Morgunblaðið - 24.11.2012, Side 110
Á
jólunum vill maður að
allt sé fínt og flott. Jóla-
hreingerning er gerð á
heimilinu og fólk fer í
sitt fínasta púss og
borðar uppáhaldsmatinn sinn. Fata-
hönnuðirnir Hildur, Hilda, Helga og
Hlín eru þar engin undantekning og
þær hafa þegar ákveðið hvaða fín-
iríi þær ætla að klæðast á jólunum.
Þær velja að sjálfsögðu eigin hönn-
un sem fæst í versluninni Kiosk við
Laugaveg. Þær sýna okkur hér
hverju þær ætla að klæðast á jól-
unum og deila sínum jólahefðum.
Hildur Yeoman
Hildur Yeoman sem hannar und-
ir eigin nafni hefur getið sér gott
orð fyrir fylgihluti sína sem og
teikningar sem hún vinnur gjarnan
með ljósmyndaranum Sögu Sig. Á
jólunum ætlar Hildur að bera hekl-
að hálsmen og krossaeyrnalokka úr
nýjustu línunni sinni. Hálsmenið er
með perlu- og steinabróderíi og er
það einstaklega hátíðlegt. Krossa-
eyrnalokkarnir eru með litríku
prenti eftir Hildi. Skart eins og
þetta setur punktinn yfir i-ið á jóla-
dressinu.
„Ég er mikið jólabarn og á af-
mæli í desember svo þetta er uppá-
haldsmánuðurinn minn. Ég er á
fullu við að búa til nýjar hefðir með
stráknum mínum, honum Högna,
sem er 3 ára. Við erum búin að
skipuleggja piparkökuhúsabakstur,
skautaferðir og erum aðeins byrjuð
að búa til jólaskraut svo þetta verð-
ur mjög spennandi mánuður.“
Hlín Reykdal
Hálsfestar Hlínar Reykal hafa
notið gríðarlegra vinsælda meðal ís-
lenskra kvenna, enda um ein-
staklega fallegt handverk að ræða.
Hlín ber hátíðlegt hálsmen úr nýju
línunni sinni. Það er úr handmál-
uðum tréperlum og silki. Það er
mjög hentugt því maður getur leik-
ið sér með það og breytt því.
„Það eru margar skemmtilegar
hefðir í fjölskyldunni minni og
mannsins míns, sumar gerðar hver
jól og aðrar hefðir þegar hentar.
Svo erum við að koma okkur upp
okkar eigin hefðum.
Það er eitt sem mér finnst alveg
ómissandi og það er að gera jóla-
kransa. Stundum hef ég fengið vin-
konur mínar í heimsókn og við ger-
um þá saman. Ég geri bæði á
útidyrnar og aðventukrans. Ég
elska það, ferskt greni, eitthvað
glitrandi, jólatónlist og kannski smá
rauðvín … sérstaklega ef stelp-
urnar koma. Svo má ekki gleyma
möndlugrautnum hjá mömmu og
pabba í hádeginu á aðfangadag og
sænska jólaskinkan þeirra er sú
allra, allra besta. Það er hægt að
grafa upp þessa dásamlegu upp-
skrift í gömlu Morgunblaði. Mæli
með henni.“
Milla Snorrason
Hilda Gunnarsdóttir hannar und-
ir merkinu Milla Snorrason og hef-
ur hún nýlega bæst við í Kiosk-
hópinn. Jólakjóllinn hennar er þessi
rauðköflótti úr silkiflaueli sem er
með sniði í anda 7. áratugarins.
Hann er mjög sérstakur í augum
Hildu af því að þetta er fyrsti jóla-
kjóllinn sem hún hannar fyrir
merkið sitt. Hann er, að mati Hildu,
hæfilega einfaldur og þetta guð-
dómlega efni lætur manni líða eins
og gyðju.
„Uppáhaldshefðin mín er Þor-
láksmessukvöld þegar fjölskyldan
hans pabba kemur saman, snæðir
tindabikkju með hamsatólg, kart-
öflum og rófum og rennir öllu niður
með ákavíti, auk þess að fá til skipt-
is hlátursköst og ærleg hóstaköst af
fnyknum.“
Helicopter
Helga Lilja hannar undir merk-
inu Helicopter og kallast jólakjóll-
inn hennar „The Player“. Hann er
níðþröngur, eldrauður og gegnsær
á akkúrat réttu stöðunum.
„Jólahefðin mín þegar ég var lítil
var að lesa bókina „Pernille og jóla-
pósturinn“, 24 kaflar af æsispenn-
andi jólapóstútburði. Því miður datt
þessi hefði upp fyrir hjá mér, en ég
horfi á „The Nightmare Before
Christmas“, Tim Burton-myndina
fyrir hver einustu jól.“
arnasigrun@gmail.com
Morgunblaðið/Ómar
Jólakúlur Hlín Reykdal ber hálsfesti úr handmáluðum trékúlum og silki.
Jóladress fatahönnuða
Silkiflauel Gullfallegur kjóll frá Millu Snorrason. Jólarautt Samkvæmiskjóll úr nýjustu línu Helicopter. Heklað Í skartinu frá Hildi Yeoman mætast handverk og hönnun.
Fatahönnuðirnir vita
best allra hverju er
fínast að klæðast á
jólunum.
’Þegar saman koma perlur og steinar, silki og flauel,
getur útkoman ekki orðið annað en unaðsleg.
110 Jólablað Morgunblaðsins
Mikið úrval
af fallegum
skóm og
töskum
www.gabor.is - facebook.com/gaborserverslun
Sérverslun með
25 ár
á íslandi
FÁKAFENI 9 - Sími 553 7060
Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16