þurýjar í Borgar- firðinum. Aðrir fætur marka nú spor á grundum Snorra Sturlu- sonar, sem hann umlukti virk- isveggjum í sinni tíð og markaði þar innan garðs sín merku spor heimskringlusögunnar. Margir aðrir hafa á þessum fagra stað lagt lóð á vogarskálar bók- mennta og annarra lista og tekið þátt í athöfnum fólks í Reyk- holtsdal með margvíslegum hætti, hún Dóra okkar þar á meðal. Er þar margs að minnast, m.a. eftirminnilegra kerlinga sem hún túlkaði af listfengi á fjölum leikhússins í Logalandi. Dóra var einstaklega skemmtileg kona, og það fundu allir þeir sem áttu því láni að fagna að kynnast henni. Ávallt stutt í gamansemina þegar hún sagði frá, og vellíðan það orð sem túlkar best það hugarástand sem fylgdi heimsóknum til henn- ar. Einstaklega notalegt að sitja við borðstofuborðið hjá henni og njóta veitinga og orðræðu. Þegar við Þurý heimsóttum hana síðast í Borgarnesi, var bú- ið að segja okkur að hún væri svolítið farin að gleyma bless- unin, og við mættum eiga von á að þurfa að segja til nafns þegar við kæmum. Svo stóð á þegar við komum inn í anddyri dvalar- heimilisins, að niður stigann gengur engin önnur en gamla góða Dóra, eins og til að taka á móti okkur. Ég spurði hvort hún myndi eftir okkur og hún sagði hneyksluð: „Hvað haldið þið að ég þekki ykkur ekki, Þurý og Óli.“ Síðan fórum við upp í íbúð hennar og áttum gott spjall að venju um menn og málefni. Þar kom m.a. fram það álit hennar að sá sem öllu ræður hefði gleymt henni hér á jörð, hún væri löngu ferðbúin. Gullvagninn kom svo til hennar 9. þessa mánaðar. Við Þurý sendum Dúda, Valda, Rúkka, Dollu og fjöl- skyldunni allri hugheilar samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning heiðurskonunnar Halldóru Þor- valdsdóttur. Óli H. Þórðarson. ✝ Halldór fædd-ist í Reykjavík 17. janúar 1944. Hann lést í Sacra- mento í Bandaríkj- unum 4. september 2012. Hann var sonur hjónanna Lárusar Jóhannssonar vél- stjóra, f. í Hlíð í Mjóafirði eystra 1. október 1909, d. 7. febrúar 2003, og konu hans Margrétar Þórarinsdóttur, f. í Reykjavík 6. september 1909, d. 13. október 1983. Föðurfor- eldrar: Jóhann Jóhannsson, vél- stjóri í Mjóafirði, f. á Krossi í Mjóafirði 28. apríl 1876, d. 1919, og kona hans Róshildur Jónsdóttir, f. í Mosakoti á Síðu, Vestur-Skaftafellssýslu 2. ágúst 1877, d. 30. september 1968. Móðurforeldrar: Þórarinn Guð- mundsson skipstjóri, f. í Hlíð í Garðahreppi í Gullbringusýslu 29. nóvember 1872, d. 29. ágúst 1951, og kona hans Ragnheiður Jónsdóttir, f. á Arkarlæk í Skilmannahreppi í Borgarfirði 24. júní 1876, d. 6. janúar 1923. Þau bjuggu lengst af í Ána- naustum í vesturbæ Reykjavík- ur og voru við þann stað kennd. Halldór var næstyngstur fjög- urra systkina, en þau eru: Þór- arinn, f. 21.1. 1940, Gunn- steinn, f. 25.5. 1941, d. 7.5. 2009, og Jóhanna, f. 16.10. 1948. Fyrri kona Halldórs er Ragnhildur Árnadóttir sjúkra- liði. Þau slitu samvistir. Sonur þeirra er Ásgeir mat- reiðslumeistari. Fyrir átti Ragnhildur soninn Árna Eðvaldsson húsasmið, giftur Inger Maríu Er- lingsdóttur prent- ara. Börn þeirra eru Vilma Ýr og Ís- ar Mar. Seinni kona Halldórs er Asieh Ása Fadai og lifir hún mann sinn ásamt börnum sín- um Phone, Parisha og Carl í Sacramento í Banda- ríkjunum. Eftir barnaskóla kláraði Halldór unglingadeildina á Núpi í Dýrafirði. Leiðin lá síðar í Stýrimannaskólann og að námi loknu var hann fljótlega orðinn skipstjóri, aðeins 22 ára, á Elliða frá Sandgerði. Tók síð- ar við Eldeynni GK, Reykja- borginni RE, síðar Stapavík SI o.fl. bátum og gerðist m.a. tog- araskipstjóri um tíma í Noregi. Halldór var með einn af fystu bátunum sem veiddu síld í Norðursjó. Hann réð sig seinna til Alþjóðaþróunarsam- vinnustofnunarinnar og starf- aði á þeirra vegum á Græn- höfðaeyjum í fjögur ár og síðar á vegum Sameinuðu þjóðanna í Malasíu og víðar, en lengst af var hann í Íran, þar sem hann kynntist seinni konu sinni. Þau fluttust til Sacramento í Banda- ríkjunum þar sem hann bjó til dauðadags. Bálför Halldórs var gerð í Sacramento. Að eigin ósk var ösku hans dreift á haf út þar vestra. Minningarathöfn hér heima fór fram í Fossvogskap- ellu 29. október 2012. Hann Halli bróðir er farinn, sigldur síðasta túrinn og á ekki afturkvæmt. Hann laðaðist ungur að sjónum og snemma beygðist krókurinn að því, sem verða vildi. Stóð eitt sinn sem oftar á hafnarbakkanum í Reykjavík, þá kominn undir ferm- ingu, og fylgdist kotroskinn og af áhuga með manni að tjarga þar bát sinn og sagði ákveðinn: „Get ég fengið pláss á bátnum hjá þér“. Þeim annálaða útgerðarmanni, Ármanni Halldórssyni, þótti greinilega nokkuð til framhleypni stráksa koma og réð hann á staðn- um. Fyrsta pláss Halla af mörgum varð því hjá Ármanni á Helgu RE. Á árum landhelgisdeilunnar var löndunarbann í Bretlandi á fiski frá Íslandi í mörg ár. Þetta þurfti Halli endilega að skoða nán- ar. Þá var hann með Reykjaborg- ina, sem hann átti í félagi við ann- an og ákveðið var, þrátt fyrir boð og bönn, að þykjast vera sænskir og landa í Fleetwood. Landað var í hendingskasti áður en þarlend verkalýðsforysta og lögga áttuðu sig og komu. Þá var ekkert annað en að leysa festar og forða sér. Svona uppákomum leiddist Hall- dóri ekki, en þetta varð reyndar til þess að brjóta ísinn og löndunar- banninu aflétt í framhaldi. Halldór hafði metnað fyrir starfi sínu og mat þá sem reyndu að spjara sig. Lítill fiskverkandi var að reyna að koma undir sig fótunum í samkeppni við stöndugt fyrirtæki með því að vera með sína eigin löndunaraðstöðu. Þetta kunni Halldór að meta og lagði lykkju á leið sína til þess að landa einmitt þarna og gefa þessum manni betri möguleika í erfiðu umhverfi. Hann var líka séður. Í einhverri brælunni á Siglufirði fóru allir bátar út í tómu harki á meðan Halldór og hans áhöfn höfðu það náðugt í landi. Bátarnir komust margir við illan leik í land, skemmdir og alla vega. Þegar lægði sigldi Halldór út í rólegheit- um með sína menn og mokaði upp fiski. Halli dvaldi í fjögur ár við þróunarstörf á Grænhöfðaeyjum, en réði sig síðar til Sameinuðu þjóðanna og vann þar víða að al- þjóðlegum verkefnum á sviði þró- unaraðstoðar, lengst af í Íran. Þar kynntist hann eftirlifandi eigin- konu sinni og fluttist með henni og börnum hennar til Sacramento í Bandaríkjunum, þar sem Halldór bjó til dauðadags við ýmis störf. Það eru tíu ár síðan Halldór kom síðast heim til Íslands og átti þá meðal annars nokkra dýrmæta daga með föður sínum, öldruðum, fyrir austan. Halli lá ekki á skoðunum sínum og mátti litla systirin oft heyra það hvernig hún ætti að vera og ekki vera. Hann borgaði húsmæðra- skólann fyrir hana, svo hún gæti orðið bóndakona, hún kynni ekki neitt. Meðan síldin og loðnan veiddist fyrir austan land, hoppaði Halli stundum í land í Mjóafirði til að líta á ungu hjónin á Brekku og börnin. Seinna kom sonurinn Ás- geir og var í skóla á Brekku með frændsystkinum sínum. Við, litla systir og stóri bróðir og fjölskyldur okkar, kveðjum Halla með söknuði og sjáum hann fyrir okkur veifa til okkar kankvís og brosandi á himinfleyi til „Fyr- irheitna landsins“. Sendum innilegar samúðar- kveðjur til eftirlifandi fjölskyldna hans, frændfólks og vina. Jóhanna og Þórarinn. Meira: mbl.is/minningar Halldór Lárusson ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GUÐMUNDA SUMARLIÐADÓTTIR, Hjúkrunarheimilinu Hlévangi, Faxabraut 13, Reykjanesbæ, lést á heimili sínu sunnudaginn 11. nóvember. Jarðsungið verður frá Ytri-Njarðvíkurkirkju mánudaginn 19. nóvember og hefst athöfnin kl. 13.00. Starfsfólki Hlévangs viljum við senda okkar bestu þakkir fyrir frábæra umönnun og sérstaka hlýju þann tíma sem Munda bjó hjá ykkur. Jósebína Gunnlaugsdóttir, Gunnlaugur Gunnlaugsson, Kristjana Sigurðardóttir, Hafdís Gunnlaugsdóttir, Róbert Svavarsson, Karl Hólm Gunnlaugsson, Sigurveig Þorsteinsdóttir, Sævar Gunnlaugsson, Selma Kristjánsdóttir, og aðrir aðstandendur. ✝ Okkar ástkæri FRIÐJÓN JÓNSSON frá Lindarbrekku í Staðarsveit lést í faðmi fjölskyldunnar miðvikudaginn 7. nóvember á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Útförin fer fram í Grafarvogskirkju mánudaginn 19. nóvember kl. 11:00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarkort Skógarbæjar. Hanna Olgeirsdóttir, Elísa Anna Friðjónsdóttir, Hermann Jóhannesson, María Lóa Friðjónsdóttir, Gunnar Sigurfinnsson, Jón Unnar Friðjónsson, Hulda Vilhjálmsdóttir, Heiða B. Friðjónsdóttir, Linda Kristín Friðjónsdóttir, Björn Magnús Tómasson, Linda Elínborg Friðjónsdóttir, Viktor Pétursson, afabörn og langafabörn. Pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Næg bílastæði ERFIDRYKKJUR ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ERLA STEFÁNSDÓTTIR, Þverbrekku 4, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi mánudaginn 12. nóvember. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 21. nóvember kl. 13.00. Sérstakar þakkir til Heimahlynningar Landspítalans. Jóhann H. Jónsson, Svandís Eyfjörð Steingrímsdóttir,Sigurður Hafsteinsson, Stefán Eyfjörð Steingrímsson, Elsa Auður Sigfúsdóttir, Baldvin Stefánsson, Justé Okaite, Erla Ruth, Birgitta Líf, Gunnar Bjarmi, Haukur Ingi, Davíð Kári. ✝ Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar, WG. CDR. ALFRED GEORGE WILMOT Chartered Electrical Engineer RAF, áður til heimilis á Smáraflöt og Efstalundi í Garðabæ, andaðist á Vífilsstöðum 3. nóvember. Útför hans fór fram í kyrrþey. Við þökkum innilega starfsfólki Landspítalans, Heimahjúkrun og heilsugæslu Garðabæjar, Dagþjálfun Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði og Hjúkrunarheimilinu Holtsbúð á Vífilsstöðum fyrir veittan stuðning, kærleik, umönnun og mikilsverð störf, vinum og fjölskyldum okkar fyrir djúpa samúð og kærleik. Virðingarfyllst, Unnur Inga Jensen, Alfreð Ingi Alfreðsson Wilmot, George Elís Alfreðsson Wilmot, John Wilmot, David Wilmot, Robert Wilmot, Tómas Wilmot, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæri faðir, bróðir, frændi og vinur, JÓHANNES ÁGÚSTSSON, Sléttahrauni 24, Hafnarfirði, lést á Landspítalanum fimmtudaginn 15. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Jorunn Jóhannesdóttir, Hrólfur B. Ágústsson og fjölskylda, Guðrún Ágústsdóttir og fjölskylda, Maria Ohlsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.