Morgunblaðið - 24.11.2012, Síða 91
Jólablað Morgunblaðsins 91
V
atn er yfirskrift Jólasöfn-
unar Hjálparstarfs
kirkjunnar þetta árið.
Öllu því fé sem safnast
verður varið til vatns
öflunar og brunnagerðar í Malaví,
Úganda og Eþíópíu; löndum þar sem
vatn er takmarkað
„Vatn er grundvöllur lífsins. Þeg-
ar það skortir, eins og raunin er á
verkefnasvæðum okkar í Afríku,
verður fólki einfaldlega erfiðara en
ella að heyja sína lífsbaráttu. Því
viljum við breyta,“ segir Bjarni
Gíslason, upplýsingafulltrúi Hjálp-
arstarfs kirkjunnar.
Sjónum beint að Afríku
Jólasöfnunin hefst formlega
fyrsta sunnudag í aðventu, 2. desem-
ber. Landsmenn geta lagt lið m.a.
með valgreiðslu í heimabanka – en
einnig má koma framlögum til sókn-
arpresta og ann-
arra eins og við á.
Alveg síðan
Hjálparstarf
kirkjunnar var
sett á laggirnar
1969 hefur jóla-
söfnunin verið
helguð verk-
efnum í þróun-
arlöndum. Und-
antekningin er
sú að fyrst eftir
hrunið haustið
2008 var fyrir
þrenn jól safnað
fyrir innlend sem
erlend verkefni.
Nú er sjónum
aftur beint að
Afríku. „Íslend-
ingar hafa í
gegnum árin
stutt frábærlega
vel við jólasafn-
anir okkar.
Virkilega látið
sig varða kjör
þeirra sem búa við erfiðar að-
stæður,“ segir Bjarni.
Dýrmætt fyrir börnin
Fyrir skemmstu komu hingað til
lands Donia Stacy Phiri og Innocent
Scott Kaphinde frá Malaví. Kynntu
þau fermingarbörnum aðstæður í
heimalandi sínu. Sögðust sjálf búa
við ágætar aðstæður í höfuðborg
landsins, hafa rafmagn og hreint
vatn. En jafnframt þekkja vel að-
stæður út um land þar sem staðan er
önnur og víða vatnsskortur. Frá-
sagnir þeirra snertu mjög við ferm-
ingarbörnunum sem á dögunum
gengu í hús og söfnuðu fé til verk-
efna í þágu þurfandi í Afríkulöndum.
„Frá 2004 höfum við fengið fimm
heimsóknir gesta frá Keníu, Eþíóp-
íu, Úganda og Malaví,“ segir Bjarni.
„Já, heimsóknirnar hafa verið í
tengslum við fermingarbarnasöfn-
unina og fræðslu til barnanna um líf
og aðstæður í Afríku. En gestirnir
hafa einnig tekið þátt í guðsþjón-
ustum og öðrum samverustundum.
Það er mjög dýrmætt fyrir ferming-
arbörnin að fá að hitta fólk frá Afr-
íku og ræða við þau augliti til auglit-
is.“ sbs@mbl.is
Fyrir
grund-
völl
lífsins
Jólasöfnun Hjálpar-
starfs kirkjunnar hefur
verið fastur punktur á
aðventunni frá 1969.
Vatn fyrir lífsbaráttuna
sjálfa. Fermingarbörn-
in fá heimsókn og fræð-
ast um líf og aðstæður.
Malaví Þau Innocent Scott Kaphinde, til vinstri, og Donia Stacy Phiri kynntu íslensku fermingarbörnum og fleiri aðstæður í heimalandi sínu.
Bjarni Gíslason
’Það er dýr-
mætt fyrir
ferming-
arbörnin
að fá að
hitta fólk
frá Afríku.
Súkkulaðisæla
Margir hafa sterkar tilfinningar gagnvart súkkulaði enda hefur
gæðasúkkulaði góð áhrif á sál og líkama. Nói Síríus hefur
áratugum saman framleitt súkkulaði úr besta fáanlega hráefni,
súkkulaði sem er jafngott hvort sem þú hitar það, bræðir, hjúpar
með því, bakar úr því eða borðar það bara beint. Sættu þig
ekki við málamiðlanir þegar súkkulaði er annars vegar, veldu
Síríus súkkulaði – svo allt verði gott.