Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 102

Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 102
102 Jólablað Morgunblaðsins V æntanleg áramóta- og þrettándastund er byggð á geisladisk- unum Áramóta- og þrettándagleði sem Sigríður Anna gaf út í desember 2011. „Þessir diskar voru ætlaðir til þess að mæta þörfinni fyrir áramótaefni,“ útskýrir Sigríð- ur. Til marks um það hve þörfin hafi verið rík bendir hún á að diskarnir hafa komist í efsta sætið á Tónlistanum, lista Félags hljómplötufram- leiðanda, og sömuleiðis komist á Topp 10 lista Skífunnar. Gleymum ekki áramótahefðinni „Mér finnst vera þörf á að gefa þjóðararfi okkar gaum á þann hátt sem verður í Hákólabíói með ára- móta- og þrettándastundinni,“ segir Sigríður. „Það eru margir jólatónleikar skipulagðir á aðvent- unni ár hvert en það hefur minna farið fyrir því sem tengist áramót- unum og menningararfinum. Menningin í kringum áramót og þrettánda á sér sína sögu,“ minnir Sigríður á. Í Háskólabíói verða gömlu, góðu áramóta- og þrett- ándalögin leikin og sungin og má þar á meðal nefna Máninn hátt á himni skín, Nú er glatt í hverjum hól, Nú er glatt hjá álfum öllum, Stóð ég úti í tunglsljósi og fleiri lög sem kveikja á hinni þjóðlegu áramóta- stemningu. Glöð stund og góðir gestir Margt góðra gesta kemur fram á áramóta- og þrettándastundinni. Dr. Árni Björnsson, einn helsti sérfræðingur landsins í menning- arsögu og þjóðháttum sem hefur frætt þjóðina um menningarsögu sína í áratugi, mun kveða sér hljóðs og fjalla um það helsta er viðkemur áramótum og þrettánda á Íslandi. Eins og margir vita þá er sérstaklega gaman að hlusta á hann. „Þá mun Örn Magnússon flytja nýársvísur séra Hallgríms Péturssonar og leika undir á sym- fón en það er eitt elsta hljóðfæri á Íslandi. Heimildir um það ná aftur til tólftu eða þrettándu öld,“ segir Sigríður. Það er alveg sérstök ára- mótastemning sem Örn skapar með þessum flutningi. „Kyn- slóðakórinn mun flytja áramóta- sálminn sígilda, Nú árið er liðið. Ég fékk hugmyndina um að setja saman kór og kalla hann Kyn- slóðakór til þess að syngja þennan sálm sem mér þykir svo vænt um. Mér fannst heillandi tilhugsun og eitthvað svo viðeigandi að láta flytja áramótasálminn á þennan hátt.“ Það eru fimm kynslóðir sem syngja hver sitt erindið. Þjóðsögur og söngvar „Okkar einstöku leikarar, Hjalti Rögnvaldsson og Ragnheiður K. Steindórsdóttir, verða með upp- lestur á áramóta- og þrett- ándaþjóðsögum sem Jón Árnason safnaði saman, eigum við honum mikið að þakka,“ segir Sigríður. „Við förum með leikurunum aftur í tímann og það verður ævintýri.“ Alls verða yfir hundrað flytj- endur sem stíga á svið þann 30. desember kl. 14. Þeir eru auk þeirra fyrrnefndu þau Guðbjörg R. Tryggvadóttir sópran, Snorri Wium tenór, Eiríkur Örn Pálsson tromp- etleikari, Hólm- fríður Sigurð- ardóttir píanóleikari, Jóhann Baldvinsson org- anisti, Kór Nes- kirkju ásamt stjórn- anda, Steingrími Þórhallssyni, Lúðra- sveit Reykjavíkur ásamt stjórnanda, Lárusi Halldóri Grímssyni, og loks nemendur úr Söngskóla Sigurðar Demetz. „Er ég öllu þessu góða fólki innilega þakklát fyrir að láta hugðarefni mitt verða að veru- leika,“ segir Sigríður. „Þá verð ég að nefna það að engin önnur en Gerður G. Bjarklind, okkar ást- sæli útvarpsþulur, mun leiða ára- móta- og þrettándastundina,“ seg- ir Sigríður Anna og að endingu bætir hún við: „Ég hlakka mikið til.“ jonagnar@mbl.is Áramótin eiga sína sögu Þann 30. desember verður áramóta- og þrett- ándastund í Háskólabíói á þjóðlega vísu. Stund sem þessi hefur ekki verið haldin áður og ætti hún að koma öllum í áramótaskap, segir Sigríður Anna Einarsdóttir sem skipulegur samkomuna. Morgunblaðið/Ómar Áramót Árið brennt út og álfar syngja við gítaspil við bálköstinn í Kópavogi. Sigríður Anna Einarsdóttir ’Heillandi til- hugsun og viðeig- andi að láta flytja áramótasálminn á þennan hátt. Margar verslanir leggja mikið upp úr fallegum jóla- útstillingum og ráða jafnvel fagfólk til starfa. Að ganga niður Laugaveginn fyrir jól er góð skemmtun fyrir alla fagurkera sem hafa ánægju af fallegum gluggaútstillingum. Í versluninni Spaksmannsspjörum við Bankastræti í Reykjavík hefur sama fallega gluggaútstillingin verið notuð í meira en tíu ár, svo vel heppnuð er hún. Þetta einfalda jólaskraut getur fólk auðveldlega gert heima hjá sér. Krukkum af ýmsum stærðum hefur verið komið fyrir og hver merkt númeri frá einum upp í 24 eins og á jóladaga- tali. Á hverjum degi desember til aðfangadags er svo kveikt á einu kerti. arnasigrun@gmail.com Ljós Skemmtilegt jóladagatal sem allir geta gert. Eitt kerti fyrir hvern einasta dag desember fram til jóla. Bæði einfalt og fallegt Fallegar útstillingar í búðagluggum í borginni. Skreytingin í Spakmanns- spjörum er sígild og vekur jafan athygli vegfarenda sem leið eiga um.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.