Morgunblaðið - 24.11.2012, Qupperneq 50
Áhugaverðar bækur
berast á bókasafnið.
Úlfar, Gyrðir og Álfrún
eru á lista Hólmfríðar
Andersdóttur á Amts-
bókasafninu á Akureyri.
Nokkrar góðar bækur
að norðan. Rithöfundar
koma í heimsókn.
M
ér virðist sem
þetta verði góð
bókajól. Þær
bækur sem ég hef
kynnt mér – og
eru komnar til okkar í safnið – eru
áhugaverðar,“ segir Hólmfríður
Andersdóttir, bókavörður við
Amtsbókasafnið á Akureyri. Þar
hefur hún starfað um árabil og
þekkir því hvað landinn vill lesa.
Það finnst kannski allra best nú
fyrir jólin þegar nýjar bækur
koma út í hundraðavís.
Suðurglugginn,
Boxarinn og Milla
Í Amtsbókasafninu á Akureyri
eru keypt eintök af nánast öllum
íslenskum bókum sem koma út.
Gera margir sér því ferð í safnið
til að fá forskot á sæluna ef svo
má segja. Til að lifa af óbærilega
bið eftir því að leyndarmálið mikla
um hvað leynist í hörðu pökkunum
er upplýst á aðfangadagskvöld.
Á dögunum mættu konur úr
Soroptimistaklúbi Akureyrar á
upplestrarkvöld í safninu. Góður
rómur var gerður að efni þeirra
bóka sem þar var lesið úr og
Hólmfríður valdi.
„Ég les mikið, stundum eina bók
á kvöldi. Mér finnst raunar óhjá-
kvæmilegt annað en að fylgjast
með og lesa eitthvað af því sem
okkur berst,“ segir Hólmfríður. Af
bókum góðum sem koma fyrir
þessi jól nefnir hún Boxarann eftir
Úlfar Þormóðsson, sem er eins
konar ævisaga föður hans; skáld-
söguna Suðurgluggann eftir Gyrði
Elíasson og Millu eftir Kristínu
Ómarsdóttur.
Samband við Álfrúnu
„Milla Kristínar er ofsalega
skemmtileg. Þar fjallar hún um út-
för orðanna, hvernig sum eru nán-
ast gengisfelld eða dæmd til að
hverfa úr daglegu máli. Nú er til
dæmis ekki lengur talað um fóstr-
ur heldur er talað um leikskóla-
kennara,“ segir Hólmfríður. Bætir
við að sömuleiðis sé bók Álfrúnar
Gunnlaugsdóttur, Sigling um síkin,
ljómandi góð. Í Bókatíðindum er
síkjasiglingunni lýst sem uppgjöri
gamalla elskenda.
„Ég hef aldrei náð sambandi við
bækur Álfrúnar fyrr en nú. Sigl-
ing um síkin greip mig strax.
Kannski er þroskamerki að hafa
náð sambandi við Álfrúnu sem
gott orð hefur farið af sem höf-
undi.“
Myndir mér kunnuglegar
Síðla sumars, í tengslum við 150
ára afmæli Akureyrarbæjar, sendi
Sigmundur Ernir Rúnarsson, al-
þingismaður og rithöfundur, frá
sér bókina Eldhús ömmu Rún. Þar
gerir hann bæ bernsku sinnar að
yrkisefni; umhverfi öryggis og
íburðarleysis. Sögur um fólk sem
fór hávaðalaust í gegnum lífið.
„Ég á mínar rætur hér á Ak-
ureyri í sama umhverfi og Sig-
mundur. Því eru þær myndir sem
hann dregur upp í bókinni mér
mjög kunnuglegar. Þetta er gamla
Akureyri, bærinn eins og ég man
hann,“ útskýrir Hólmfríður.
Tímamót líkt og bæjarafmælið á
Akureyri eru alltaf tilefni til ein-
hvers konar útgáfu bóka, þar sem
í senn er litið til baka og horft til
framtíðar. Af þeim meiði er bókin
Þekktu bæinn þinn, eftir Jón
Hjaltason og fleiri höfunda. Þar er
fjallað um höfuðborg hins bjarta
norðurs, eins og Akureyri er
stundum nefnd, frá ýmsum sjón-
arhornum. Einnig kom út í sumar
bókin Konur gerðu garðinn, saga
Lystigarðsins á Akureyri sem nú
er 100 ára. Höfundur hennar er
landslagsarkitektinn Ásta Camilla
Gylfadóttir.
Tíu eintök af Arnaldi og Yrsu
„Akureyrarbækurnar hafa verið
mjög eftirsóttar. Raunar gildir það
um allar nýjar bækur. Hver og
einn lánþegi fær bókina í tíu daga
og yfirleitt er hún farin úr húsi
aftur strax á skiladegi,“ segir
Hólmfríður. Þá meginreglu segir
hún gilda hjá Amtsbókasafninu að
kaupa átta til tíu eintök af bókum
allra vinsælustu höfundanna, til
dæmis glæpasögum Arnaldar
Indriðasonar og Yrsu Sigurð-
ardóttur. Það veiti raunar ekkert
af svo ríflegum skammti. „Við höf-
um gjarnan fengið helstu rithöf-
undana til okkar í safnið fyrir jól-
in. Að vísu hefur verið minna um
slíkt síðustu ár, en nokkrir eru
væntanlegir á næstunni, meðal
annars á vegum forlaganna.“
Bækur eldast misjafnlega vel.
Um sumar, til dæmis léttmeltar
kiljur, má ef til vill segja að séu
öðrum þræði neysluvara. Eru eft-
irsóttar og umræddar um skamm-
an tíma en falla svo í gleymsk-
unnar dá. Glæpareyfarar sem
áberandi hafa verið síðustu árin,
t.d. sem sumarbækur, falla
kannski einhverjar í þann flokkinn
í fyllingu tímans. Öðrum bókum
auðnast lengri lífdagar. Oft gildir
það til dæmis um ævisögur al-
þýðufólks. Þær kannski seljast
ekki í stóru upplagi í jólabókaflóð-
inu en lifa dágóðan tíma, hafi þær
raunverulegt erindi við lesendur.
Frábær og innihaldsrík
„Oft kemur fólk til okkar í safn-
ið og leitar beinlínis ráða. Spyr um
eitthvað áhugavert að lesa. Það er
vissulega af mörgu að taka en
stundum hef ég bent fólki á bókina
Veistu, ef vin þú átt. Þetta eru
minningar Aðalheiðar Hólm Spans
sem kom út árið 1995. Þarna segir
Aðalheiður sem var verkakona frá
sér og sínu, meðal annars frá lífi
sínu hér heima og erlendis. Þetta
er bók sem mér vera alveg barma-
full af heilbrigðri skynsemi. Frá-
bær bók og innihaldsrík,“ segir
Hólmfríður sem kveðst hafa eðl-
islægan áhuga á fólki – og þar
með ævisögum. Og þær eru ófáar
yfir hver einustu jól. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Bókavörður „Ég les mikið, stundum eina bók á kvöldi,“ segir Hólmfríður Andrersdóttir sem starfað hefur á Amtsbókasafninu á Akureyri í áraraðir.
Barmafull bók af heilbrigðri skynsemi
’Góð bókajól. Þær bækur
sem ég hef kynnt mér – og
eru komnar til okkar í
safnið – eru áhugaverðar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Lesmál Bókasöfn eru spennandi staðir, ekki síst fyrir jólin þegar jólabækurnar koma.
50 Jólablað Morgunblaðsins
...skrifborðslampar, útiljós, breytiklær, flúrljós, ljósa perur,
dyrabjöllur, vírar, kaplar, rafhlöður, borðviftur, spennubreytar,
fjöltengi, framlengingarsnúrur, símavörur, raflagnaefni, verkfæri
og minni heimilistæki.
Ármúla 19 • Sími 568 1620 • www.gloey.is • gloey@gloey.is
Framtíðin er björt
Verð
14.995,-