Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 4

Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 4
4 Jólablað Morgunblaðsins Í íslensku jólahaldi eru hefðirnar ákaf- lega sterkar. Nýjungar erlendra menn- ingarstrauma eru oft fljótar að ná fót- festu hér á landi og í opnu samfélagi er slíkt eðlileg þróun. En að sama skapi eru hefðirnar góðar, svo framarlega sem þær þrælbinda okkur ekki. En hvað sem ytri um- gjörð líður þá er boðskapur jólanna alltaf hinn sami: sagan af fæðingu frelsarans sem er allt í senn; falleg, einföld og einlæg. Ég hef séð mestu rökhyggjumenn breytast í jólabörn um hátíðirnar, barnatrúin er okkur svo nauðsyn- leg,“ segir sr. Halldór Reynisson sókn- arprestur í Hruna. Skilaboð til allra mannanna barna „En það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina.“ Svo hljóðar upphaf sög- unnar og við þekkjum öll framhaldið. Eigi var rúm fyrir þau Jósep og Maríu í gistihúsinu og því héldu þau til fjárhússins á Betlehems- völlum þar sem María ól son þeirra frumget- inn. Og einmitt þar hittu fjárhirðarnir foreldr- ana fyrir samkvæmt leiðsögn engilsins. „Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Krist- ur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu.“ Þetta voru skilaboðin til hirðingj- anna og raunar allra mannanna barna eftir það. „Jólaguðspjallið er saga um fegurð og góð- vild,“ segir sr. Halldór „Í fátækt sinni og um- komuleysi eru Jósep og María á flótta þegar hún elur soninn og fæðing barns er alltaf æv- intýri „Fegurð og góðvild, hvað er umkomu- lausara í rangsnúnum heimi – en þó mest af öllu og mun lifa allt segir skáldið Snorri Hjart- arson í ljóði sínu Ung móðir. Þar bendir hann okkur á þennan andlega þátt sem við þurfum stundum til að lifa af; og þannig er trú bernsk- unnar. Trú á að lífið hafi tilgang og sé gott í sakleysi sínu. Sem það og er,“ segir Halldór og minnir í þessu sambandi á að jólin séu allt í senn hátíð trúar, fjölskyldu og hefða. Í veröld merkrar sögu og fortíðar Sr. Halldór Reynisson hóf prestskap fyrir um 26 árum. Fyrst í Hruna og síðar varð hann prestur við Neskirkju í Reykjavík. Undanfarin ár hefur hann sinnt fræðslumálum hjá Bisk- upsstofu. Og svo sannast lögmálið um að sagan endurtaki sig. Síðasta haust tók Halldór tíma- bundið við prestþjónustu í Hruna og sinnir nú kristnihaldi á Flúðum og nærliggjandi byggð- um í uppsveitum Árnessýslu. Halldór segist raunar fljótt eftir að hann kom að Hruna í byrjun árs 1987 hafa kynnst þar í sveitinni ær- legu og góðu fólki sem hafi gefið honum innsýn í veröld merkrar sögu og fortíðar. „Áður var ég í nokkur ár forsetaritari í emb- ættistíð Vigdísar Finnbogadóttur. Í því starfi hitti ég stundum þjóðhöfðingja og fólk í áhrifa- stöðum. Ungum, óþroskuðum og hégómagjörn- um fannst manni kannski merkilegt að vera í glæsiveislum með fínu fólki. Svo komst maður að raun um að sumt af því var satt að segja hvorki mikilla sanda né sæva. Hins vegar hitti ég hér í sveitinni stundum fólk með sterka skapgerð sem var um margt einstakt. Fyrir ungan sveitaprest var þetta mikil uppgötvun,“ segir Halldór. Bætir við að eftir því sem árin líði leiti sagan og fortíðin sterkar á sig. Kynslóð fram af kynslóð „Vitur maður hér í sveitunum sagði ein- hverju sinni á gamals aldri að líf sitt væri ef til vill eins og ferðalag á Willis-jeppanum sem hann átti. Á æskuárum horfði maður í gegnum framrúðuna á veginn fram undan, á miðjum aldri út um hliðarrúðurnar en þegar árin færð- ust yfir horfði hann í gegnum afturgluggann yfir farinn veg,“ segir sr. Halldór og heldur áfram. „Líklega geta margir sagt svipaða sögu. Líta þá til bernskunnar og vilja halda sín jól með hennar svip. Í því liggur meðal annars skýringin á því að jólasiðir Íslendinga eru svip- aðir kynslóð fram af kynslóð. Eigi að síður hafa þó komið inn nýir siðir svo sem Coca-Cola jólasveininn sem er einskonar afbökun á heil- ögum Nikulási.“ Munurinn á kirkjustarfi í sveit og borg er talsverður, segir sr. Halldór. Í dreifbýlinu er kirkjan afar stór þáttur í samfélagi fólksins. Mörgum sé í mun að halda kirkjunni sem hluta af menningararfinum og hann hafi líklega haldist betur í sveit en borg. Í þéttbýlinu hafi orðið meira hefðarrof í samfylgd fólks og trú- ar. „Í dreifbýlinu hafa prestar mikilvægum skyldum að gegna. Oft eru þeir – ásamt heil- brigðisstarfsfólki og kennurum – þeir einu sem hafa það hlutverk að sinna heill og hamingju fólks. Sálgæsluverkefnin eru mörg. Raunar mun fleiri en á fyrstu prestskaparárum mín- um, kannski vegna þess að fólk er opnara nú en áður gagnvart því að leita sér hjálpar þegar á móti blæs og ég sjálfur reyndari.“ Sterkur þáttur í menningunni Trúin vekur jafnan sterkar tilfinningar. Umræður á hennar nótum geta orðið átaka- miklar. Sumstaðar hefur t.d. verið mörkuð sú stefna að halda skuli trúnni og boðskap hennar utan skólanna. Um það hafa verið skiptar skoðanir. Sr. Halldór segir slíkt ef til vill skilj- anlegt þar sem lífsviðhorf eru ólík. „Hins vegar er sjálfsagt að nemendur í grunnskólum, hvað sem viðvíkur lífsskoð- unum, fræðist um hinn kristna arf, svo sterkur er hann í allri okkar menningu. Á sama hátt finnst mér að allir eigi að læra um hinn heiðna sið og önnur trúarbrögð með vísan til sög- unnar,“ segir Halldór Hrunaprestakall er víðfeðmt. Sóknarkirkj- urnar í uppsveitum Árnessýslu, sem því til- heyra, eru fjórar, það er Hruni, Hrepphólar, Ólafsvellir og Stóri-Núpur. Sálirnar eru á þrettánda hundrað. Halldór þarf því að sinna allmörgum messum um hátíðarnar og fram- undan er törn við ræðuskrif og annan und- irbúning. Alkunna er að oft flétta kennimenn fréttir dagsins saman við boðskapinn. Tala þannig inn í aðstæður dagsins. En hver hefur sinn stílinn og sjálfur segist sr. Halldór hins vegar vilja halda sig við guðspjallið sjálft í jóla- ræðum sínum. „Satt að segja finnast mér jólin ekki vera á plani þessara daglegu frétta, sem oft eru frek- ar neikvæðar. Jólin snúast um góðar fréttir, fagnaðarerindi. Gríska orðið fyrir það, ev- angelion, merkir bókstaflega góðar fréttir. Barnið merkir að við erum ekki ein í tilgangs- leysinu „utan við seilingu Guðs“ svo notað sé orðalag Hannesar Péturssonar skálds. Það fjallar um vonina og góðvildina. Þetta er sá tími og þeir dagar þegar okkur á að líða vel, þó vissulega geti þetta líka verið mörgum erfiður tími, svo sem í kjölfar áfalla,“ segir Halldór og heldur áfram. „En boðskapur jólanna er að lífið sé gott. Þetta eru dagarnir þegar fólk setur deilumálin – pexið og ruglið – til hliðar um stundarsakir. Tekur svo kannski þráðinn upp aftur á annan í jólum. En þrátt fyrir allt; í stutta stund á há- tíðisdögunum opnar fólk þarna fyrir tærleik- ann í hjartanu.“ Eiga góðvild í hjartanu Halldór nefnir að á dögunum hafi hann hitt norður í landi gamla konu og átt við hana ánægjulegt samtal. Hún hefði um dagana hlúð að öllu því sem gott má teljast, eins og viðmæl- andi okkar kemst að orði. „Hún er alin upp í boðskapnum að elska náungann og styðja við þurfandi. Sumir eiga einfaldlega meiri góðvild í hjartanu en aðrir og þeir gefa okkur fordæmi. Vissulega er hægt að láta lífsreynslu fylla sig biturð og láta áföllin brjóta sig niður. Aðrir nýta reynsluna sér til góðs. Sannleikurinn er nefnilega sá að maður þarf einfaldlega að þjálfa sig í góðvild í garð annara. Í því efni eru jólin áminning og góður upphafspunktur.“ sbs@mbl.is Þá opnar fólk fyrir tærleika í hjarta Mestu rökhyggjumenn breyt- ast í jólabörn um hátíðirnar, segir sr. Halldór Reynisson sóknarprestur í Hruna. Barnatrúin er okkur nauðsyn- leg. Hátíð trúar, fjölskyldu og hefða. Jólin áminning og góð- ur upphafspunktur góðvildar. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson ’Satt að segja finnst mér jólin ekki vera á plani þessara dag- legu frétta, sem oft eru frekar neikvæðar. Jólin snúast um góð- ar fréttir, fagnaðarerindi. Gríska orðið fyrir það, evangelion, merkir bókstaflega góðar fréttir. Barnið merkir að við erum ekki ein í tilgangsleysinu. Prestur „Ég hef séð mestu rökhyggjumenn breytast í jólabörn um hátíðirnar, barnatrúin er okkur svo nauðsynleg,“ segir sr. Halldór í Hruna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.