Morgunblaðið - 24.11.2012, Síða 46
46 Jólablað Morgunblaðsins
S
ú stund þegar jólin eru
hringd inn kemst aldrei
upp í vana. Í Hallgríms-
kirkju er hefð fyrir því
að aftansöngurinn á að-
fangadagskvöld hefjist á því að
Mótettukórinn gangi inn kirkjuna
syngjandi sálminn Nóttin var sú
ágæt ein. Þá er eins og himnarnir
opnist og á þeirri stundu hellist
yfir mig helg tilfinning, sem er
ólýsanleg,“ segir Björn Steinar
Sólbergsson, organisti við Hall-
grímskirkju.
Dagskrá alla aðventuna
Á aðventu og jólum verður fjöl-
breytt dagskrá í Hallgrímskirkju.
Fyrst ber auðvitað að nefna helgi-
haldið alla sunnudaga og um há-
tíðarnar. Hinn 2. desember, þegar
31. starfsár listvinafélags kirkj-
unnar gengur í garð, verður frum-
flutt verkið Jólaóratóría eftir Sig-
urð Sævarsson tónskáld. Verkið er
samið við latneskan texta Lúk-
asarguðspjalls. Flytjendur eru
kammerkórinn Schola Cantorum,
einsöngvarar og tónlistarhópurinn
Caput undir stjórn Harðar Áskels-
sonar. Björn Steinar verður við
orgelið.
Hinn 15. desember verða jóla-
tónleikar Drengjakórs Reykjavík-
ur í Hallgrímskirkju undir stjórn
Friðriks S. Kristinssonar. Næsta
dag, 16. desember, er svo komið
að tónleikunum Orgeljól þar sem
Björn Steinar leikur þekkt jólalög
frá 19. og 20. öld.
Árinu lýkur svo með hátíðartón-
leikum á gamlárskvöld þar sem
Björn Steinar leikur með tromp-
etleikurunum Ásgeiri Steingríms-
syni og Eiríki Erni Pálssyni og
Eggerti Pálssyni pákuleikara.
Bach er stærsta nafnið
Tónskáld aldanna hafa leitað í
fjársjóð sögunnar af fæðingu
barnsins í Betlehem.
„Í raun er sá brunnur sem við
organistarnir getum leitað í um
jólin ótæmandi. Sjálfur nam ég
orgelleik í Frakklandi og leita
mikið í smiðju franskra tónskálda.
Uppáhaldstónskáldið mitt er svo
Johann Sebastian Bach, stærsta
nafn kirkjutónlistarsögunnar, og
er tónlist hans áberandi í Hall-
grímskirkju á jólunum og allt árið
um kring,“ segir Björn Steinar
sem var organisti við Akureyr-
arkirkju í tuttugu ár. Hann kom
til Reykjavíkur 2006 og hefur síð-
an verið organisti í kirkju Hall-
gríms á Skólavörðuholtinu. Er
jafnframt skólastjóri Tónskóla
þjóðkirkjunnar.
Þrjátíu sálmar
„Í sálmabók þjóðkirkjunnar eru
um það bil 30 jólasálmar. Hver
öðrum fallegri. Auðvitað höfða
sálmarnir misjafnlega sterkt til
manns en kannski á Sjá himins
opnast hlið með sinn mjúka fögn-
uð sterkust ítök í mér. Þessi fal-
legi sálmur er eftir Björn Hall-
dórsson í Laufási en lagið er frá
14. öld,“ segir Björn Steinar og
bætir við:
„Mamma mín og amma sungu
báðar í kirkjukórnum á Akranesi.
Því vandist ég fljótt að sækja
messur. Þátttakan í helgihaldinu
er því mikilvægur hluti af jólunum
fyrir mig og mína.“
sbs@mbl.is
Með sinn mjúka fögnuð
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Organisti Í raun er sá brunnur sem við organistarnir getum leitað í um jólin ótæmandi,“ segir Björn Steinar.
’Auðvitað höfða sálm-
arnir misjafnlega sterkt
til manns en kannski á
Sjá himins opnast hlið
með sinn mjúka fögnuð
sterkust ítök í mér.
Milli hátíða flytur Mótettukór Hall-
grímskirkju Jólaóratoríu J.S. Bachs
í Eldborgarsal Hörpu. Tónleikarnir
verða 29. og 30. desember og eru
hápunktur í margháttaðri dagskrá
kórsins í ár, þar sem þrjátíu ára af-
mæli hans er fagnað. Kórinn flytur
verkið með Alþjóðlegu barokk-
sveitinni í Haag. Einsöngvarar eru
Herdís Anna Jónasdóttir sópran,
kanadíski kontratenórinn Daniel
Cabena, Benedikt Kristjánsson ten-
ór og hinn virti svissneski bassa-
söngvari Stephan MacLeod. Stjórn-
andi er Hörður Áskelsson.
Jólaóratórían er eitt af stórvirkj-
um barokktímans, samin fyrir
jólahátíðina 1734 og ætluð til flutn-
ings á stórhátíðardögunum frá jóla-
degi til þrettándans. Jólaboðskap-
urinn er rakinn í gleðisöngvum,
hugljúfum aríum og íhugulum
sálmum, segir í kynningu.
Um er að ræða flutning í svoköll-
uðum upprunastíl þar sem þess er
gætt að nálgast tónlist liðinna alda
út frá forsendum hennar sjálfrar.
Mótettukórinn hefur reglulega
flutt Jólaóratóríu Bachs á sl. árum.
Nú verður hún flutt í upprunastíl, í
fyrsta sinn í Hörpu með barokk-
sveitinni hollensku, sem skipuð er
úrvalshljóðfæraleikurum sem eru á
heimsvísu.
sbs@mbl.is
Hugljúfar
aríur og
sálmar
íhugunar
Söngur Módettu-
kórinn hefur
tekist á við
mörg metn-
aðarfull verk.
Eins og himnarnir
opnist, segir organisti
Hallgrímskirkju. Fjöl-
breytt tónlistarstarf í
kirkjunni á aðventu.
Jólaóratóría og Orgeljól
eru tónleikar Björns
Steinars.
Polarolje
Meiri virkni
Hátt hlutfall Omega 3
fitusýrur
Minn læknir mælir með
Polarolíunni, en þinn ?
Selolía, einstök olía
Gott fyrir:
Maga- og þarmastarfsemi
Hjarta og æðar
Ónæmiskerfið
Kolesterol
Liðina
Polarolían fæst í:
apótekum, Þín verslun Seljabraut,
heilsuhúsum, Fjarðarkaupum,
Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúð
Nú líka
í hylkjum
Nýtt!