Morgunblaðið - 24.11.2012, Síða 14
14 Jólablað Morgunblaðsins
Laugavegi 53, s. 552 3737 – Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Kjóll 7190 Peysa 6390
Jakki 9895 Sk
yrta frá 4850
Peysa 6590 Bux
ur frá 4750
V
örurnar eru frá merki
sem kallast Affari og er
sænskt. „Þetta eru af-
skaplega vandaðar og
fallegar vörur,“ segir
Sigríður, eða Systa eins og hún er
kölluð. „Þarna á meðal eru handgerð
kerti frá bænum Osby í Svíþjóð,
ásamt úrvali kerta annars staðar frá
í Evrópu. Gjafa- og heimilisvaran er
annars framleidd í Svíþjóð, Dan-
mörku og Indlandi, en þaðan eru til
dæmis afar snotrir handgerðir vegg-
rammar. En almennt er yfirbragð
varanna frá fyrirtækinu ákaflega
fallegt og rómantískt og ólíkt flestu
sem hefur fengist hér á landi hingað
til.“
Tilbúið úr endurnýttu efni
Stór hluti vöruúrvalsins frá Af-
fari er búinn til úr eldra og áður
notuðu hráefni. Meðal jólavaranna í
ár eru til dæmis falleg hreindýr
sem vafin eru úr teppaafgöngum.
Þá má nefna kertastjaka sem voru
áður stólfætur og könnur úr endur-
unnu smíðastáli með handfangi úr
steypustyrktarjárni. „Þá byggist
hönnunin á mörgum vörum þeirra á
gömlum hugmyndum, samanber
vatnsflöskurnar sem minna á vatns-
brúsana úr seinna stríði, með bandi
sem minnir á hálsband og útlitið er
allt eins og þær séu komnar til ára
sinna, þótt glænýjar séu.“ Það á
reyndar við um margar vörur frá
þeim, bendir Systa á, að leitað er í
gamla tímann eftir útliti og áferð,
rétt eins og í hlutunum búi dálítil
saga, eins og er svo móðins nú um
stundir.
Með heildsöluna í bílskúrnum
Vörurnar hafa ekki fengist hér áð-
ur, en hvaðan kom Systu hugmyndin
að taka að sér umboðið? „Ég rakst á
þetta merki gegnum annað fyrirtæki
sem ég kem að, en það tiltekna fyr-
irtæki átti til fáeinar vörur frá Affari
og notaði til skrauts. Ég staldraði
við þessar fallegu vörur, varð mér
undir eins úti um símanúmerið og
setti mig í samband. Fljótlega eftir
þetta var ég svo komin með umboðið
fyrir vörurnar hér á landi.“ Hlutirnir
hafa gerst hratt síðan og í dag nær
dreifing litlu heildsölunnar, sem
Systa rekur úr bílskúrnum mínum,
til ellefu blóma- og gjafavöruversl-
ana í Reykjavík og víðsvegar um
landið.
Öndvegis ilmkerti
Kertin frá Affari eru að sama
skapi framleidd með gæði í huga,
eins og Systa útskýrir. „Í kertunum
er sojavax eins og notað er við
arómaþerapíur, sem tryggir hreinni
bruna, og í ilmkertunum er paraf-
ínolía. Kertin brenna líka mjög vel,
þau duga í um 60 klukkustundir og
brenna alveg niður í stað þess að
hola myndist í kertið þegar kveik-
urinn brennur og svo situr maður
upp með fullt af afgangs vaxi, eins
og stundum vill verða. Svo eru
kertakrukkurnar svo verklegar, með
loki og hvaðeina, að þegar kertið er
búið er hægt að nota hana undir ým-
islegt – bómullina á baðinu eða bara
hvað sem vera skal.“
Jólavörur með rómantískum blæ
Frá Affari kemur líka myndarleg
lína af jólavörum, sem Systa segir
engu að síður geta gengið allan árs-
ins hring. „Yfirbragðið er í senn
náttúrulegt og dálítíð rómantískt, og
þessi litríka jóla- og gjafavara gerir
fólki auðvelt að skapa persónulegan
stíl. Heimilið verður einhvern veg-
inn áhugaverðara þegar búið er að
nostra svolítið við það, og ekki spillir
þegar ilmur af jólum liggur í loft-
inu.“ Mikið af skrautinu er úr gleri
með antikáferð, og þær vörur sem
eru unnar úr viði eru líka með dálítið
gamaldags yfirbragði, og má í því
sambandi nefna handmálaðar tré-
kúlur. „Þá erum við með úrval af af-
skaplega huggulegum lituðum
kertaglösum sem gefa frá sér hlý-
lega og fallega birtu þegar kveikt er
á kertunum.“
Hljómar eins og einmitt það sem
þarf inn á heimilið í skammdeginu,
ekki síst jólamánuðinum.
www.affari.nu
jonagnar@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Heimilislegt „Vörurnar eru oft eins og saga búi í þeim, þó nýjar séu,“ segir Sigríður Jónsdóttir.
Endurnýtt Þessi fallegu jólahreindýr eru úr gömlum teppaafgöngum.
Jólaljós Kertin eru úr vönduðu sojavaxi sem tryggir hreinni bruna.
Rómantískar vörur
fyrir jólin – og allt árið
Það tilheyrir oftar en ekki jólahaldinu að finna eitthvað fallegt til að skreyta
híbýlin með. Sigríður Jónsdóttir rekur litla heildsölu með huggulegum
heimilisvörum sem framleiddar eru meðal annars úr endurnýttum efniviði.
’Heimilið verður áhuga-
verðara þegar búið er að
nostra svolítið við það, og
ekki spillir þegar ilmur af
jólum liggur í loftinu.
Hátíðarskap Vörurnar frá Affari gefa hlýlegt yfirbragð og hátíðlegt.