Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 30

Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 30
Listilegur SLF býður upp á jólakúlur og -óróa ár hvert. Viðfangsefnið að þessu sinni er jólasveinninn Stúfur sem er hönnun Þórunar Árnadóttur. J ólin eru tími kærleika. Þetta er sá tími sem fólk vill láta gott af sér leiða og hjálpa þeim sem þurfa á aðstoð að halda. Til eru fjölmörg góðgerð- arsamtök og styrktarfélög sem bjóða upp á fallegar og skemmti- legar vörur til styrktar sínu félagi. Jólin eru frábær tími til að styðja við þau og ein leið til þess er að kaupa einhverjar af þeim vörum sem þau bjóða og setja í jólapakkana. Með því ertu ekki einungis að gefa þeim sem þú afhendir gjöfina heldur einn- ig einhverjum öðrum. Blaðamaður kynnti sér vörur þriggja félaga sem bjóða upp á fal- legar gjafavörur sem tilvaldar eru í jólapakka. Lista yfir fleiri félög má finna á vefsíðu Almannaheilla. Gef- um margfalt um jólin. Stuðningur í ýmsum myndum Hlutverk Krabbameinsfélags Ís- lands er að styðja og efla í hvívetna baráttuna gegn krabbameini hér á landi. Það er gert m.a. með því að fræða og stuðla að þekkingu, efla rannsóknir, stuðla að leit að krabba- meinum á byrjunarstigi, vinna að bættri meðferð og umönnun þessara sjúklinga og styðja við þá og að- standendur eins og við getum. Að auki leggur starfsfólk Krabbameins- félagsins áherslu á að berjast fyrir bættum hag þessa hóps eins og því er unnt. Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, seg- ir styrktaraðila í lykilhlutverki og án þeirra væri lítið gert. Hún segir þetta vera fjölbreyttan hóp og stuðningurinn birtast í margvíslegri mynd. „Mér finnst Íslendingar sýna það og sanna, fyrirtæki, einstaklingar og félög, að þeir vilja standa saman og leggja hver öðrum lið þegar á þarf að halda. Við erum þakklát fyrir þann stuðning sem okkur er veittur og gætum þess að nýta hann sem allra best og árangursríkast.“ Hjá Krabbameinsfélaginu er hægt að fá ýmsar vörur til styrktar félaginu. Einnig er hægt að gerast velunnari félagsins og hafa margir hverjir kosið að gefa vinum og ætt- mennum þá jólagjöf. Það er að greiða mánaðarlega í velunnarasjóð Krabbameinsfélagsins fyrir hönd þeirra. Á vefsíðu félagsins, krabb.is, er hægt að fá ýmislegt fallegt í jóla- pakkana. Sælgæti, skart og hrærivél eru aðeins lítið brot af því. Velvild skiptir sköpum Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur í yfir 60 ár verið frumkvöðull í þjónustu við fötluð börn og ung- menni. Meginmarkmið félagsins er að stuðla að aukinni orku, starfs- hæfni og velferð fólks með fötlun, einkum barna. Helstu verkefni félagsins felast í rekstri Æfingastöðvarinnar þar sem fram fer umfangsmesta sjúkra- og iðjuþjálfun barna á landinu og rekstri sumar- og helgardvalar fyrir fötluð börn og ungmenni í Reykja- dal. Einnig stendur félagið að rekstri sumardvalar á Stokkseyri í samstarfi við foreldrafélag Kletta- skóla. „Sú mikla velvild sem Styrkt- arfélagi lamaðra og fatlaðra hefur verið sýnd í gegnum tíðina hefur skipt sköpum fyrir starfsemina og gert félaginu kleift að skapa þá um- gjörð sem það starfar við í dag,“ seg- ir Berglind Sigurgeirsdóttir, mark- aðs- og kynningarstjóri SLF. Allt uppbyggingar- og þróun- arstarf félagsins byggist á fé sem safnað er í gegnum fjáraflanir eða hlotnast félaginu á annan hátt svo sem gjafir og styrkir frá ein- staklingum, fyrirtækjum og fé- lagasamtökum. SLF býður upp á gullfallegar jólakúlur og jólaóróa og hafa fremstu listamenn landsins hannað hlutina, en nýjar kúlur og óróar eru seld hver jól og er þetta því skemmtilegur gripir til að safna. Kærleikskúla síðasta árs var hönnuð af friðelskandi Íslandsvininum Yoko Ono, en í ár er það listakonan Hrafn- hildur Árnadóttir, einnig þekkt sem Shoplifter, sem hannar kúluna. Kúl- an er kynnt hvert ár við hátíðlega at- höfn í Listasafni Reykjavíkur og af- hent verðugri fyrirmynd úr hópi fatlaðra. Viðfangsefni jólaórans í ár er jólasveinninn Stúfur. Óróann sjálfan hannar í ár vöruhönnuðurinn Þórunn Árnadóttir og kvæðið sem fylgir með er eftir Braga Valdimar Skúlason, kenndan við Baggalút. Óróinn og kúlan eru til sölu frá 5.-19. desember og allar nánari upplýs- ingar eru á www.kaerleikskulan.is og www.jolaoroinn.is. Vonin er sígild Gréta Ingþórsdóttir er fram- kvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. „Eftir að heilaæxli lagði dóttur mína, tæplega níu ára, að velli fyrir fimm árum fékk ég hálsmen að gjöf frá skyldmenni í Svíþjóð. Það var keypt af sænska Barncancerfonden, sem er svipað félag og SKB. Ég var þá komin í stjórn SKB og lagði til að félagið gerði eitthvað svipað. Á sænsku hálsmenunum stendur HOPE – HOPE – HOPE en við ákváðum að hafa íslensku, ensku og latínu: VON – HOPE – SPES. Einn stjórnarmanna hafði góð tengsl við fyrirtæki erlendis sem útfærði óskir okkar fyrir sanngjarnt verð. Við lét- um fyrst framleiða silfur- og stál- hálsmen, síðan stálhring í leðuról og nýjasta viðbótin er leðurarmband með stálhring. Þessir gripir eru ein- faldir og fallegir og eiga alltaf við, hvort sem veikindi hafa barið að dyr- um eða einhver vill senda vini eða ættingja fallega kveðju. Vonin er sí- gild.“ Skartið sem Gréta nefnir er hægt að kaupa í gegnum heimasíðu félags- ins, www.skb.is, eða með því að hringja í félagið. Einnig er boðið upp á jólakort og faðirvorið innrammað. arnasigrun@gmail.com Morgunblaðið/Ómar Stuðningur Meginmarkmið Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra er að stuðla að velferð fólks með fötlun, einkum barna. Sindri, sem hér er með föður sínum Páli Guðbrandssyni, kemur í þjálfun á æfingastöðina tvisvar í viku. Líknarstarf Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, segir styrktaraðila í lykilhlutverki. Án þeirra væri lítið gert. Von SKB hefur látið hanna falleg hálsmen. Á menið er orðið von letrað á íslensku, ensku og latínu: VON HOPE SPES. Í jólapakkann SKB býður upp á ýmsan varning sem hægt er að kaupa til styrktar félaginu. Margfaldar jólagjafir Mikið og óeigingjarnt starf fer fram hjá ýmsum styrktarfélögum. Með því að kaupa varning af þeim til jólagjafa er verið að styðja við starfsemi þeirra. Mörg styrktarfélög bjóða upp á fallegar jólagjafir. Stuðningur Gripir SKB eru einfaldir og fallegir og eiga alltaf við, segir Gréta Ingþórsdóttir hjá Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Velunnarar Hjá Krabbameinsfélaginu fást ýmsar vörur. Einnig er hægt að ganga í hóp velunnara félagsins. 30 Jólablað Morgunblaðsins Guðlaugur A Magnússon Skólavörðustíg 10 101 Reykjavik www.gam.is S: 562 5222
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.