Morgunblaðið - 17.11.2012, Síða 65
MENNING 65
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2012
Að skrifa dóm um mynd einsog Cloud Atlas er vanda-verk. Myndin er einfald-lega svo ólík mörgu því
sem áður hefur sést. En það þýðir
fátt annað en að bretta upp ermar og
gera sitt besta. Í myndinni eru sagð-
ar sex sögur sem gerast á mismun-
andi stöðum, á mismunandi tíma, en
tengjast allar á ýmsan hátt.
Farið er inn og út úr sögunum
sex. Sögusvið þeirra sögu, sem á að
gerast fyrst, er skip á ferð um
Kyrrahafið um miðja 19. öld, en sag-
an sem gerist síðast á sér stað ein-
hvers staðar í óræðri framtíð, 106
árum eftir „Fallið“, sem var endir
einhvers konar siðmenningar eða
samfélags.
Einstakt mannval leikur í mynd-
inni og erfitt er að gera upp á milli
einstakra leikara, enda sýna þeir af
sér mikla fjölhæfni með því að koma
fram í mismunandi gervum í sög-
unum. En ef nefna ætti eitthverja
sem upp úr standa, þá er það helst
Ben Whishaw í hlutverki tónskálds-
ins Frobishers, Tom Hanks sem
Zachry, Halle Berry sem blaðakon-
an Luisa Rey, Jim Broadbent sem
Timothy Cavendish og Doona Bae í
hlutverki Somni-351. Svo er mynda-
takan einfaldlega mögnuð, sér-
staklega í framtíðarborginni Neo
Seoul.
En hvað gerist í þessari stór-
mynd? Til dæmis er dregin upp
hrollvekjandi framtíðarsýn í borg-
inni Neo Seoul árið 2144 þar sem
fyrirtæki stjórna lífi fólks frá fæð-
ingu og íbúunum er skipt í stéttir
eftir því hvort þeir eru klónaðir eða
„náttúrulegir“. Þá er sagt frá böldnu
gamalmenni, sem þarf að berjast
fyrir því að endurheimta frelsi sitt
eftir að hafa verið ginnt á elliheimili,
ungt tónskáld leggur allt undir til að
skrifa ódauðlegt verk, blaðakona
leggur líf sitt að veði við sannleiks-
leit og bandarískur lögfræðingur á
tímum þrælahalds vingast við
strokuþræl.
En myndin er líka um margt ann-
að. Mannlegan breyskleika, ást í
ýmsum myndum, vináttu, góð-
mennsku, illsku, von og vonleysi. En
aðallega um það hvernig val okkar
og athafnir í lífinu geta haft ómæld
áhrif á svo miklu, miklu meira en við
gerum okkur grein fyrir.
Það er langt síðan undirrituð hef-
ur hrifist svo mikið af kvikmynd að
til greina komi að sjá hana aftur (það
hefur reyndar ekki gerst síðan Dirty
Dancing var í bíó árið 1988), en lík-
lega verður farið aftur á Cloud Atlas
innan tíðar.
Smá nöldur að lokum: þetta er
þriggja tíma löng mynd, 172 mín-
útur til að gæta allrar nákvæmni.
Kvikmyndahúsaeigendur mættu
taka tillit til þess og stytta auglýs-
ingatíma á undan myndinni, eða
hreinlega sleppa honum alveg. Með
30 mínútna auglýsingum í byrjun og
hléi tók bíóferðin vel yfir þrjá og
hálfan tíma. Varla skiptir það sköp-
um fyrir rekstur bíóhúsa að sleppa
auglýsingum á undan einni mynd.
Stórmynd Tom Hanks og Halle Berry í Cloud Atlas. Myndin fjallar í grunn-
inn um það hvernig val okkar og athafnir í lífinu geta haft ómæld áhrif á svo
miklu, miklu meira en við gerum okkur grein fyrir, eins og segir í gagnrýni.
Sex magnaðar sögur
í einni kvikmynd
Smárabíó, Háskólabíó, Borg-
arbíó og Sambíó Egilshöll
Cloud Atlas Leikstjórar: Tom Tykwer, Andy Wac-
howski og Lana Wachowski.
Leikarar: Halle Berry, Tom Hanks, Hugh
Grant, Doona Bae, Jim Broadbent, Sus-
an Sarandon, Ben Whishaw og fleiri
ANNA LILJA
ÞÓRISDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Ímyndinni Woody Allen: ADocumentary er skyggnst ábakvið tjöldin hjá einu mestaólíkindatóli Hollywood,
Woody Allen. Heimildarmyndin
fjallar að mestu leyti um kvikmyndir
Allen en jafnframt er farið í upphaf
ferils hans sem skrítluskrifara og
uppistandara.
Myndin byggist upp á viðtölum
við Allen sjálfan og þá sem unnið
hafa með honum í kvikmyndunum.
Flestir hafa góða sögu að segja af
þessum orðheppna sérvitringi sem
óhætt er að segja að fari eigin leiðir í
kvikmyndagerð og í lífinu.
Robert B. Weide, leikstjóri mynd-
arinnar er þekktastur fyrir að leik-
stýra gamanþáttunum Curb your
enthusiasm, sem líkt og myndir
Allens höfðuðu til ákveðins hóps
fólks en alls ekki til allra. Gerir hann
vel í að fanga allt það sem Allen
stendur fyrir. Hið eilífa stef kvik-
mynda hans um ástina, lostann,
dauðann og fallvalta hamingjuna.
Jafnframt skín í gegn sú pönkaða
lífssýn að það skiptir ekki máli hvað
þú getur, heldur hvað þú gerir. Allen
er á vagni þeirra sem stilla skóla-
kerfinu upp í andstöðu við með-
fædda sköpunargáfuna. Ljóst er að
sjálfstæði og frelsi listamannsins er
honum hugfólgið.
Allen er orðinn 77 ára en er iðinn
sem fyrr og hefur haldið sig við það
að gera eina kvikmynd á ári. Nýleg-
ar myndir hans bera vitni þess að
hann slær hvergi slöku við.
Aðdáendur leikstjórans ættu ekki
að verða fyrir vonbrigðum með
myndina en jafnframt er hún athygl-
isverð fyrir alla þá sem hafa áhuga á
sköpunarferli og kvikmyndum.
Weide tekst vel upp þegar hann fer
yfir feril Allens, allt frá því hann var
uppistandari í New York á 6. ára-
tugnum yfir í óskarsverðlaunamynd-
ir hans og áhrif þeirra á kvikmynda-
menningu. Hins vegar er nokkuð
snautlega skautað yfir hið umdeilda
samband Allens við ættleidda dóttur
sína sem vakti mikla hneykslan þeg-
ar það kom í ljós árið 1992.
Myndin er þó ekki eitt stórt lof til
handa leikstjóranum og ágætlega er
gerð grein fyrir þeim myndum sem
ekki hafa hlotið náð gagnrýnenda.
Ekki verður annað sagt en að hér sé
á ferðinni vel heppnuð og skemmti-
leg mynd um einn forvitnilegasta og
áhrifamesta leikstjóra samtímans.
Viðfangsefnið Heimildarmyndin
um Woody Allen er vel heppnuð.
Ólíkindatóli gerð
skemmtileg skil
Bíó Paradís
Woody Allen: A Documentary
bbbbn
Leikstjóri: Rober B. Weide. Bandaríkin
2012.
VIÐAR GUÐJÓNSSON
KVIKMYNDIR
NÝTT Í BÍÓ
-VARIETY
-HOLLYWOOD REPORTER
Í 2D OG 3D MEÐ ÍSLENSKU TALI
Í 2D MEÐ ENSKU TALI/ÍSL TEXTA
L
BOXOFFICE MAGAZINE
MYNDIN SEM MARGIR VILJA MEINA AÐ VERÐI EIN SÚ
SIGURSTRANGLEGASTA Á NÆSTU ÓSKARSVERÐLAUNAHÁTÍÐ
-B.O. MAGAZINE
- NEW YORK DAILY NEWS
LOKAMYNDIN Í EINNI STÆRSTU KVIKMYNDASERÍU ALLRA TÍMA
L
14
12
12
16
MBL
FRÉTTATÍMINN
80/100
VARIETY
80/100
WILL GIVE ITS BREATHLESSLY AWAITING
INTERNATIONAL AUDIENCE JUST WHAT IT
WANTS.
THE HOLLYWOOD REPORTER
BOXOFFICE MAGAZINE
12
16
L
L
L
AKUREYRI
TWILIGHT: BREAKING DAWN - PART 2 KL. 8
ARGO KL. 10:20
WRECK-IT RALPH ÍSL TAL3D KL. 2 - 4
WRECK-IT RALPH ENSKT TAL KL. 2
BRAVE HIN HUGRAKKA ÍSLTAL KL. 2 - 4
HOPE SPRINGS KL.6 - 8
END OF WATCH KL. 10:20
EGILSHÖLL
L
L
L
L
L
14
14
12
ÁLFABAKKA
L
L
L
VIP
16
16
14
12
L
L
TWILIGHT: BREAKING DAWN - PART 2
KL. 3 - 5:30 - 8 - 10:30
TWILIGHT: BREAKING DAWN - PART 2 VIP
KL. 3 - 5:30 - 8 - 10:30
WRECK IT RALPH M/ÍSL.TALI Í3D. 1:30 - 3:40- 5:50
WRECK IT RALPH ÍSL.TALI 1 -1:30- 3:405:50
WRECK IT RALPH ENSKU.TALI KL. 5:50 - 8 - 10:10
ARGO KL. 5:40 - 8 - 10:30
HOPE SPRINGS KL. 3:40 - 8
HOUSE AT END OF STREET KL. 8:10 - 10:30
BRAVE M/ÍSL.TALI KL. 1:30 - 3:40
END OF WATCH KL. 10:10
16
12
KEFLAVÍK
L
L
L
TWILIGHT: BREAKING DAWN 2 KL. 8 - 10:30
WRECK IT RALPH ÍSL TAL3D KL. 1:30
HOPE SPRINGS KL. 8
END OF WATCH KL. 10:10
BRAVE ÍSLTAL KL. 2 KL. 6 ENSKU TALI
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
12
12
L
L
TWILIGHT: BREAKING DAWN - PART 2
KL. 5:30 - 8 - 11 NÚMERUÐ SÆTI
SKYFALL KL. 2 - 5 - 6 - 8 - 9 - 11
WRECK IT RALPH ÍSL.TALI 2:20 -3:20
WRECK IT RALPH ÍSL TAL3D 1:40-3:50
MERKTAR MEÐ GRÆNU OG APPELSÍNUGULU Í BÍÓAUGLÝSINGUM
SAMBÍÓA KR. 1000 Á GRÆNT OG KR. 750 Á APPELSÍNUGULT
SPA BÍÓ
TWILIGHT: BREAKING DAWN - PART 2
KL. 1 - 3 - 5:30 - 8 - 9 - 10:30
ARGO KL. 8 - 10:30
WRECK-IT RALPH ÍSL TAL3D 1-3:20-5:30
WRECK-IT RALPH ÍSL TAL KL. 1:30 - 3:40
CLOUD ATLAS KL. 5:50 - 8
BRAVE KL. 1
BRAVE KL. 3:40
WRECK-IT RALPH ENSTAL KL. 5:50