Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 58
58 Jólablað Morgunblaðsins
Farsímastandur
Hö
nn
un
og
fra
m
lei
ðs
la:
Gu
nn
hi
ld
ur
Kj
ar
ta
ns
dó
tti
r:
ww
w.
4p
ho
ne
.is
-A
ug
lýs
in
ga
hö
nn
un
:c
oo
ld
es
ign
.is
• Hirsla fyrir alla farsíma og hleðslutæki þeirra.
• Íslensk hönnun og hugvit.
• Margir litir
• Gott verð
Engar snúruflækjur eða týnd hleðslutæki.
Snilld á heimilið og skrifstofuna.
Útsölustaðir:
Vodafone
Síminn
A4
Martölvan, Hornafirði
Tölvun, Vestmannaeyjum
Femin.is
Aha.is
Nammi.is
Botninn
260 g hakkaðar möndlur
230 g flórsykur
4 eggjahvítur
Möndlurnar kaupir Gurrý yfirleitt
heilar og hakkar svo í smátt. Eggja-
hvítur þeyttar þangað til þær eru vel
stífar og gætið þess að ekkert af
eggjarauðunni sleppi með. Flórsyk-
urinn er sigtaður saman við möndl-
urnar og svo blandað varlega saman
við eggjahvíturnar. Þá er blandan
sett, teskeiðarfylli í senn, á bökunar-
plötu með smjörpappír. Bakað á
180°C í 10-12 mínútur þangað til
botnarnir eru komnir með gull-
inbrúnan blæ.
Kremið
300 g smjör, við stofuhita
21⁄4 dl flórsykur
3 tsk vanillusykur
3 eggjarauður
3 msk instant-kaffiduft
1½ msk sjóðandi vatn
Gott er að mýkja smjörið lítið eitt
með því að hræra í því.
Flórsykurinn er sigtaður saman
við smjörið, þá vanillusykurinn.
Eggjarauðum blandað saman við,
einni í einu. Heita vatninu er blandað
saman við kaffiduftið og kaffiblönd-
unni svo hrært í mjórri bunu saman
við smjörið. Gætið þess að kaffibland-
an sé ekki mjög heit þegar hún er
hrærð saman við smjörblönduna.
Kreminu er svo smurt á tilbúna
botnana og kökurnar kældar í frysti.
Súkkulaðihjúpur
Nóa-Síríus Konsum-suðusúkku-
laði, brætt yfir vatnsbaði.
Kældum kökunum er dýft í súkku-
laðið og kremið þannig hjúpað. Að því
búnu kældar á ný í frysti. Geymist þar
þangað til tíminn er kominn til að njóta!
K
ökurnar, sem kenndar
eru við leikkonuna goð-
sagnakenndu Söru
Bernhard, eru eftirlæti
margra og Guðríður,
eða Gurrý eins og hún er jafnan köll-
uð, er þeirra á meðal. Hún er ann-
áluð meðal vina og ættingja fyrir af-
bragðsgóðar sörukökur og því liggur
beint við að spyrja hvaðan hefðin er
komin. Ólst hún ef til vill upp við
sörubakstur?
Góð uppskrift gulli betri
„Nei, reyndar ekki. Ég man fyrst
eftir sörum á mínu heimili þegar ég
hef sjálfsagt verið í kringum tvítugt.
Mamma keypti þá sörur af einhverri
konu. Ég, sem hef alltaf haft gaman
af því að baka, hugsaði með mér að
ég gæti nú alveg búið þessar kökur
til sjálf.“ Gurrý prófaði svo í fram-
haldinu og gekk það heldur brösug-
lega í fyrstu tilraun; uppskriftin,
sem Gurrý fann í einhverju blaði,
var ekki alveg að gera sig og hún
segir að sig gruni að þar sé komin
ástæðan fyrir því að margir gefast
upp og leggja sörubaksturinn á hill-
una – fyrsta skiptið lukkast ekki af
því uppskriftin er ekki nógu góð. En
hún var ekki á því að gefast upp.
„Svo varð ég mér úti um betr-
umbætta uppskrift, prófaði aftur og
það gekk miklu betur. Þaðan í frá
hefur mér ekki fundist þetta vera
neitt stórmál. Þetta er í rauninni
bara lítið mál.“ Aðspurð nánar út í
uppskriftina sem gekk svona vel
segist hún hafa sett hana saman úr
því sem henni fannst best; uppskrift
að botninum fann hún á einum stað
og uppskriftina að kreminu annars
staðar. Úr varð hennar eigin upp-
skrift sem klikkar ekki.
Best að baka þær ein
Þeir þekkja þó sem reynt hafa að
það er smáferill að búa til sörur.
Botninn þarf að útbúa sér og krem-
fyllinguna sömuleiðis. Oft koma því
fleiri en einn að bakstrinum og
skipta með sér verkum líkt og í verk-
smiðju væri. Gurrý hefur þó að eigin
sögn iðulega búið sörurnar til ein.
„Það hefur komið fyrir að systir mín
hefur verið með, og sömuleiðis
frænka mín, en eftir sem áður finnst
mér bara best að dúllast í þessu ein.
Og það eru heldur aldrei nein vanda-
mál.“ Gurrý veit hvað hún syngur í
þessum efnum því fyrir nokkrum ár-
um bakaði hún heil býsn fyrir jólin,
nánar tiltekið árið 2008. Þá missti
Gurrý vinnuna í kjölfarið á hruninu,
eins og fjölmargar aðrar flugfreyjur
gerðu í þeim samdrætti sem krepp-
an olli á markaðnum, og varð sér úti
um aukaskotsilfur í nóvember með
því að baka sörur og selja í öskjum.
„Ég hugsaði þá með mér: Hvað get
ég gert sem ég kann en öðrum finnst
ef til vill erfitt, og þá lágu sörurnar
einhvern veginn bara beint við enda
stutt til jóla á þeim tíma.“ Þar
reyndist Gurrý veðja á réttan hest
því fjölmargar vinkonur hennar í
fluginu, sem líkast til lögðu ekki
sjálfar í sörubakstur, gripu tækifær-
ið og fengu hjá henni sörur.
Mikilvægast við sörubakstur
Þeir lesendur sem gefist hafa upp
á sörubakstri vilja eflaust vita
hvernig sérfræðingurinn Gurrý fer
að til að fá fullkomnar sörur í hvert
skipti, og hún er ekkert nema elsku-
legheitin þegar hún er beðin um
uppskriftina og hollráð í kringum
baksturinn. „Það er gríðarlega mik-
ilvægt að þeyta eggjahvíturnar fyrir
botninn þangað til þær eru orðnar
fullkomlega stífar. Aðeins þannig
fæst þessi létta og ljúffenga mar-
ensáferð á botninn þegar hann er
bakaður. Þó það sé nú svo að maður
ræðst ekki í sörubakstur fyrir minna
en tvöfalda uppskrift þá hræri ég
alltaf bara einfaldan skammt af
botnunum í senn því það er nánast
ógerningur að ná átta eggjahvítum
stífþeyttum upp í topp, á meðan það
er ekkert mál með fjórar.“
Einnig segir Gurrý það nauðsyn-
legt að frysta kökurnar þegar búið
er að setja kremið á botnana. „Þær
eiga að vera grjótharðar þegar kem-
ur að því að þekja kremið með heitu
súkkulaði, því ef kremið er of lint
getur smjörið sem það inniheldur
tekið upp á því að skilja sig frá, leka
niður og þá er illt í efni. Svo þarf líka
að passa hitann á súkkulaðinu þegar
búið er að bræða það. Það verður að
gæta þess að súkkulaðið sé ekki
blússandi heitt því þá verður miklu
erfiðara að koma því á smjörkrems-
fyllinguna.“ Gurrý segir handtökin
fljót að komast upp í vana eða hefð
og þá gangi þetta allt saman fljótt og
vel fyrir sig. Þessi bakstur vill
greinilega lagið hafa.
Innsiglaðar til aðfangadags
Þeir sem standa Gurrý næst eru
svo heppnir að fá hjá henni sörur
fyrir jólin á hverju ári. Hún bakar
því dágóðan slatta af kökum fyrir
jólin, nú sem endranær. Að eigin
sögn tekur hún venjulega einn dag í
að klára baksturinn og býr þá til sör-
ur fyrir heimilið, foreldra sína, syst-
ur og fleiri. Þótt hún hafi gaman af
bakstrinum þá er alltaf kærkomið
augnablik þegar allar sörurnar eru
tilbúnar. „Það er alltaf ákveðið „mó-
ment“ þegar ég er búin að setja
súkkulaði á sörurnar. Þá eru alltaf
fáeinar sem eru ekki eins fallegar að
sjá og hinar, og þá fara þær í ísskáp-
inn og allir fá eina söru um kvöldið,
með malti og appelsíni. Hinar fara í
innsiglaðar öskjur og geymast til
jóla! Innsiglið er ekki rofið fyrr en
eftir kvöldmat á aðfangadagskvöld.“
jonagnar@mbl.is
Sörurnar innsiglaðar til aðfangadags
Sörukökur eru mikið
hnossgæti sem margir
útbúa fyrir jólahátíð-
ina. Þó er það svo að
margir veigra sér við að
búa til sörur. Það er þó
minna mál en margur
heldur, segir Guðríður
Matthíasdóttir, flug-
freyja hjá Icelandair,
sem gerir sörur á
hverju ári.
Morgunblaðið/Kristinn
Sælgæti Það er viss kúnst að baka sörur en þó ekkert til að stressa sig yfir um of, segir Gurrý Matthíasdóttir sem bakar gómsætar sörur fyrir hver jól
og finnst ekki mikið mál. Það vill þó lagið hafa og vert að hafa heilræði sérfræðingsins í huga, sem býr að mikilli reynslu þegar sörur eru annars vegar.
’Svo varð ég mér úti um
betrumbætta uppskrift,
prófaði aftur og það gekk
miklu betur. Þaðan í frá
hefur mér ekki fundist
þetta vera neitt stórmál.
Morgunblaðið/Golli
Sörurnar hennar Gurrýjar