Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 101

Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 101
Jólablað Morgunblaðsins 101 Morgunblaðið/Sigurgeir S. Jólastemning Austurstræti var eitt sinn gata skáldanna en í desember er hún og allt umhverfið í einskonar hátíðarbúningi enda jólin að nálgast. Allir eiga jóla- sögur að segja Við upplifum jólin hvert á sinn hátt. Allir eiga sínar góðu minningar um hátíðina en ekki síður frá aðventunni, þessar fjórar vikur þegar mann- lífið blómstrar og allir sýna sínar bestu hliðar. Prestur, þingmaður og rithöfundar höfðu á hrað- bergi skemmtilegar sögur frá jólunum í sínum ranni. „Jólahátíð fatl- aðra markar upp- haf aðventunnar í minni tilveru. Þar ríkir sannarlega sameiginlegur kærleikur meðal allra á staðnum,“ segir Sigmundur Ernir Rúnarsson alþingismaður. Hátíðin góða sem verður haldin í þrítugasta sinn hinn 12. desember er sjálfsprottin. Upp- hafsmaður er André Bachmann, tón- listarmaður og strætóbílstjóri, og hefur hann alla tíð verið potturinn og pannan í málinu. „Tónlistarmenn sem þarna koma fram eru í raun landsliðið sjálft. Rúnar Júlíusson kom alltaf meðan hans naut við. Einnig má nefna Magna Ásgeirsson, Siggu Beinteins, Helga Björnsson, Ragga Bjarna og fleiri. Þetta fólk segir mér að hvergi fái það betri sal né þakklátari áheyr- endur. Í raun er hátíðin ekki síður mikilvæg þeim en börnunum sem flest eru með þroskahömlun,“ segir Sigmundur Ernir sem sl. fimmtán árin eða svo hefur verið kynnir með fulltingi Eddu Andrésdóttur. Meðal gesta í ár eru t.d. Eyþór Ingi, Ingó veðurguð, hljómsveitirnar Klaufar og Land og synir með söngvaranum Hreimi. Heið- ursgestur er Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands. Sigmundur Ernir segir í raun úti- lokað annað en smitast af gleðinni á jólahátíð. „Ég kynntist þessari hátíð í gegnum dóttur mína, Eydísi Eddu, sem var fötluð og lést fyrir nokkrum árum. Mér hefur alltaf verið ljúft að taka þátt í þessari hátíð. Sigmundur Ernir Rúnarsson Sameigin- legur kær- leikur allra Ef allt gengur upp verða fimm guðþjónustur í prestakallinu um jólin. Löng hefð er fyrir messu hér á Hólmavík á að- fangadagskvöld og þremur á jóla- dag; á Drangs- nesi, Kollafjarðarnesi og Óspakseyri. Frá síðastnefnda staðnum og norður í Árneshrepp – þar sem messað verður á annan í jólum – eru um 150 kíló- metrar. Yfirferðin er því talsverð,“ segir sr. Sigríður Óladóttir. Rúm tuttugu ár eru síðan Sigríður tók við prestsembætti á Hólmavík. Á þeim tíma hefur orðið nokkur breyt- ing á kirkjuskipan í Strandasýslu. Nú þjónar Sigríður í tíu sóknum, átta kirkjum og um sjö hundruð sálum; það er á Ströndum og í innanverðu Djúpi. Byggð í nokkrum sóknanna er komin í eyði, þó sú ræktarsemi sé sýnd að messa þar kannski einu sinni á sumri eða við sérstök tilefni. „Í tímans rás hefur verið allur gangur á því hvort fært er norður í Árneshrepp um jólin. Kannski hef ég komist þangað önnur hver jól, en á móti kemur að síðustu vetur hafa ver- ið miklu snjóléttari en var og því er auðveldara að komast þetta. ,“ segir Sigríður sem kveðst byrja að rissa upp ræðurnar snemma á aðventunni. „Auðvitað er talsvert að skrifa fimm ræður sem flytja skal á þremur dögum. Ég leyfi mér þó ekki að flytja alltaf þá sömu. Hins vegar er allt spunnið út frá sama guðspjallinu. Því hef ég stundum leyft mér að nota hrafl úr einni ræðu í aðra,“ segir Sig- ríður. Sigríður Óladóttir Fimm mess- ur á þremur dögum „Jólin 1974 eru mér minnisstæð en þá var ég sjö ára heima á Hvammstanga,“ segir Eyrún Ingadóttir rithöf- undur. „Á að- fangadag biðum við Eygló tví- burasystir mín, sjö ára, og Ragnar bróðir, tíu ára, óþreyjufull eftir jól- unum og horfðum löngunaraugum á pakkana. Þá var ekki hægt að stytta sér stundir með því að horfa á barnaefni í sjónvarpinu því vegna veðurs lágu útsendingar niðri. Í staðinn mændum við á vísana snigl- ast áfram á veggklukkunni og flæktumst fyrir mömmu og pabba sem voru á kafi í að undirbúa hátíð- ina. Loks varð klukkan sex. Hátíð- armatur var borinn á borð og þá fór rafmagnið af þorpinu. Kveikt var á fleiri kertum og ég man eftir gleðinni því ég fékk nú loks að hafa kerti og fikta! Við tókum upp pakk- ana við kertaljós og seinna um kvöldið, þegar pabbi ætlaði að fara út í bílskúr, kom í ljós að okkur hafði fennt inni. Nú voru góð ráð dýr því kanínurnar tvær í skúrnum áttu eftir að fá sinn jólamat. Brugð- ið var á það ráð að tálga odd á kúst- skaft, epli og fleira góðgæti sett á hann og skaftinu stungið meðfram leiðslum sem lágu frá búri og inn í skúrinn til kanínanna. Óveðrið stóð næstu tvo sólarhringa og þegar loks stytti upp komst rafmagnið á aftur. Þá voru rafhlöður vasaljósa orðnar tómar og kerti brunnin upp. Það er mér í barnsminni hvað þetta voru notaleg jól og þvílíkur snjór.“ Eyrún Ingadóttir Notaleg jól og raf- magnslaus Marentza ásamt meistarakokknum Þórhalli Sverrissyni framreiða 35 rétta jólahlaðborð í Café Flóru í Grasagarðinum. Ævintýraleg matarupplifun helst í hendur við rótgrónar danskar hefðir. Monika Abendroth leikur á hörpu undir borðhaldi. Jólahlaðborðið er öll fimmtudags-, föstudags- og laugardagskvöld. Veislan hefst 29. nóvember og stendur til 22. desember. Hópar eru velkomnir alla daga. Veisluþjónusta fyrir minni og stærri hópa. Matseðilinn og nánari upplýsingar má finna á www.cafeflora.is Borðapantanir í síma 553-8872 eða á cafeflora@cafeflora.is Jólaævintýri Marentzu Poulsen - ógleymanleg jólaveisla í Grasagarðinum
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.