Morgunblaðið - 24.11.2012, Síða 89
A
lla aðventuna er hingað
stöðugur straumur
gesta. Sólheimar hafa
yfir sér skemmtilegan
svip í svartasta
skammdeginu. Við leggjum okkur
eftir því að lýsa þorpið upp með
fallegum jólaskreytingum; öll
þessi hlýlegu timburhús sem hér
standa. Og þegar mjöllin liggur
hér yfir og allt er uppljómað þá
lýsa sumir staðnum sem fallegum
piparkökubæ,“ segir Erlendur
Pálsson, forstöðumaður atvinnu-
sviðs Sólheima í Grímsnesi.
Fá sem flesta til okkar
Starfsemi Sólheima er fjöl-
breytt og íbúar þar vinna að
margvíslegri iðju. Þar má nefna
vefnað, smíði,
listmunagerð,
jurtavinnslu,
kertagerð og
matarvinnslu
ýmiskonar. Þá
er unnið að ým-
iskonar ræktun
á staðnum yfir
sumartímann og
eru afurðir þess
meðal annars
nýttar í mat-
vælafram-
leiðslu. Löng
hefð er fyrir
jólamarkaði
Sólheima í
Kringlunni í
Reykjavík sem
jafnan hefur
verið í aðventu-
byrjun. Nú
verður mark-
aðurinn 15. og
16. desember.
„Staðreyndin
er sú að fram-
leiðslan hér á
staðnum annar tæpast eftirspurn.
Sá mikli fjöldi fólks sem hingað
kemur kaupir gjarnan einhverjar
jólavörur. Þá er þetta fljótt að
fara. Við viljum líka fá sem flesta
hingað til okkar til að kaupa jóla-
gjafir og njóta aðventunnar með
okkur. Því förum við seinna í
Kringluna en venjulega,“ segir
Erlendur.
Ilmkerti og olíur
Margt verður á boði á mark-
aðnum í Reykjavík. Þar nefnir Er-
lendur bakkelsi ýmiskonar, jurta-
vörur ýmiskonar, svo sem sápur,
krem, nuddolíur. Einnig smíðavör-
ur, jólakort, ofin teppi og svo
mætti lengi áfram telja.
„Þá skipa kerti héðan sérstakan
sess í hugum margra, bæði hefð-
bundin vaxkerti og svo þau sem
við framleiðum úr bývaxi og gefa
frá sér ilm sem fyllir allt húsið
þegar best lætur, segir Erlendur.
sbs@mbl.is
Svipur í svörtu
skammdeginu
Sumir lýsa Sólheimum
í Grímsnesi sem pip-
arkökubæ á aðvent-
unni. Margvísleg iðja
og margt á mark-
aðinum. Margir koma í
heimsókn í desember.
Erlendur Pálsson
Morgunblaðið/Kristinn
’Sá mikli
fjöldi fólks
sem hingað
kemur
kaupir
gjarnan
einhverjar
jólavörur.
Starf Jólundirbúngur á
Sólheimum hefst snemma
og í mörg horn er að líta í
fjölbreyttri iðjunni þar.
Jólablað Morgunblaðsins 89
Jólagjafir
ferðamannsins
Ferðafélag Íslands www.fi.is
Árgjald FÍ og gjafakort FÍ
Árgjald FÍ er tilvalin jólagjöf sem gefur aðgang að skemmti-
legum félagsskap, heilbrigðri útiveru og góðri hreyfingu.
Félagsaðild í Ferðafélagi Íslands veitir aðgang að ferðum og
skálum á góðum kjörum og afslætti í fjölda útivistarverslana.
Við bjóðum einnig gjafakort FÍ fyrir sumarleyfisferðir,
helgarferðir, dagsferðir og skíðaferðir.
Upplifðu náttúru Íslands.
Sö
g
u
m
ið
lu
n
eh
f
Skráðu þig inn – drífðu þig út!
Árbók FÍ 2010
Sextán handhæg rit um gönguleiðir
og svæði, söguslóðir o.fl.
Vatnaleiðin, Gönguleiðir í Hvalfirði,
Norður við fjölvindahaf, Laugavegurinn,
Eyjar í Hraunhafi, Biskupaleiðin
og margt, margt fleira…
Fræðslurit FÍ
Árbækur FÍ – Ritröðin öll
Einstakur bókaflokkur um náttúru Íslands
í 83 bindum. 1