Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 96
M
öguleikarnir í mið-
borginni eru miklir.
Margir skemmti-
legir frumkvöðlar í
verslunar- og veit-
ingarekstri hafa kosið að hefja feril
sinn þar, því umhverfið er bæði hlý-
legt og notalegt auk þess sem sókn-
arfæri til skemmtilegra nýjunga
blasa þar svo víða við hugmyndaríku
fólki,“ segir Jakob Frímann Magn-
ússon, framkvæmdastjóri Miðborg-
arinnar okkar.
Blómstrar í samkeppninni
Í hugum margra samtvinnast jóla-
undirbúningur á aðventu lífinu í mið-
borg Reykjavíkur. Þrátt fyrir sam-
keppni við verslunarmiðstöðvar
blómstrar miðborgarsvæðið sem nær
vestan frá gömlu höfninni og Kvos-
inni að Hlemmi. Þarna eru Skóla-
vörðustígur, Laugavegur, Banka-
stræti og Austurstræti meginæðar.
Fjölþætta starfsemi er einnig að
finna við aðliggjandi götur. Á þessu
svæði eru liðlega 300 verslanir og
veitingastaðir, fyrirtæki sem öll hafa
sérstöðu og sjarma.
Skipulögð dagskrá í miðborginni
hefst á fyrstu dögum aðventu. Á Ing-
ólfstorgi, milli Austurstrætis og Að-
alstrætis verður Jólabærinn svo-
nefndi; markaður hönnuða,
matgæðinga, handverksfólks og
fleiri. Þar verður komið upp fallegum
skreytingum svo torgið skarti hátíð-
arbúningi. Fjölþætt viðburðadagskrá
verður á staðnum og raunar mun
miðborgarsvæðið allt iða af lífi.
Atburðir á þremur stöðum
„Svið helstu viðburða verða á
þremur stöðum,“ segir Jakob. „Í
fyrsta lagi á Ingólfstorgi og í annan
stað á Skólatorgi sem er á skurð-
punkti Skólavörðustígs, Laugavegs
og Bankastrætis. Hið þriðja er
Laugatorg sem er fyrir framan Kjör-
garð við Laugaveg. Raunar má víkja
nokkrum orðum sérstaklega að því
hve starfsemin efst á Laugavegi,
Karnabæjarsvæðinu svonefnda, er að
sækja í sig veðrið. Þar hefur atgerv-
isfólk tekið sig saman og markað sér
sérstöðu á svæði sem hlotið hefur
nafnið Vitahverfið,“ segir Jakob Frí-
mann.
Vitahverfið mætti á ensku nefna
Lighthouse Village – the Creative
Quarter. Í þeim vaska hópi sem
stendur að rekstri þar er að finna
fólkið að baki Kex Hostel, Kron,
Herrafataverslun Kormáks og
Skjaldar, GK og fleiri fyrirtækjum.
Þá hefur annar hópur látið að sér
kveða sem eru gamalreyndir kaup-
menn og fasteignaeigendur sem
myndað hafa félagsskap til að vinna
framgang sínum hagsmunum og
hugðarefnum.
Kjörlendi landnámsfólks
Fleiri dæmi um Laugaveginn of-
anverðan sem Jakob nefnir: hið nýja
öfluga samvinnufélag ATMO sem ný-
verið opnaði fjölbreytilegan rekstur
að Laugavegi 91, þar sem verslunin
Sautján var lengi. Fjöldi hönnuða og
rekstraraðila hefur nú hafið starfsemi
í þessu stórglæsilega og nýuppgerða
verslunarhúsnæði. Meðal frumkvöðla
þar eru Ásta Kristjánsdóttir, gjarnan
kennd við Elm og Eskimo-models, og
Rúnar Ómarsson, sem margir kenna
við fjölþjóðlega hönnunarveldið Ni-
kita.
„Þetta framtak er til marks um
hvaða möguleikar bjóðast í miðborg-
inni; landnámsfólk í ýmsum skapandi
greinum sér hvílíkt kjörlendi þetta
er,“ segir Jakob Frímann.
Með afli ljósgeislans
Miðborgin verður hlýlegust og feg-
urst á vetrum þegar hún er skreytt
og færð í jólabúning. Sumt eru fastir
póstar en annað er að festa sig í sessi,
svo sem þrívíðar hreyfimyndir lista-
teiknarans Gunnars Karlssonar af
Grýlu og jólavættum ýmsum. Með
afli ljósgeislans er myndunum varpað
á ýmsa hentuga fleti svo sem flestir
megi sjá og njóta. Einnig hefur Bragi
Valdimar Skúlason skipulagt sér-
stakan Miðborgar-jólaleik. Verður
kort sem vísar veginn í leiknum fáan-
legt í verslunum miðborgarinnar inn-
an tíðar.
Undir stærsta listaverk heims
„Í dagsins önn gleymist stundum
hve miðborgin hefur breyst mikið til
batnaðar á undanförnum árum. Hún
verður sífellt líflegri og bjartari,“ seg-
ir Jakob Frímann. Hann segir svæðið
í raun iða af lífi, erlendum ferðamönn-
um og viðskiptamönnum hafi stór-
fjölgað, ótal spennandi viðburði sé að
finna í miðborginni allan ársins hring
og vaxandi fjöldi verslana sé opinn
fram eftir og um helgar. Í miðborg-
inni sé risið alþjóðlegt ráðstefnu- og
tónlistarhús undir stærsta listaverki
heims og svo megi lengi áfram telja.
Megi þetta meðal annars þakka því
að af hálfu borgaryfirvalda séu mið-
borgarmál nú meira í brennidepli en
oftast áður – aukinheldur sem áhugi
og áhrif þeirra sem að rekstri á svæð-
inu standa fari sífellt vaxandi.
sbs@mbl.is
Miðborgin verður hlýlegust
og fegurst á vetrum
Lifandi svæði og 300
verslanir og veit-
ingastaðir í mið-
borginni. Dagskrá
alla aðventuna.
Jólamyndir á veggj-
um og ratleikur.
Vitahverfi er athvarf
fyrir atgervisfólk.
Morgunblaðið/Kristinn
Reykavík „Miðborgin hefur breyst mikið á undanförnum árum,“ segir Jakob Frímann með heiminn í hendi sér.
’Í hugum margra sam-
tvinnast jólaundirbún-
ingur á aðventu lífinu í
miðborg Reykjavíkur.
Þrátt fyrir samkeppni við
verslunarmiðstöðvar
blómstrar miðborg-
arsvæðið sem nær vestan
frá gömlu höfninni og
Kvosinni að Hlemmi.
96 Jólablað Morgunblaðsins
Gjafakort Miðborgarinnar
okkar er fáanlegt í öllum
bókaverslunum miðborg-
arinnar, það er Iðu við Lækj-
argötu, Máli og menningu á
Laugavegi og verslunum Ey-
mundsson við Skólavörðustíg
og í Austurstræti.Við-
skiptavinurinn ákvarðar
sjálfur upphæðina sem gjafa-
kortið skal innibera hverju
sinni og er upphæðin færð
inn á umbúðir kortsins ásamt
nafni kortþega og gefanda.
Langflestir fullveðja rekstr-
araðilar miðborgarinnar eru
aðilar að kortinu og er upp-
lýsingar um þá sem veita því
viðtöku að finna netinu á mid-
borgin.is
Morgunblaðið/Golli
Borgarys Margir gera öll sín innkaup í miðborginni.
Gjafa-
kortin
gefast vel Jólabærinn á Ingólfstorgi verð-ur formlega opnaður miðviku-
daginn 12.12.12 kl. 12:12.Og
tólf er yfir og allt um hring.
Þar verður að finna fjölmargar
12 laga plötur frá 12 tónum, 12
vörutegundir tengdar Jesú og
lærisveinunum 12, gagnlegar
upplýsingar um 12 spora kerf-
ið, 12 ættkvíslir Ísraels, 12
gómsætar matartegundir í jóla-
matinn, verk 12 íslenskra hönn-
uða ásamt gjafavöru í miklu úr-
vali, alíslenskum jólatrjám,
jólaskrauti og sitthverju fleiru.
Dagskrá Jólabæjarins á Ing-
ólfstorgi verður að finna á vef
miðborgarinnar og á jólavef
Reykjavíkurborgar.
midborgin.is
visitreykjavik.is/christmas
Ættkvíslir og íslensk hönnun
Tólfunum kastað í Jólabænum
Morgunblaðið/Golli
Ingólfstorg Jón Gnarr borgarstjóri og
Jakob Frímann í jólabænum í fyrra.