Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 111

Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 111
H jónin Yrsa Þöll Gylfa- dóttir og Gunnar Theódór Eggertsson eru bæði bók- menntafræðingar og hafa mikið dálæti á yndislestri þegar tækifæri gefst til slíks mun- aðar. Eins og aðrar ungar fjöl- skyldur eru þau meðvitað og ómeð- vitað að skapa sér sínar jólahefðir með dóttur sinni sem nú mun halda sín önnur jól. Blaðamaður ræddi við þau um uppáhalds- jólabækurnar. Eigið þið ykkur uppáhalds- jólabók sem þið flettið í hver jól? Gunnar: Ég á mínar jólamynda- og jólatónlistarhefðir, en ekki beint neina jólabók sem ég dreg fram um hverja hátíð. Mér finnst eitt- hvað mjög jólalegt við að hverfa ofan í einhverja ævintýrabók, held ég. Kannski vegna þess að ég tengi það við barnæskuna. Ég gæti til dæmis alltaf hugsað mér að draga fram Lísu í Undralandi um jólahá- tíðina. Sú bók passar svo vel við þetta tímabil og við það að hverfa alveg inn í aðra veröld. Yrsa: Já, ég segi eins og Gunn- ar, en gæti svo sem vel hugsað mér að vera með slíka hefð, ég ætla að gera eitthvað í þessu! Hverjar eru að ykkar mati mest spennandi bækurnar sem koma út fyrir þessi jól? Yrsa: Þegar ég kemst í langþráð jólafrí frá Leiðsöguskólanum get ég vonandi farið að bæta við mig yndislestri og hætt að lesa bara jarðfræði-, fuglafræði- og sögu- bækur. Þannig að ég hugsa mér gott til glóðarinnar. Á óskalist- anum verða líklegast nýja bókin hennar Kristínar Eiríks, Hvítfeld, svo hljómar Kantata, nýjasta bókin eftir Kristínu Marju, ekki illa held- ur, og svo til að gleyma nú ekki köllunum þá kemur nýjasta bók Eiríks Arnar, Illska, vel til greina, en hún er soddan doðrantur að kannski verður Suðurglugginn eft- ir Gyrði fyrir valinu ef frítíminn er á þrotum. Annars er ég auðvitað æsispennt yfir nýju bókinni hans Gunnars, Steinskrípunum, sem ég hef ekki lesið síðan einhvern tím- ann á frumstigi handritsins. Gunnar: Ætli mér finnist ekki mest spennandi sú gróska sem orðið hefur í fantasíubókum í ár, jafnt fyrir börn sem fullorðna. Eins og Yrsa minntist á er ég sjálfur að gefa út bók en ég fagna ekki síður samkeppninni í þessum geira sem lítið hefur farið fyrir lengi, en er loksins að verða meira áberandi. Þá á ég við barna- og unglingabók Hildar Knútsdóttur, Spádóminn, og svo bókina sem vann barnabókaverðlaunin, en sem er víst fyrir „börn á öllum aldri“, Hrafnsauga, eftir þá Kjartan Yngva Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson. Auk þess ætla ég mér að lesa Heljarþröm, aðra bók- ina í fantasíuþríleik Emils Hjörv- ars Petersen, Sögu eftirlifenda. Hver er uppáhaldsjólabókin til að lesa með börnum? Yrsa: Já, nú er maður orðinn foreldri, þá verður maður þræll hefðanna, greinilega! En það er bara gaman. Ég gæti vel hugsað mér að lesa fyrir dóttur okkar æv- intýri Jónasar Hallgrímssonar, og svo íslenskar þjóðsögur – þótt það sé nú reyndar sérfag Gunnars … ætli við lesum ekki bara í kross. Svo elskaði ég bókina um Flauelskanínuna sem ég átti þegar ég var lítil, Vef Karlottu og allar barnasögur eftir Roald Dahl og gæti vel hugsað mér að lesa þær fyrir dóttur okkar. Gunnar: Þetta verða fyrstu jólin þar sem dóttir okkar getur lesið með okkur og haldið athygli – hún var ekki nema þriggja mánaða á síðustu jólum – þannig að við þurf- um eflaust að komast að því hver sé besta jólabókin til að lesa með henni. Í fyrra gáfum við henni gamla íslenska barnabók um kisur, með kisuljóðum, myndum og sög- um. Nú getum við sest niður og lesið hana með henni. Eigið þið ykkur einhverja skemmtilega jólabókaminningu? Gunnar: Til að halda áfram fant- asíu-tengingunni, þá dettur mér helst í hug – og þetta er ekki bein- línis bók, en í áttina – glæsilegt kassettubox með BBC-útvarps- leikritinu um Hringadróttinssögu frá 1981 sem ég fékk að gjöf þegar ég var strákur, líklega ellefu eða tólf ára. Þetta voru þrettán spólur, að mig minnir, og ég hlustaði spenntur á söguna yfir jólin. Þetta sett er löngu komið út á geisla- diskum núna, en ég á það ein- hversstaðar inni í skáp heima hjá mömmu og pabba og væri til í að draga það aftur fram og hlusta, ef mér tekst að finna kassettutæki sem virkar. Yrsa : Ég hef fengið óhemju margar bækur í jólagjöf, fleiri en minningarnar um þær, en ég man mjög vel eftir að hafa lesið Matt- hildi, eftir Roald Dahl, á jóladag, í nýjum náttfötum og rúmfötum, þegar ég var í kringum 11 ára ald- urinn, og svo minnir mig að ég hafi eitthvert árið fengið bókina Litla tréhestinn í jólagjöf, sem mamma las svo úr fyrir mig á hverju kvöldi. Ég var svo heppin að mamma var til í þetta og ég man að ég þurfti samt alltaf að fylgjast með orðunum á blaðsíðunni á með- an hún las. Ein önnur, en skrítin, jólaminning er um bók sem ég fékk ekki að gjöf, en leigði á bóka- safninu í Garðaskóla þegar ég var 13 ára og það var bókin Dýra- garðsbörnin. Þarna las ég sumsé um eiturlyf, ofbeldi og vændi á sjálfum jólunum, óharðnaður og saklaus unglingurinn, og man að ég mátti varla vera að því að borða, og tók meira að segja bók- ina með mér að kvöldverðarborð- inu eitt kvöldið milli jóla og nýárs. arnasigrun@gmail.com Morgunblaðið/Styrmir Kári Bókafíklar Yrsa Þöll og Gunnar ætla að hella sér í bókalestur yfir jólin og Þórhildur Elín, dóttir þeirra, fær að njóta hans með þeim. Bókahjónin Yrsa og Gunnar Hjónin og bók- menntafræðingarnir Yrsa Þöll og Gunnar Theódór eiga ýmsar skemmtilegar minn- ingar um bækur á jól- um. Þau geta varla beðið eftir að komast í jólabækurnar í ár. ’Mjög jólalegt við að hverfa ofan í ævintýra- bók, held ég. Kannski vegna þess að ég tengi það við barnæskuna. Jólablað Morgunblaðsins 111 Úrval gjafabréfa í boði í öllu sem viðkemur heilsurækt, snyrti- og nuddmeðferðum. www.worldclass.is GEFÐU ÁVÍSUN Á GÓÐA HEILSU Í JÓLAGJÖF www.laugarspa.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.