Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 97
Jólablað Morgunblaðsins 97
„Aðventan hér á
Akureyri er eitt
allsherjar æv-
intýr og úr nægu
að velja. Sjálf kýs
ég að njóta þess
að sækja hina
ýmsu viðburði
frekar en taka
eldhússkápana í
gegn. Geri það bara seinna,“ segir
Hulda Sif Hermannsdóttir, við-
burðastjóri hjá Akureyrarstofu.
„Það er tilhlökkunarefni að sjá
þegar ljósin eru tendruð á jólatrénu
á Ráðhústorgi og á sama tíma byrj-
ar hjartað í Vaðlaheiðinni aftur að
slá. Mér finnst það algjörlega sam-
ofið aðventunni að sækja tónleika
þar sem jólatónlist er í aðal-
hlutverki. Ég er búin að ákveða að
hlýða á þau systkin Ellen og KK í
Hofi en dauðlangar líka að mæta í
aðventuveisluna hjá Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands. Þegar
nær dregur jólum er nánast skylda
að hlusta á kammerkórinn Hymno-
diu flytja jólatónlist og ekki má
gleyma tónleikum kirkjukóranna á
Akureyri. Það er ljúft að geta gert
jólainnkaupin í hlýjunni á Gler-
ártorgi en mér hefur samt alltaf
þótt vera mikill sjarmi yfir því rölta
um miðbæinn á aðventunni. Ég t.d.
leggja leið mína í miðbæinn 6. des-
ember en þá verður þar kertakvöld.
Ljós miðbæjarins verða að mestu
slökkt og kerti sjá um lýsingu. Það
er líka gaman að sækja leikhús; sjá
snillingana þrjá; Gest Einar, Alla
Bergdal og Þráinn Karlsson leika
sjálfa sig og svo er stefnan tekin á
lítið fallegt barnaleikrit hjá Leik-
félagi Akureyrar.“ sbs@mbl.is
Hulda Sif Hermannsdóttir
Aðventan
eitt allsherjar
ævintýr
„Íslensk tónlist
er vettvangur
einstæðrar sköp-
unar og gleði. Því
finnst mér vel til
fundið að hún sé
útnefnd sem jóla-
gjöf ársins. Þetta
er nokkuð sem
alltaf gleður,“
segir Einar Bárðarson. Hann hefur
á undanförnum árum verið at-
kvæðamikill í tónlistarlífi landsins,
staðið fyrir tónleikum, gefið út efni
og verið umboðsmaður fjölmargra
listamanna. Þar má meðal annars
nefna Garðar Thór Cortes sem að
þessu sinni heldur nýárstónleika
norðan heiða og sunnan; í Graf-
arvogskirkju sunnudagskvöldið 30.
desember og Hofi á Akureyri 5. jan-
úar. Sérstakir gestir Garðars á tón-
leikum þessum eru faðir hans Garð-
ar Cortes, Valgerður Guðnadóttir
og söngflokkurinn Mr. Norrington.
„Þegar fólk er að nálgast miðjan
aldur er staðan oft sú að það á flest
sem þarf á heimilið. Væntingar um
jólagjafir verða því eðlilega aðrar –
og íslensk tónlist stendur vel undir
þeim. Til dæmis miðar á einhverja
af þessum frábæru stórtónleikum
svo sem Frostrósir, Jólagesti Björg-
vins, í kirkjunum eru kórar landsins
með einhverja skemmtilega dagskrá
og svona gæti ég haldið lengi áfram.
Já, og svo hafa margir nýir og
skemmtilegir tónlistarmenn komið
inn á sviðið að undanförnu. Fyrir
nokkrum misserum vissi enginn
hver söngvarinn Ásgeir Trausti
væri, en nú selur hann hljómplötur í
bílförmum eins og enginn sé morg-
undagurinn.“
Einar Bárðarson
Stendur
undir
væntingum
„Jólalagakeppnin
hefur gefið fjölda
efnilegra laga-
smiða frábært
tækifæri til að
koma lögunum
sínum á fram-
færi. Síðustu ár
höfum við stund-
um fengið í
kringum 100 lög. Því er þetta dæmi
farið að veita Evróvisjón harða
keppni,“ segir Ólafur Páll Gunn-
arsson, útvarpsmaður á Rás 2. Hann
er lykilmaðurinn á bak við þessa
keppni sem hefur unnið sér fastan
sess í lífi landans. Bæði tónlist-
arfólks og hlustenda út um landsins
breiðu byggðir sem bíða eftir jóla-
smelli ársins.
Skilafrestur í keppninni þetta árið
er til 1. desember, en lögin eiga að
berast til RÚV í Efstaleiti á diski eða
öðru stafrænu formi svo þau séu hæf
til útvarpsspilunar. „Um leið og lög-
in berast veljum við tíu lög og leik-
um fyrir hlustendur. Í framhaldinu
fá þeir alla dýrðina beint í æð og
þegar líður á mánuðinn geta þeir
svo valið jólalag ársins. Það er
stemning í kringum þetta. Stundum
fáum við lög frá reynsluboltum en
líka mjög gott framlag frá nýliðum,“
segir Ólafur Páll.
Sigurlagið í fyrra var Jólanótt,
samið og flutt af ungliðasveitinni
White Signal. Jólalag Rásar 2 árið
2010 var Jól með Brother Grass.
Daníel Geir Moritz bar sigur úr být-
um árið 2009 með Jólastress. Jóla-
lagið árið 2008 var Betlehem í flutn-
ingi Gretu Salóme Stefánsdóttur,
sem var fulltrúi Íslendinga í Evr-
óvisjón sl. vor.
Ólafur Páll Gunnarsson
Stemning í
kringum
þetta
Morgunblaðið/Kristinn
Ljós Fátt minnir jafnsterkt á nálægð jólanna og logandi kveikur á rauðu
kerti. Stemningin verður góð og undir ljúfum tónum er lífið gott.
Tónlistin er í
aðalhlutverki
Íslensk tónlist er jólagjöfin í ár. Í pakkanum geta
verið geisla- eða mynddiskar og ekki er síðra að
gefa eða jafnvel kaupa fyrir sjálfan sig miða á
einhvern af þeim skemmtilegu tónlistarvið-
burðum sem framundan eru. Hver nýtur lífsins
með sínum hætti – en oft er falleg og töfrandi
tónlist þar í algjöru aðalhlutverki.
F
A
S
TU
S
_E
_0
5.
11
.1
2
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • verslun opin mán - fös 8.30 - 17.00 (Öll verð eru með vsk.)
Fagmennskan
fram í fingurgóma
alvöru atvinnugræjur í eldhúsið
Dualit brauðrist - rauð (2 brauðsneiðar) kr. 32.944,-
Dualit blandari 41.722,-
Yaxell japanskur stálhnífur - RAN 20cm kr. 15.808,-
Emga þeytari frá kr. 1.013,-
C&S glas kr. 766,- stk. (6stk í pakka)
C&S vatnskanna kr. 5.585,-