Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 93

Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 93
Hugtakið brandajól er stund-um notað þegar jól fallaþannig á vikudaga að margir helgi- og frídagar koma í röð. Í þessu sambandi er, samkvæmt gömlum bókum, stundum talað um stóru og litlu brandajól. Hvort er hvað er þó ekki alveg skýrt. Í ár ber aðfangadag, 24. desember, upp á mánudag. Því á dagvinnufólk frí frá eftirmiðdegi 21. desember og mætir ekki aftur til vinnu fyrr en að morgni þess 27. Þá koma tveir vinnu- dagar og ekki er ólíklegt að einhverjir slái hlutunum upp í kæruleysi, taki út sumarfrísdaga og mæti ekki til vinnu fyrr en eftir nýár. Engum vafa er því undirorpið að telja má komandi hátíð til brandajóla. Horft til flestra frídaga Ýmsan fróðleik um brandajól má finna á netinu, til dæmis á vefsíðum tengdum Háskóla Íslands. Í pistli á vef Almanaks HÍ segir Þorsteinn Sæ- mundsson stjarnfræðingur að áður hafi menn lagt mismunandi skilning í orðið brandajól „einkum þó hvað séu stóru og litlu brandajól“, eins og hann kemst að orði. Þær heimildir sem vitnað hafi verið í, bendi eindregið til að brandajól hafi upphaflega merkt einungis það þegar jóladag bar upp á mánudag. Þorsteinn segir að eftir að hætt var að halda þrettándann heil- agan hafi verið meira horft til þess hvaða dagamynstur gæfi lengsta jóla- helgi eða flesta frídaga. „Hin upp- haflega merking stóru brandajóla hefur gleymst, og loks hafa menn gert litlu brandajólin að þeim stóru,“ segir stjarnfræðingurinn. En hver er merkingin orðsins brandajól. Um forlið orðsins, það er branda, ætla ýmsir að þar sé átt við eldibranda; það er loga frá snarkandi eldi. Þetta er þó ekki víst og allt eins talið vera alþýðuskýring. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Jól Siðir hátíðarinnar breytast lítið og frídagar eru flestum kærir. Brandajól og fjöldi frídaga Góð pása framundan um hátíðarnar. Brandajól eftir bókinni. Merkingin hefur breyst. Yfirleitt fer verðmæti jóla-gjafa ekki yfir þau mörksem gilda. Hins vegar erum við að koma þessum skilaboðum á framfæri, svo komast megi hjá misskilningi og sársauka,“ segir Hörður Davíð Harðarson hjá Toll- stjóra. Verðmæti jólagjafa sem Íslend- ingar fá frá vinum og ættingjum erlendis má ekki fara yfir 10 þús- und krónur, öðruvísi en að að- flutningsgjöld leggist á það sem út af stendur. Fylgi reikningur ekki gjöfinni áætlar Tollstjóri verð- mætið með hliðsjón af líklegu smásöluverði á innkaupsstað. Um gjöf sé að ræða Mikilvægt er að bréf og bögglar fari snemma í póst svo allt gangi upp. Það er ekki síður mikilvægt fyrir sendendur erlendis að ganga þannig frá sendingunni að ljóst sé að um gjöf sé að ræða. Þá verður skv. nótu að gefa upp rétt verð- mæti hennar, svo engin vafamál komi upp við tollafgreiðslu. Þann- ig þarf, sem fyrr segir, að vera skýrt að um sé að ræða jólagjöf og að tengsl séu milli gefanda og þiggjanda. Af þessu leiðir að við- mið þessi eiga ekki við um inn- flutning í atvinnuskyni eða hluti, sem fólk hér heima pantar til dæmis í gegnum vefverslanir og ætlar til gjafa. Í fyrra voru skráðar böggla- sendingar síðustu tvo mánuðina fyrir jól um sex þúsund talsins. Að sögn Harðar Davíðs hefur á því borið að Íslendingar erlendis bjóð- ist til að kaupa muni fyrir landa sína og senda heim undir þeim formerkjum að um gjafir sé að ræða. Skýrt og einfalt „Ef grunur vaknar um að ekki sé um gjöf að ræða er böggullinn skoðaður og kallað eftir frekari upplýsingum frá viðtakanda sé þess þörf. Með skýrum upplýs- ingum og einföldum reglum ætti þetta allt að komast í gegn. Al- mennt virðist verðmæti jólagjafa ekki fara yfir 10 þúsund krón- urnar, en í öðrum tilvikum, svo sem í kringum fermingar, er verð- mætið stundum meira og þá þarf að greiða gjöld af því sem umfram er,“ segir Hörður Davíð Harð- arson. sbs@mbl.is Tíu þúsund er hámarkið Tollurinn telur pakk- ana. Verðmæti gjafa að utan fari ekki yfir 10 þúsund krónur. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Innflutt Sendingar streyma til landsins. Tollarar hafa vökult auga. ’Ef grunur vaknar um að ekki sé um gjöf að ræða er böggullinn skoðaður og kallað eftir frekari upplýsingum. Jólablað Morgunblaðsins 93 Fáanlegt á Fosshotel.is Verð frá 12.000 kr. V I N A L E G R I U M A L LT L A N D Gjafabréf Fosshótela Vinaleg gjöf sem gleður
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.