Morgunblaðið - 24.11.2012, Blaðsíða 56
56 Jólablað Morgunblaðsins
L
eyfilegt er að selja jólabjór
frá 15. nóvember ár hvert
og fram að þrettándanum,
en líklegt að margar teg-
undanna seljist upp fyrir
jól, ef marka má söluna síðustu ár.
Agnes Sigurðardóttir hjá Brugg-
smiðjunni Árskógssandi segir þannig
að hinn fullkomni jólabjór eigi helst
að vera dökkur bjór og liturinn dökk-
rauður sem sé fallegur í glasi með
flotta froðu og passi því vel inn í jóla-
stemninguna. „Hann á að vera bragð-
mikill og ilma af humlum. Bragðið af
maltinu þarf að koma í gegn en einnig
töluverð beiskja og eftirbragð sem
varir vel og lengi. Val á malti og
humlum þarf að vera þannig sam-
ansett að bragðið passi vel með ís-
lenska jólamatnum sem er að miklu
leyti reykt kjöt og villibráð.“
Baldur Kárason, bruggmeistari
hjá Viking-Brugg, tekur í sama
streng, en segir þó að erfitt sé að lýsa
hinum fullkomna jólabjór því sumir
vilji bragðmeiri bjóra með töluverðri
beiskju en aðrir bragðminni, mýkri
og þægilegri bjóra. „Það sem bjórinn
þarf að hafa er gott jafnvægi, maltaða
tóna sem gefa keim af karamellum og
súkkulaði. Miklu skiptir að bjórinn
hafi fyllingu og gott eftirbragð.“
Guðmundur Mar Magnússon,
bruggmeistari hjá Ölgerðinni, segir
að jólabjórar séu oft dekkri en hefð-
bundnir ljósir lagerbjórar þó að það
sé alls ekki algilt. „Oftast eru þeir þó
hærri í alkóhóli og maltríkari, en auk-
ið áfengismagn var til að ylja fólki á
kaldasta tíma ársins og þannig er
hefð fyrir því í Þýskalandi að drukk-
inn sé doppel bock á þessum árstíma
en hann er dökkur malt- og alkóhól-
ríkur lager. Fyrir mér er jólabjór að
minnsta kosti heldur dekkri og
áfengismeiri en vanalegur en með
ákveðna jólatengingu, karamellur,
lakkrís, ristaður keimur, ávextir og
jafnvel negull sem er hægt að kalla
fram með því að velja saman réttu
hráefnin, en þessa tóna má kalla fram
með maltkorninu og t.d. gerinu sem
er valið til að gerja bjórinn. Jólabjór
þarf líka að vera matarvænn og
ganga með krefjandi réttum sem fólk
neytir á aðventu og jólum.“
Dagbjartur Ingvar Arilíusson hjá
Bruggverksmiðjunni Steðja segir að
ekki sé einhlítt svar við því hver sé
hinn fullkomni jólabjór, enda hljóti
hann að vera mjög ólíkur eftir lönd-
um og menningarsvæðum. „Ef við
horfum á Ísland kemst jólabjór
Steðja ansi nálægt því, dökkur,
bragðmikill, kryddaður og hæfilega
áfengur.“
Það er ekki einfalt að svara því
hvernig hinn fullkomni jólabjór eigi
að vera að sögn Árna Long, brugg-
meistara Ölvisholts Brugghúss, enda
byggist það á smekk hvers og eins.
„Sumir vilja léttan og þægilegan
bjór, aðrir kjósa bragðmikla og vel
fyllta bjóra. Til að svara spurning-
unni almennt má segja að góður jóla-
bjór sem og annar bjór þurfi að hafa
gott jafnvægi þ.e. að það sé ekki eitt-
hvert eitt bragð sem yfirtaki bragð-
laukana heldur sé allt bragð bjórsins
með svipað vægi.“
Jóla Kaldi
Agnes Sigurðardóttir hjá Brugg-
smiðjunni Árskógssandi, sem fram-
leiðir Kalda, segir uppskriftina að
Jóla Kalda komna frá tékkneska
bruggmeistaranum David Masa sem
starfaði hjá smiðjunni þegar henni
var komið á laggirnar. „Bjórinn er
kopar- og aðeins rauðleitur lagerbjór.
Mikið caramel-malt einkennir bjór-
inn sem gefur honum þennan
skemmtilega jólalega lit og einnig má
finna fyrir karamellu í bragði. Bjór-
inn hefur góða fyllingu og humlarnir
gefa bjórnum miðlungs beiskju og
mikla og góða lykt. Við erum rosa-
lega ánægð með þennan bjór.“ Hún
segir að bjórnum hafi ekki verið
breytt á milli ára, en vitanlega geta
orðið smávægilegar breytingar milli
ára, þar sem bjórinn sé lifandi vara.
Jóla Kaldi kom fyrst á markað árið
2008 og hefur verið með vinsælustu
jólabjórum upp frá því. Hún segir að
eftirspurnin sé slík núna að hún geri
ráð fyrir 30% aukningu frá því í fyrra.
Víking jólabjór
Baldur Kárason bruggmeistari hjá
Viking-Brugg segir að Víking Jóla-
bjór sé bruggaður í Vienna-stíl.
„Framleiðslan á Víking jólabjór er sú
flóknasta sem gerð er á landinu enda
því eftir aðalgerjun kemur eft-
irágerjun í þrjár vikur í viðbót, því
tekur framleiðslan um fimm vikur í
stað tveggja vikna hjá öðrum. Það
þykir við hæfi að nostra sérstaklega
við þennan hátíðabjór sem aðeins er
seldur í stuttan tíma. Karamellumalt
er notað í jólabjórinn, sem gefur hon-
um dekkri lit og keim af brenndum
sykri, kaffi og karamellu. Þá er það
einnig afar sérstakt við framleiðslu
jólabjórsins að hann er látinn eft-
irgerjast við lágt hitastig þegar að-
algerjuninni er lokið. Þessi vinnsluað-
ferð gefur jólabjórnum þétt og mjúkt
bragð, mikla fyllingu og góða froðu.“
Íslenskur Úrvals Jóla Bock
Íslenskur Úrvals Jóla Bock er
bruggaður í stíl hefðbundinna Bock-
bjóra frá Þýskalandi að sögn Baldurs
bruggmeistara. „Hann er sterkur
lagerbjór með góða fyllingu og ríku-
legan maltkeim í eftirbragði. Verm-
andi alkóhól í bakgrunni sem gerir
hann kraftmikinn en í senn mjúkan.
Íslenskur Úrvals Jóla Bock er fram-
leiddur í þriðja sinn og uppskriftin er
sú sama, bjórinn fjórfaldaðist í sölu í
fyrra og allt lítur út fyrir enn meiri
aukningu í ár.“
Einstakur Doppel Bock
Einstakur Doppel Bock er nú
kynntur í annað sinn og sem fyrr
bruggaður í stíl sterkra Bock-bjóra.
Baldur segir að hann sé „með mikilli
fyllingu og ríkulegt maltbragð en í
góðu jafnvægi. Vel gerður lagerbjór
þar sem bragðið fær að njóta sín án
mikilla áhrifa frá háu alkóhólinu.“
Gæðingur jólabjór
Gæðingur jólabjór kemur nú á
markað öðru sinni og að sögn Birg-
itte Bærendtsen hjá Gæðingi-Öli er
hann svipaður þeim sem var í fyrra.
„Þó er bruggunartíminn nokkru
lengri en þá og gerir bjórinn mýkri
og auðdrekkanlegri. Þetta er yf-
irgerjað öl, dökkt, og maltið ræður
ferðinni að mestu, en bjórinn er
nokkuð humlaður til að vega upp á
móti maltfyllingunni. Bragðið ristað
brauð og karamellutónn. Brugg-
meistari er Jóhann Axel Guðmunds-
son.
Egils Malt jólabjór
Egils Malt jólabjór er með elstu
jólabjórum hérlendum og í ætt við
Egils maltextraktið sem flestir
þekkja. Guðmundur Mar Magn-
ússon, bruggmeistari hjá Ölgerðinni
segir lyktina af bjórnum einkennast
af ristuðu korni í bland við ávexti. „Í
munni er bjórinn áberandi sætur með
þétta fyllingu, humlar eru ekki áber-
andi. Sætan gefur þessum bjór all-
nokkra sérstöðu og vegna hennar
m.a. minnir hann á maltið, þessi bjór
er kjörinn eftirréttabjór og smell-
passar t.d. með hrísgrjónabúð-
ingnum.“
Jóla gull
Guðmundur Mar er líka bjórmeist-
ari Jóla gullsins og hann segir að
flokka mætti það sem dunkel að
þýskri fyrirmynd, þ.e. dökkur lager.
„Lyktin er nokkuð sæt og einkennist
af ristuðu maltkorni. Í munni er bjór-
inn með þægilega og rúnnaða mal-
tsætu meðan humlar eru heldur til
baka mildir og ristaðir tónar gera
þennan bjór tilvalinn t.d. með pöru-
steik.“
Tuborg Christmas Brew
Mest seldi jólabjór hér á landi er
Tuborg jólabjór og mörgum tamt að
líta á hann sem hinn dæmigerða nor-
ræna jólabjór. Guðmundur Mar segir
og að í raun hafi hefð fyrir jólabjór í
Danmörku hafist með Tuborg jóla-
bjór upp úr 1980. „Bjórinn er milli-
dökkur og lyktin er af ristuðu korni
einnig má greina brennda tóna,
lakkrís og sólber. Bragðið er fyllt og
með nokkurri maltsætu sem tónar
vel við fínlega humlabeiskju sem er
meira áberandi en í hinum bjórunum
svo má líka finna mjög fínlegan
lakkrís keim. Hefðarinnar vegna
passar þessi bjór með jólahlaðborð-
inu, sérstaklega þá „dekkri“ (bragð
ekki endilega útlit) réttum.“
Giljagaur jólabjór nr. 14
Borg Brugghús sendi frá sér
fyrsta jólabjórinn á síðastar ári,
Stekkjarstaur Brúnöl nr. 7, en nú er
röðin komin að Giljagaur jólabjór nr.
14. Sturlaugur Jón Björnsson segir
að bjórinn sé óvenjulegur að því leyti
að hann er með 10% áfengisinnihald
og kallaður barleywine að breskum
sið. „Bjórinn er gerjaður með þremur
mismunandi gerstofnum og þurr-
humlaður. Hann mun líka þroskast
um ókomin ár og við setjum til dæmis
á miðann í stað fyrir „best fyrir“
stimpil: Best fyrir þolinmóða, verður
betri og betri til ársins 2020.
Steðji jólabjór
Steðji hóf starfsemi á árinu og jóla-
bjórinn er annar bjórinn sem brugg-
húsið sendir frá sér. Dagbjartur
Ingvar Arilíusson hjá Bruggverk-
smiðjunni Steðja lýsir Steðja jólabjór
svo að hann sé „koparlitur bjór
bruggaður að bæverskum hætti með
miklum lakkrískeim. Hann er mjög
sætur, mjög jólalegur og mjög góður
eftir jólamatin, nammimoli eftir mat-
inn en líka að sjálfsögðu góður með
mat. Áfengisinnihald er 5,3%,“ segir
Dagbjartur, en bruggmeistari er
Philip Ewers.
Ölvisholt Brugghús jólabjór
Jólabjór Ölvisholts 2012 er topp-
gerjað öl, kryddað með kanil, negul
og appelsínuberki. Árni Long, brugg-
meistari Ölvisholts Brugghúss, segir
að kryddun sé hófstillt og liggi aft-
arlega í eftirbragði. „Hinn dökki litur
ölsins kemur frá léttristuðu Munich-
malti sem gefur bjórnum þá fyllingu
sem jólabjór þarf að hafa. Hallertau
Hersbrucker-ilmhumlar styðja síðan
við bakið á breskum First Gold-
humlum sem ljá bjórnum mjúka
beiskju til jafnvægis við hið sæta
maltbragð. Jólabjórinn 2012 er ný
uppskrift og hefur því ekki verið
bruggaður áður.“
arnim@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Jólabjór Ölið fæst í miklu úrvali og líklega hafa tegundirnar aldrei verið fleiri. Við hæfi þykir að jólabjórinn sé dökkrauður á lit enda þannig alveg sérlega fallegur í glasi.
Jólabjórinn yljar í skammdeginu
Þó að ljós lagerbjór hafi enn yfirburði á Íslands-
markaði nýtur sérbruggaður bjór sífellt meiri
hylli og þá aðallega jólabjórinn, enda finnst
mörgum hann ómissandi á aðventunni.
’Líklegt er að margar teg-
undir af íslenskum jóla-
bjór seljist upp fyrir jól, ef
marka má vaxandi sölu
síðustu ár.
Langholtsvegur 126 · 104 Reykjavík · Sími 553 3450 · www.spilavinir.is
Verslunin er opin virka daga 11-18 og laugardaga 11-15
Spilavinir
Við aðstoðum þig við að velja spilin.
Úrvalið er hjá okkur!
Se
nd
um
um
all
t la
nd
ww
w.
sp
ila
vin
ir.i
s