Morgunblaðið - 17.11.2012, Page 60
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Hannes Pétursson skáld tók í gær
við verðlaunum Jónasar Hallgríms-
sonar sem afhent eru árlega á degi
íslenskrar tungu. Verðlaunin voru
afhent við hátíðlega athöfn í sal
Álftanesskóla.
Ráðgjafarnefnd um verðlaun Jón-
asar Hallgrímssonar, sem skipuð
var þeim Kristínu Helgu Gunnars-
dóttur, Kristjáni Árnasyni og Þór-
arni Eldjárn, álítur að fáir verð-
skuldi betur en Hannes að hljóta
verðlaunin. Ennfremur lagði nefnd-
in til að Þjóðlagasetur sr. Bjarna
Þorsteinssonar á Siglufirði hlyti sér-
staka viðurkenningu við þetta tæki-
færi.
Tungan varð nýrri og fegurri
„Ég met þessa viðurkenningu
ekki síst af því að hún tengist nafni
Jónasar Hallgrímssonar,“ sagði
Hannes í ávarpi sínu eftir að hafa
tekið við viðurkenningunni. Hann
hélt síðan áfram: „Það skáld hefur
verið einn af mínum ósýnilegu föru-
nautum, allt síðan á æskudögum, og
risið í tímans rás því hærra í vitund
minni, þeim mun betur sem ég gróf
mig niður í hugarheim hans, hvort
heldur var í skáldskap, bréfaskipt-
um eða fræðum.
Það er eitt af undrum í menning-
arlífi þessarar þjóðar að Jónasi Hall-
grímssyni skyldi vinnast svo vel á
um það bil einum áratug, að þegar
hann féll frá var íslensk ljóðagerð,
og íslensk tunga í meðförum hans,
orðin bæði nýrri og fegurri en fyrir
hans tíð.“
Hannes sagði síðan að hið mark-
verða starf Jónasar Hallgrímssonar
mætti þó aldrei leiða til þess að það
gleymdist að margir aðrir menn á
19. öld „unnu atorkusamir að því að
skipa íslenskri tungu aftur til síns
forna sætis“. Og hann nefndi þrjá
þeirra, beinlínis fyrir þær sakir að
skólabyggingin þar sem verðlaunin
voru afhent stendur í landi Eyvind-
arstaða en þeim bæ tengdust þeir
allir: Sveinbjörn Egilsson skáld, Jón
Árnason þjóðsagnasafnari og Bene-
dikt Sveinbjarnarson Gröndal skáld
og „höfuðsnillingur í ritun lausamáls
á íslensku … Þessir þrír menn skil-
uðu svo yfirgripsmiklu ævistarfi,
hver á sínu sviði, að furðu gegnir.
Starfi sem allt var af hendi leyst í
þágu íslenskrar tungu og fræða“,
sagði Hannes.
Brúarsmiður í ljóðagerð
Hannes Pétursson fæddist á
Sauðárkróki 14. desember 1931. Í
greinargerð nefndarinnar segir að
hann hafi aðeins verið 24 ára þegar
hann kvaddi sér hljóðs með Kvæða-
bók sem út kom 1955. Tóku almenn-
ir lesendur og gagnrýnendur bók-
inni fagnandi. Einn ritdómari komst
svo að orði að það sætti miklum tíð-
indum „þegar fullþroskað og stór-
brotið skáld kemur formálalaust inn
í bókmenntirnar“. Ætíð síðan hefur
hann verið ljóðinu trúr og ljóðabæk-
ur hans vakið mikla og verðskuldaða
athygli.
Hannes hefur löngum verið kall-
aður brúarsmiður í íslenskri ljóða-
gerð. Þá er á það bent að ljóð hans
hafi löngum verið sem brýr milli
hefðar og nútíma, standi föstum fót-
um í íslensku umhverfi, náttúru og
sögu en fáist þó engu að síður iðu-
lega við vanda okkar hér og nú. Að
auki byggjast þau mjög á íslenskri
kveðskaparhefð, jafnt að formi sem
efni, þótt fæst þeirra séu ort undir
föstum bragarháttum.
Ljóð Hannesar eru einnig bein-
tengd miðevrópskri ljóðahefð, enda
stundaði Hannes háskólanám í
Þýskalandi í tvö ár að loknu stúd-
entsprófi í Þýskalandi en settist eftir
það í HÍ og lauk cand. mag.-prófi í
íslenskum bókmenntum.
Hannes var um árabil starfs-
maður Menningarsjóðs og vann þar
að margvíslegum útgáfumálum.
Hann hefur einnig fengist nokkuð
við þýðingar og lyft hinum þjóðlega
sagnaþætti á nýtt listrænt stig, eins
og heimildaþáttaritsafninu Misskipt
er manna láni (1982-87). Í fyrra
sendi Hannes frá sér bókina Jarðlag
í tímanum, minningamyndir úr
barnæsku. Þar lýsir hann af fágætri
stílsnilld uppvexti sínum í Skaga-
firði.
Hannes hlaut verðlaunin
Verðlaun Jónasar
Hallgrímssonar
voru afhent í gær
Morgunblaðið/Ómar
Verðlaunaskáld Hannes Pétursson tók í gær við verðlaunum Jónasar Hallgrímssonar úr hendi Katrínar Jakobs-
dóttur menntamálaráðherra. Hannes sagði Jónas hafa verið einn af sínum „ósýnilegu förunautum“.
Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði
hlýtur sérstaka viðurkenningu á degi íslenskrar tungu,
að tillögu ráðgjafanefndarinnar.
Í Þjóðlagasetrinu eru íslensk þjóðlög kynnt á að-
gengilegan hátt. Sýnd eru myndbönd af fólki á ólíkum
aldri að syngja, kveða, dansa eða leika á hljóðfæri. Sagt
er frá þjóðlagasöfnun séra Bjarna, greint frá heimildar-
mönnum hans og mörgum þeim sem aðstoðuðu hann
við söfnunina víða um land. Örlygur Kristfinnsson safn-
stjóri er hönnuður sýningarinnar í setrinu. Á henni get-
ur einnig að líta muni úr eigu Bjarna og eiginkonu hans, Sigríðar Blöndal,
sýnishorn af handritum, hljóðfæri og fleira.
Kynnir íslensk þjóðlög
ÞJÓÐLAGASETRIÐ HLÝTUR SÉRSTAKA VIÐURKENNINGU
Sr. Bjarni
Þorsteinsson
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012
Fjöldi listamanna
kemur fram á
sérstökum sam-
stöðu- og styrkt-
artónleikum í
Hofi á morgun kl.
16. Allur ágóði
tónleikanna renn-
ur í styrktar-
söfnun fyrir þá
bændur sem urðu
fyrir áföllum í
óveðrinu er gekk yfir Norðurland í
september sl.
Meðal þeirra sem fram koma eru
Kristján Jóhannsson, Sigrún Hjálm-
týsdóttir, Valgerður Guðnadóttir,
Gissur Páll Gissurarson, Jón Svavar
Jósefsson, Unnur Helga Möller,
Hörn Hrafnsdóttir, Rósalind Gísla-
dóttir, Guðrún Dalía Salómonsdóttir
og Anna Guðný Guðmundsdóttir.
Allir listamenn gefa vinnu sína til
stuðnings verkefninu.
Þeim sem vilja leggja bændum lið
er auk þess bent á söfnunarreikning
nr. 0161-15-380370, kt. 630885-1409,
í Landsbankanum á Sauðárkróki.
Styrktartón-
leikar í Hofi
Valgerður
Guðnadóttir
Árlegir styrkt-
artónleikar
Kirkjukórs
Lágafellssóknar
fara fram í Guð-
ríðarkirkju kl.
16. Í ár er ætl-
unin að styrkja
Steinunni Ingi-
björgu Jakobs-
dóttur sem fékk
slæmt heilablóð-
fall árið 2004, þá tuttugu og sjö
ára gömul, en börn hennar voru
þá sjö og tíu ára. Hún lamaðist
algjörlega öðrum megin og er í
dag alveg bundin við hjólastól.
Meðal listamanna sem fram koma
á tónleikunum eru Diddú, Lay
Low, Egill Ólafsson, Valdimar,
Ragnheiður Gröndal, Greta Sal-
óme og Maríus Sverrisson ásamt
Kirkjukór Lágafellssóknar og
Ljósakórnum, sem er barnakór
kirkjunnar.
Til styrktar
Steinunni
Ragnheiður
Gröndal
LISTASAFN ÍSLANDS
Listasafn Reykjanesbæjar
ÁSÝND FJARSKANS
THE SHAPE OF YONDER
Þorbjörg Höskuldsdóttir
26. október – 16. desember
Bátasafn Gríms Karlssonar
Byggðasafn Reykjanesbæjar
Opið virka daga 12-17, helgar 13-17.
Aðgangur ókeypis
reykjanesbaer.is/listasafn
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Lauslega farið með staðreyndir –
sumt neglt og annað saumað fast
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir
Hinumegin
Þuríður Rós Sigurþórsdóttir
Hádegisleiðsagnir
Alla föstudaga kl. 12
meðan sýningarnar standa yfir
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
TÓMIÐ
HORFIN VERK KRISTINS PÉTURSSONAR
Með athugsemdum Hildigunnar,
Hugins Þórs, Sólveigar og
Unnars Arnar
Sýningarstjóraspjall
Markús Þór Andrésson
sunnud. 18. nóv. kl. 15
Opið fimmtud.-sunnud. kl. 12-18
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.listasafnarnesinga.is
Hveragerði
Gísli B.
Fimm áratugir í grafískri hönnun
Opið alla daga nema mán. kl. 12-17.
Verslunin KRAUM í andddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is
Sunnudag 18. Nóvember: Tveir fyrir einn af aðgangseyri
Ókeypis leiðsögn kl. 14 um sýninguna Teikning – þvert á tíma og tækni
Nýjar sýningar:
Fólkið á Þórsgötu- Skyndimyndir frá árunum 2004-2012 í Myndasal
Þvert yfir Grænlandsjökul 1912-1913 á Vegg
Jón í lit á Torgi
Aðrar fjölbreyttar sýningar:
Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár
Teikning- þvert á tíma og tækni í Bogasal
Heimkoma – Hljóðfrásagnir af eyðibýlum á 3. Hæð
Einvígi aldarinnar. Fischer og Spassky – 40 ár
Ratleikir fyrir fjölskyldur, safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is
Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17
REK; Anna Hallin & Olga Bergmann 10.11. - 31.12. 2012
VETRARBÚNINGUR 10.11.2012 – 31.1. 2013
HÆTTUMÖRK; Rúrí 19.5. – 31.12. 2012
SUNNUDAGINN 18. NÓV. KL. 15
mun Kammerkór Mosfellsbæjar gleðja gesti safnsins með söng.
SAFNBÚÐ Listaverkabækur, kort og gjafavara.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600
OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
Bergstaðastræti 74, sími 561 2914
Opið þri. til fim. kl. 11-14, sun. kl. 13-16
www.listasafn.is
SÝNINGARSALIR Í KJALLARA:
Sýningin „Lífið í Vatnsmýrinni“
5. sept. - 4. nóv. opið 12-17 alla daga, lokað mánudaga.
Á sýningunni er hægt að kynnast marglaga sögu Vatnsmýrarinnar. Hún er
hugsuð til að efla vitund um náttúruna inni í borginni og borgina í náttúrunni.
NÁTTÚRUSKÓLI NORRÆNA HÚSSINS
- fjölskyldudagskrá alla virka daga í sept. og okt. kl. 12-17, lokað mánudaga.
Ratleikur með spurningum og verkefnum
sem fjölskyldan leysir saman
Norræna húsið, Sturlugötu 5, s. 551 7030
www.norraenahusid.is , nh@nordice.is
Opið alla virka daga 9-17, helgar 12-17. Aðgangur ókeypis.
NORRÆNA HÚSIÐ
Söfn • Setur • Sýningar