Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 18
18 Jólablað Morgunblaðsins
Tilvalin jólagjöf
Snyrti-, nudd- og fótaaðgerðarstofa
Langholtsvegi 17 Sími 553-6191
Fyrir pabba og mömmu, afa og ömmu
eða aðra sem þér þykir vænt um.
Rauðu jólagjafakortin
eru komin í sölu, með 20-25% afslætti og gilda
í 3 mánuði. Eftir það gildir kortið sem inneign
Nánari upplýsingar á
eygló.is
He i l s u l i n d
Í
sumar og haust hafa starfs-
menn Ásgarðs, verndaðs
vinnustaðar í Mosfellsbæ,
unnið hörðum höndum og
markvisst að framleiðslu
muna sem til sölu verða á hinum
árlega jólamarkaði vinnustaðarins,
sem haldinn verður 1. desember
næstkomandi.
„Við ætlum að halda markaðinn
eins og venjulega með pompi og
prakt. Þar verður urmull góðra
muna á boðstólum,“ sagði Óskar
Albertsson, kokkur í Ásgarði og
talsmaður vinnustaðarins.
Fullt út úr dyrum
Á markaðinum verða til sölu leik-
föng sem unnin hafa verið í tré,
leðurvörur, ýmiss konar munir
unnir í tré og slípaðir steinar svo
nokkuð sé nefnt. Af leikföngunum
má nefna flugvélar, skip og
dráttarvélar í öllum stærð-
um og gerðum.
„Munirnir eru allir
unnir hér, þeir eru
mjög eigulegir
enda hand-
verkið mjög fal-
legt,“ sagði Óskar
í samtali við Morg-
unblaðið. „Ég býst
við að hér verði fullt
út úr dyrum á mark-
aðinum, eins og venju-
lega. Við munum bjóða
upp á kaffi og heitt súkku-
laði og kökuhlaðborð á
vægu verði. Við njótum þar
velvilja bakara sem stutt
hafa við okkur og gefið
okkur margt af góðu bakkelsi.
Gestir okkar geta gætt sér á kræs-
ingunum fyrir gott verð.“
Leggja hug og hjarta í vinnuna
Ásgarður var stofnaður 1993 og
var framan af með starfsemi sína í
Lækjarbotnum upp af Reykjavík,
en flutti síðar í núverandi húsnæði í
Álfafosskvosinni í Mosfellsbæ. „Hér
vinna 40 manns á öllum aldri undir
leiðsögn sjö verkstjóra. Sumir hálf-
an dag en aðrir allan daginn.
Hér er gleðin alltaf við völd.
Það leggja allir allt sitt í
vinnuna, hug og hjarta.
Hér hefur margt
meistarastykkið
farið í gegn,“ segir
Óskar, sem er einn
af stofnendum Ás-
garðs.
Hver dagur að Ás-
garði byrjar með söng
en með því hafa stað-
armenn blásið frá sér
áhyggjum hversdagsins
og sungið inn glaðværð og
afslappandi andrúmsloft
sem ríkir í Ásgarði. Þar
er unnið að því að
þroska hinn mann-
eskjulega þátt vinnunnar. Í því
felst að framleiðslan er löguð að
getu hvers og eins og honum hjálp-
að við að ná valdi á hugmyndum og
verkfærum og vinna með þau. Ekki
er litið á fötlun sem vandamál í Ás-
garði heldur sem möguleika og að í
hverri manneskju sé heilbrigður
kjarni sem vinna megi með. Þannig
er reynt að aðstoða fatlaðan ein-
stakling við að vinna með fötlun
sína til að hæfileikar hans njóti sín
sem best.
Ágóðinn í ferðasjóð
„Jólamarkaðurinn er orðin hefð
hjá okkur og við hvetjum fólk sem
flest að líta endilega til okkar,
þiggja af okkur góðar veitingar og
fallega muni. Tekjurnar af mark-
aðinum notum við til að byggja upp
staðinn og lítill hluti er lagður í
ferðasjóð. „Við förum alltaf í eina
vorferð á hverju ári. Þetta eru
dagsferðir, í sumar fórum við til
dæmis um Reykjanesið og skoð-
uðum það. Við höfum líka farið
austur fyrir fjall og á Vesturlandið.
Auk þessa skreppum við stundum í
fjöruferðir og sækjum okkur við-
fangsefni til vinnslu,“ segir Óskar
að lokum. agas@mbl.is
Margt meistara-
stykkið í Mosfellsbæ
Fallegt handverk og
urmull muna á árleg-
um jólamarkaði Ás-
garðs í Mosfellsbæ.
Syngja glaðværðina
inn í byrjun hvers dags.
Landbúnaður Traktor úr tré dregur kerruna og hlassið.
Dráttarklár Ekkert stoppar góða smiði fái þeir góða hugmynd.
Ásgarður „Jólamarkaðurinn er orðinn hefð,“ segir Óskar Albertsson.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Listasmiðir Í Ásgarði vinna fjörutíu manns undir leiðsögn sjö verkstjóra. Vinnu er þannig háttað að allir njóti sín á eigin forsendum því allir eru hæfileikafólk, hver á sinn hátt.