Morgunblaðið - 24.11.2012, Síða 100

Morgunblaðið - 24.11.2012, Síða 100
100 Jólablað Morgunblaðsins S tarfsemin hér hjá Nóa- Síríus snýst að talsverðu leyti um hátíðarnar tvær: páskana og jólin. Fyrstu drög að jólunum lögðum við strax á miðju sumri og nú er framleiðslan á fullum dampi,“ segir Kristján Geir Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Síríus. Jólaundirbúningur Ís- lendinga hefst af alvöru í desem- berbyrjun. Á flestum heimilum er bakað og margs þarfnast búið við, eins og máltækið segir. Alltaf sama súkkulaðið Bökunarvörur eru stór þáttur í jólaframleiðslu Nóa-Síríus. Lætur nærri að vörunúmer fyrirtækisins í þeim flokki séu á bilinu tuttugu til þrjátíu. Þar er suðusúkkulaðið Sí- ríus Konsum líklega efst á blaði; 200g gramma stykki í smjörpappír sem áprentuðum miða er brugðið um. Í þessum umbúðum hefur súkkulaðið verið frá árinu 1933. „Súkkulaði í þessum umbúðum er orðið samofið íslenskri hefð. Hluti af þjóðarsálinni. Að einstaka vörur geti með umbúðum náð svona sterkri stöðu er mjög sjaldgæft,“ segir Kristján Geir. „Raunar erum við alltaf að fikra okkur aðeins áfram með þessa vöru eins og aðrar. Fyrir nokkrum árum settum við nýjar útgáfur af Konsum súkkulaði á markað. Þar er um að ræða 56% og 70% súkkulaði; þó þetta hefð- bundna í smjörpappírnum sé og verði áfram í boði. Annað kemur ekki til greina.“ Perlur og Pipp Af öðrum bökunarvörum Nóa- Síríus má nefna hjúpdropa í tveimur tegundum og Konsum súkkulaði- dropa. Hefðbundið rjómasúkkulaði virkar líka í baksturinn, súkku- laðiperlur og myntu og karamellu- blandað Pipp. Einnig karamellu- og lakkrískurl og er þá fátt eitt nefnt. „Framleiðsla okkar er í stöðugri þróun. Við förum hægt í breytingar en sé þetta skoðað yfir lengri tíma má sjá að framleiðslan nú er allt önnur en var kannski fyrir áratug. Við hlustum á neytendur og fáum við ýmsar ábendingar um hvað framleiða eigi. Þeir koma oft með góðar hugmyndir sem vissulega nýtast, og við leggjum mikið upp úr því að fá sjónarmið þeirra og við- brögð við vörunum,“ segir Kristján Geir. Konfekt í sjö kassastærðum Svo er það Nóa-konfektið sem nú býðst í sjö kassastærðum. Í eru molar af ýmsum stærðum og gerð- um með ýmsum bragð- og fyllingar- tegundum. „Þessi framleiðsla krefst ná- kvæmni og margt þarf að gera í höndunum,“ segir Kristján Geir sem bætir við að alltaf sé talsvert lagt í útlit konfektkassanna. Í ár var leitað til þeirra Skarphéðins Þráins- sonar og Helgu Kvam með ljós- myndir úr íslenskri náttúru. Er ekki annað að sjá en þeim hafi tekist vel upp. Þá prýða tvær gerðir kassa málverk Daða Guðbjörnssonar, sem er einn af betri myndlistarmönnum þjóðarinnar. sbs@mbl.is Súkkulaði samofið íslenskri hefð Súkkulaði er hluti af jólahefðinni segir Krist- ján Geir hjá Nóa- Síríus. Á það jafnt við um bökunarvörur sem gómsætt konfekt í fal- legum umbúðum. Morgunblaðið/Styrmir Kári Góðgæti „Drög að jólunum lögðum við strax á miðju sumri,“ segir Kristján Geir Gunnarsson um þá vertíð sem konfektframleiðslan hjá Nóa Síríus er. ’Förum hægt í breytingar en sé þetta skoðað yfir lengri tíma er fram- leiðslan nú önnur en var kannski fyrir áratug. Við hlustum á neytendur. Blindir sjá verkin með því aðþreifa en þeir sem sjá verða ímyrki,“ segir Dröfn Guð- mundsdóttir myndhöggvari. Hún er meðal listamanna sem standa fyrir opnu húsi á Korpúlfsstöðum nk. fimmtudag, 29. nóvember, frá 17. til 21. Atburð- urinn nefnist Ljós í myrkri. Hljómsveitin Visionaires, sem alfarið er skipuð blindum tónlist- armönnum, mun leika fyrir gesti í sýningarsal. Lág- stemmd ljós verða við hvert listaverk og þannig verður reynt að skapa ákveðna dul- úð, að sögn Drafnar. Listamenn á Korpúlfsstöðum vinna að ýmsum áhugaverðum verk- efnum, svo sem geirlist, graf- íkmyndagerð, glerverkum, málun og textílgerð, þeir teikna, hanna skartgripi og fleira. Þetta eru lista- mennirnir Anna G. Torfadóttir, Ás- dís Þórarinsdóttir, Bryndís G. Björg- vinsdóttir, Dröfn Guðmundsdóttir, Edda Þórey Kristfinnsdóttir, El- ísabet Stefánsdóttir, Guðfinna A. Hjálmarsdóttir, Guðrún Þórisdóttir, María Valsdóttir, Marilyn Herdís Mellk, Sigurður Valur Sigurðsson, Tinna Kvaran, Valgerður Björns- dóttir og Þórdís Elín Jóelsdóttir. Í galleríinu á Korpúlfsstöðum verður opið í eftirmiðdaginn frá fimmtudegi til sunnudags. Í desem- ber er síðan sérstakur jóla- afgreiðslutími á fimmtudags- kvöldum en þá býðst gestum og gangandi að líta inn alveg fram til kl. 21. sbs@mbl.is Ljós í myrkri Listsköpun á Korpúlfsstöðum. Blindir hljómsveit- armeðlimir og dulúðug lýsing. Geirlist, grafík, glervinnsla, málun, textílgerð og fleira. List Lögð verður rækt við ýmsa list- sköpun á Korpúlfsstöðum á aðventu. Dröfn Guðmundsdóttir Svarið við spurningu dagsins Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is JÓLAHLAÐBORÐ Fyrir heimili og vinnustaði Makrílkæfa með ristuðum kókos, döðlum og greipaldin Grafin rauðspretta með piparrótarrjóma Reyktur lax á blinis Síldartvenna Hreindýrabollur með bláberjagljáa Reykt andabringa með rauðbeðu- og mandarínusalati Ostahleifur í hátíðarbúningi Hvít súkkulaði lime terta 4.500 kr. á mann miðað við 8 manns eða fleiri. Fylgifiskar veisluþjónusta 533-1300. Við erum byrjuð að taka pantanir fyrir jólahlaðborð. Jólahlaðborðin byrja síðustu vikuna í nóvember.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.