Morgunblaðið - 24.11.2012, Síða 6

Morgunblaðið - 24.11.2012, Síða 6
H ér á Íslandi eru það aðallega skógrækt- arfélögin sem rækta þessi innlendu tré sem seld eru,“ segir Einar. „Skógarbændur eru reyndar farnir að koma að þessu í auknum mæli en Skógrækt ríkisins hefur að mestu dregið sig út af þessum mark- aði í seinni tíð. En hver sem rækt- andinn er, þá er sá munur á inn- lendum trjám og erlendum að hérlendis fer fram umhverfisvænni ræktun,“ bendir Einar á. „Þetta er meiri verksmiðjufram- leiðsla erlendis og við erum ekki að nota eiturefni og áburð í sama mæli eins og gert er til dæmis í Dan- mörku, sem er upprunaland flestra innfluttu trjánna. Við erum sem bet- ur fer að mestu leyti laus við það hér. Þá má bæta því við að það fylgir því einnig mikil mengun að flytja trén yfir hafið,“ bætir Einar við. Tré úr útivistarskógum „Trén sem seld eru á vegum skóg- ræktarfélaganna eru flest úr útivist- arskógum þeirra og það færist sífellt í vöxt að fólk mæti sjálft á aðvent- unni, velji sér tré og höggvi,“ segir Einar. „Hér á höfuðborgarsvæðinu fer fólk aðallega í Heiðmörk og Hamrahlíðarsvæðið við Úlfarsfell, en yfirleitt bjóða um fimm félög upp á þessa þjónustu landið um kring. Þegar nær dregur jólum setjum við upp lista á heimasíðu okkar, www.skog.is, yfir þá staði þar sem boðið er upp á þetta.“ Auk framangreindra svæða má nálgast tré í Hafnarfirði við Kald- árselsveg skammt frá Hvaleyr- arvatni. Þá sækja Garðbæingar sér tré í nokkrum mæli í Smalaholt við Vífilstaðavatn. Loks eru félög vítt og breitt um landið sem bjóða upp á að fólk komi og finni sér tré. Furan sífellt vinsælli Af þeim trjátegundum sem rækt- aðar er hérlendis segir Einar Örn að vinsælastar séu stafafuran og rauð- grenið. „Stafafuran hefur heldur verið að sækja í sig veðrið seinni árin og verður alltaf vinsælli og vinsælli. Menn eru jafnvel farnir að tala um hana sem íslenska jólatréð“, bætir hann við. Sumir hafa að sögn Einars veigrað sér við að velja stafafuruna fyrst því hún hefur ekki þetta týp- íska jólatrjáalag — ekki jafn reglu- legur þríhyrningur að sjá og greni- trén eru oft. En svo þegar fólk hefur einu sinni prófað furuna þá vill það oft ekkert annað. Aðspurður um ástæður þessa svarar Einar því til að líkast til sé barrheldni furunnar að þakka. „Hún heldur barrinu betur en nokkurt annað tré sem ræktað er hér á landi. Sumir segja að ef vel er hugsað um hana og þess gætt að vökvi sé á fætinum, þá sé hægt að nota furuna á páskunum líka,“ segir Einar Örn og kímir við. „Svo fyllir hún auðvitað húsið af jólailmi; það fylgir henni ákaflega góður ilmur, bæði sterkari og betri en af öðrum barrtegundum. Það er því oft talað um að furan komi með jólin í húsið, þegar tréð er komið inn og ilmurinn sem því fylgir.“ Fjallaþinurinn er fallegur Þá er rauðgrenið alltaf vinsælt, bendir Einar Örn á, og einnig hafa skógræktarfélögin boðið upp á blá- greni, sitkagreni og fjallaþin. „Fjallaþinurinn er líka mjög fal- legur og barrheldinn, auk þess sem hann er talsvert svipaður að sjá og danski norðmannsþinurinn. Reynd- ar er liturinn aðeins frábrugðinn, hann er heldur bláleitari, en annars eru þetta ákaflega svipuð tré, enda eru þau skyld. En það er hinsvegar ekki eins mikið af honum og hinum tegundunum og hann þar af leiðandi fáséður hjá hefðbundnum jólatrjáa- sölum; það er meira um að fólk sé að velja hann úti í skógi.“ Einar Örn telur þó að hann eigi eftir að sækja í sig veðrið á næstu ár- um enda séu margir áhugasamir um að prófa sig áfram með ræktun á honum og að finna góð kvæmi sem henta íslenskum aðstæðum og þá verður hægt að markaðssetja hann í auknum mæli sem jólatré.“ Meðhöndlunin mikilvæg Um framangreindar tegundir gilda í öllum aðalatriðum sömu lög- málin þegar kemur að umhugsun og umhirðu. „Rauðgrenið þarf reyndar að hugsa aðeins meira um því þeirri tegund er hættara við að fella barrið. En annars gilda sömu lögmálin um öll jólatrén. Þau skal geyma á köld- um stað áður en þau eru sett upp, setja þau út á svalir eða út í garð eft- ir aðstæðum, og gott er að hafa það í fötu með vatni meðan tréð er þar úti. Loks er vert að hafa í huga þegar tréð er tekið inn að saga aðeins neð- an af fætinum, tvo til fimm senti- metra, til að opna fótinn. Trjákvoðan lokar alltaf fyrir sárið sem myndast þegar tréð er sagað úti í skógi en með því að saga af fætinum þegar tréð er komið inn í stofu opnast fyrir æðar trésins sem soga til sín vatn.“ Einar bætir því við að þegar tréð er fyrst sett í fótinn er gott að hafa heitt vatn í fætinum, jafnvel sjóðandi heitt, því það liðki líka fyrir vatns- upptökunni. „Og því betri sem vatnsupptakan er þeim mun meiri líkur eru jú á því að barrið haldist lengi og vel. Þaðan í frá er svo fínt að að fylla reglulega á með volgu vatni og gæta þess vel að ekki tæmist á milli. Þessu þarf að huga vel að því trén geta verið býsna frek til vatns- ins í fyrsta kasti. Það er ekki óal- gengt þegar sett er snarpheitt vatn í fótinn í fyrsta sinn að það hverfi á skömmum tíma en svo kemst meira jafnvægi á vatnsupptökuna þegar á líður.“ Þess virði að nostra við tréð Fyrir þá sem finna draumatréð sitt í fyrra fallinu og þurfa að geyma það í einhvern tíma áður en það er sett upp þarf engar áhyggjur að hafa af trénu, segir Einar. „Það væsir ekki um tréð svo fremi sem það er geymt í kulda þangað til það er tekið inn og skreytt. Geri hörkufrost er gott að taka tréð inn með fyrirvara, koma því fyrir í bað- karinu eða sturtubotni og þíða það með því að láta renna aðeins á það. Það er jú þess virði að nostra svolítið við sjálft jólatréð! Hvað barrheldn- ina varðar þá eru þinurinn og stafaf- uran sérstaklega meðfærileg á með- an grenið, einkum rauðgrenið, eiga það til að fara úr nálum. „Samt á það ekki að vera neitt vandamál svo fremi sem hugsað er um tréð og þess gætt að alltaf sé vatn á því,“ segir Einar Örn. „Þannig dregur maður mjög úr barrfallinu. En trén standa svosem ekki nema í tiltölulega stuttan tíma svo að það kemur ekki að sök þó að fáeinar nálar falli þegar líður á jólahátíðina.“ Ljúf stund við leit að tré Sérstaðan hjá skógræktarfélög- unum er sú, segir Einar, að vissu- lega er upplifunun önnur að fara út í skóg, til dæmis með fjölskyldunni, kúpla sig aðeins út úr jólastressinu, njóta kyrrðar og fá ferskt loft í lung- un og leita að draumatrénu. „Þá hefur fólk úr fjölbreyttari trjám að velja en á hefðbundnum sölustöðum þar sem trén eru flest lík að gerð og lögun,“ segir Einar. „Við höfum séð fólk koma úr skóginum með tré sem okkur myndi aldrei detta í hug að bjóða á almennum markaði. Ég man til dæmis eftir konu sem fann þrítoppa grenitré í Brynjudalsskógi og var alsæl með það. Henni fannst það frábært vegna þess að nú gat hún notað alla þrjá toppana sína á eitt og sama tréð.“ Einar bendir ennfremur á að við leit að jólatré kynnist fólk þeirri úti- vistarparadís sem skógarnir eru á aðventunni og komi því aftur til að njóta þar útiveru á öðrum tímum ársins.„Við sjáum oft fólk sem kom í skóginn í jólatrjáaleit í desember gera sér ferð þangað aftur næsta sumar.“ Loks má nefna að með því að kaupa jólatré af skógræktarfélög- unum er fólk að styrkja ræktun úti- vistarskóga og uppbyggingu aðstöðu í þeim. „Fyrir hvert jólatré sem skógræktarfélögin selja er hægt að gróðursetja 30-40 ný. Þannig er fólk í raun að stuðla að betri útivist- arsvæðum fyrir sjálft sig og afkom- endur sína. En í stuttu máli sagt þá er það önnur og meiri upplifun en að fara í verslun og velja þar tré, vil ég meina, og börnunum þykir ólíkt skemmtilegra að leita, í náttúrulegu umhverfi, að hinu eina rétta jólatré.“ jonagnar@mbl.is Morgunblaðið/RAX Skógur Gott er að kúpla sig út úr jólastressinu, fá ferskt loft í lungun og leita að draumatrénu, segir Einar Örn. Morgunblaðið/Kristinn Heiðmörk Í jólahaldi margra er siður að fara í skógræktarsvæðin í nágrenni borgarinnar og fella jólatré. Hið eina rétta jólatré ’Meiri upplifun en að fara í verslun og velja þar tré ... og börnunum þykir skemmtilegra að leita, í náttúrulegu umhverfi, að hinu eina rétta jólatré Ekki er ofsagt að jólatré séu einn mikilvægasti þátturinn í jólahaldi landans, og þó víðar væri leitað – alltént hvað skreytingaþáttinn varðar. Einar Örn Jónsson hjá Skógræktarfélagi Ís- lands er viskubrunnur þegar kemur að jóla- trjám, umhirðu þeirra og öðru. 6 Jólablað Morgunblaðsins
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.