Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 66

Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 66
66 Jólablað Morgunblaðsins A nnríki – þjóðbúningar og skart er fyrirtæki í Hafn- arfirði sem sérhæfir sig í öllu sem viðkemur þjóð- búningum. Fyrirtækið eiga þau Hildur og eiginmaður henn- ar, Ásmundur Kristjánsson. „Við höfum verið með þetta fyr- irtæki hér í eitt ár. Ég er klæðskera- og kjólameistari og maðurinn minn er að læra gullsmíði.“ Hildur bætir því við að þótt fyr- irtækið sé ekki eldra en þetta þá hafi hún rekið annað fyrirtæki sambæri- legt í áratug og hafi starfað að þjóð- búningagerð og kennslu í fimmtán ár. Þekking á þjóðbúningum Hildur hefur sjálf lengi haft áhuga á þjóðbúningum. „Ég átti sjálf bún- ing þegar ég var lítil, auk þess sem móðir mín er handavinnukennari. Ég ólst því upp við hannyrðir. Síðan lærði ég í Iðnskólanum og lauk þaðan bæði kjóla- og klæðskeraprófi, og er meistari í báðum fögum í dag. Þá lærði ég líka sagnfræði til að dýpka enn þekkingu á þessu sviði.“ Í þessu sjónarmiði hefur Hildur stundað rannsóknir á söfnum, til að kynna sér þjóðbúninga, gerð þeirra og sögu. „Þegar við hjónin stofnuðum fyrirtækið okkar fyrir ári leituðum við eftir samstarfi við Hafnarfjarð- arbæ, og þeir hjá bænum tóku strax jákvætt í það. Nú höfum við á þessu ári tekið þátt í uppákomu í tengslum við Bjarta daga, og vorum þá með kynningu í Gúttó. Hinn 17. júní tók- um við svo á móti fólki í Gúttó og veittum upplýsingar og aðstoð þeim sem vilja klæðast þessum búningum. Fólk veit nefnilega ekki alltaf hvern- ig á að bera sig að.“ Viðburðir á veg- um Annríkis hafa mælst vel fyrir að sögn Hildar og fleiri slíkir eru í at- hugun. „Jafnvel gæti verið um fastan við- burð að ræða. Eftir að hafa starfað við þetta í fimmtán ár og kennt hundruðum manns að suma búninga langar mig að þessi veröld verði sýni- legri.“ Aðventusýning á búningum Hafnarfjörður hefur enn á ný veitt Annríki aðgang að Gúttó og næsti viðburður verður sýning á þjóðbún- ingum á fyrsta sunnudegi í aðventu, sem ber upp á 2. desember. „Þá munu nemendur mínir sýna sitt handverk og sína búninga. Þá kviknaði sú hugmynd að koma til samstarfs við kirkjuna líka, því hún er með hátíðarmessu fyrsta sunnu- dag í aðventu.“ Þess má einnig geta að sömu dag- ana eru orgeldagar í kirkjunni og verða því orgeltónleikar á undan messunni. „Við munum svo taka þátt í hátíðarmessunni með þeim hætti að nemendur Annríkis munu taka þátt í messuhaldinu, uppábúnir í þjóðbún- ingum. Milli k. 12 og 13 býður kirkjan Morgunblaðið/Árni Sæberg Þjóðlegt Hátíðarbúningur íslenskra kvenna er til í ýmsum útgáfum, sem eru allar jafn fallegar. Áhugi á þessari menningu fer vaxandi og sama gildir um önnur séríslensk gildi. Notum þjóðbúninginn oftar Það líður að þeim árstíma þegar flestir lands- menn draga fram betri fötin. Guðrún Hildur Rosenkjær hjá Annríki vill auka þekkingu fólks og um leið notkun á þjóðbúningum. Tíska „Við viljum varðveita handverkið og vekja athygli,“ segir Guðrún Hildur Rosenkjær hér með þjóðbúningastúlkunni Söru Atladóttur. upp á kaffi og þá munum við kynna starfsemi okkar en kynna líka bún- ingana. Þessa hefð og þetta ótrúlega fjölbreytta og fallega handverk.“ Hildur bendir á að Annríki er að vinna með sömu hefðir og handverk og verið var að vinna með fyrir 200 ár- um. „Fólki finnst það alltaf jafn mögnuð tilhugsun, hvað hefðin er gömul. Handverkið byggist beint á því sem þá var.“ Arfur sem vert er að halda við „Mér finnst oft sem fólk sé feimið við þessa hefð,“ segir Hildur. „Feimið við að sýna hefðina og tala um hana og það sést einna best á því að þessi hundruð sem sótt hafa námskeiðin hjá mér eru ekki endilega að nota búningana sína nógu mikið í fram- haldinu. Við erum að reyna að vinna svolítið með þetta og reyna að vinna á feimninni.“ Hildur bendir réttilega á að 17. júní séu ekki tiltakanlega marg- ir sem klæðast búningunum sínum – á meðan hópur fólks ætti einmitt að gera einmitt það miðað við þann fjölda sem hefur saumað sér búning á umræddum námskeiðum undanfarin 15 ár. Aðspurð hvort ekki sé lag að vekja athygli á þessum hefðum nú, þegar töluvert afturhvarf er í fata- tískunni og fatnaður sem sækir inn- blástur til fortíðar í ríkum mæli er vinsæll, samsinnir Hildur því. „Það felst í því tækifæri en í fram- haldinu er markmiðið að auka notk- unina á búningunum að því marki að þeir séu ekki bundnir ákveðinni tísku heldur öðlist tímalaust gildi. Við höf- um lagt hugtakið þjóðbúningur svolít- ið til hliðar því það er miklu yngra en búningarnir sjálfir; þetta voru jú ein- faldlega fötin sem fólk klæddist, hreinn og beinn fatnaður, en ekki ein- hvern þjóðbúningur, þannig lagað. Þjóðbúningur er nútímahugtak og sparilegt í sér, og kannski þess vegna er fólk svolítið feimið við að skarta búningunum sínum. Það er verið að setja búningana á stall. En um leið og við viljum varðveita handverkið og vekja á því athygli, þá er markmiðið um leið að auka notkun búningsins.“ jonagnar@mbl.is Jólaviðburðardagatal Reykjavíkur verður kynnt í helgarblaðinu. Fylgist með! B ra nd en bu rg
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.