Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 2
2 Jólablað Morgunblaðsins
Útgefandi Árvakur Umsjón Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Blaðamenn Arna Sigrún Haraldsdóttir arnasigrun@gmail.com Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Árni Matthíasson arnim@mbl.is Bergljót Friðriksdóttir beggo@mbl.is
Halldór Bachmann halldorbach@gmail.com Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Auglýsingar Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is Forsíðumyndina tók Golli Prentun Landsprent ehf.
Og það gera þau alltaf.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að hátíð ljóss og
friðar á það til hjá sumum að snúast upp í andhverfu
sína, alltént í aðdragandanum, og verða að ótíð fjárhags-
tjóns og ófriðar. Það þarf jú að hreinsa út úr öllum skáp-
um, mála helst hvern krók og kima, baka í það minnsta
sex sortir af smákökum, kaupa gjafir sem kvelja kred-
itkortið, finna mat og drykk fyrir jólaboðið og helst að fá
hjartsláttartruflanir og andnauð með öllu saman. Annars
koma ekki jólin! En það gera þau nú samt.
Svo við getum valið um tvennt: að stressa okkur í drep
eða taka það rólega og njóta jólahátíðarinnar, með dá-
litlu skipulagi. Hverju skiptir þó þessi eða hinn jólabjór-
inn sé búinn (þó aðventan sé ekki hafin!) eða þá að við
blasi að ekki vinnist tími til að baka alla fyrirhuguðu fleir-
töluna af smákökusortum? Vert er að hafa í huga orð við-
mælenda hér í blaðinu. Þorri Hringsson, vínþekkjari með
meiru, bendir á að stundum virkar malt og appelsín best
með jólamatnum; eða þá Gurrý Matthíasdóttir sem bak-
ar einungis eina tegund fyrir jólin en gerir svo góðar sör-
ur að orð fer af. Og þó að gott sé að gera heimilið hreint
og fínt fyrir hátíðirnar er óþarfi að fórna heilsu og jóla-
gleði fyrir. Látum ekki jólastressið koma niður á sam-
verustundunum og jólastemningunni.
Jólin 2012 eru nefnilega prýðisgóð með tilliti til frídaga,
alltént fyrir launþega. Fínustu fríjól. Það er því lag að
njóta samvista við sína nánustu, vini og ættingja, því án
þess er þetta stúss allt saman þeim mun minna virði. Við
ráðum að mestu leyti hvaða hátt við höfum á jólahaldinu
svo reynum að gera okkur þetta nógu skemmtilegt. Jólin
koma nefnilega, sama hvað.
Því það gera þau alltaf.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólin koma!
6 Allt um jólatré
8 Rjúpa í matinn
16 Jólafrímerkin í ár
18 Jólin í Ásgarði
22 Sígilt hangikjöt
24 Listafögur piparkökuhús
28 Hreindýr um jólin
32 Vínin með jólamatnum
34 Hnetusteik frá Friðrik V.
40 Lísa og Palli í Jólasveinabæ
42 Jól í útlöndum
44 Jólatónlist tónlistamanna
48 Einar Már Guðmundsson
52 Gömul jólakort
56 Jólabjórinn 2012
58 Sætar sörukökur
62 Ekta ensk jólakaka
66 Þjóðbúningar og skart
73 Stáss um hátíðirnar
74 Jólahús Birnu G.
76 Jól í Kaupmannahöfn
78 Kalkúnn er hátíðarmatur
80 Aðventukransar í Garðheimum
82 Jólabarnið Lína
86 Árbæjarsafn um jólin
94 Jólabíó við allra hæfi
100 Nói Síríus og jólanammið
106 Smákökur og aftur smákökur
111 Rithöfundajól hjá Yrsu Þöll
114 Íslensk jólatíska í ATMO
116 Jólaostar
118 Leiftur frá liðnum jólum
121 Ný íslensk spil fyrir jólin
123 Jólastofa Ástu og Valgeirs
124 Jólaís frá Kjörís
126 Viðburðadagatal í desember
Jól 2012