Morgunblaðið - 24.11.2012, Síða 122
122 Jólablað Morgunblaðsins
Þ
eir sem upplifa ástvina-
missi átta sig fljótt á að
eftir það verða hlutirnir
ekki eins. Missirinn verð-
ur aldrei sárari en yfir
hátíðirnar þegar autt sæti sem áður
var fyllt blasir við þeim sem eftir
lifa. Jólin eru oft mjög erfiður tími
fyrir syrgjendur og tíminn sem áður
var tilhlökkunarefni veldur nú nag-
andi kvíða. Kvíðinn er jafnvel mest-
ur við að fara í kirkju á jólum, að
geta ekki haldið aftur af tárunum í
jólamessu þegar aðrir í messunni
fagna komu jólanna. Í ár verður
kyrrðarstundin haldin fimmtudag-
inn 6. desember kl. 20 í Grafarvogs-
kirkju.
Úr Grensáskirkju í
Grafarvogskirkju
Rósa Kristjánsdóttir, djákni á
Landspítalanum, er hluti af sam-
heldnum hópi sem staðið hefur að
kyrrðarstundunum frá upphafi.
Upphaf þessara stunda segir Rósa
að megi rekja til bréfs sem krabba-
meinslæknir sendi biskupi árið 1999
þar sem hann óskaði eftir samstarfi
um kyrrðarstund fyrir syrgjendur.
Biskup vísaði erindinu til Ragnheið-
ar Sverrisdóttur hjá kærleiksþjón-
ustu Biskupsstofu sem tók málið að
sér. Þannig hófst farsælt samstarf á
milli kirkjunnar og Landspítalans
um að halda árlega kyrrðarstund til
að búa syrgjendur undir þann erfiða
tíma sem jólin eru mörgum. Fyrstu
árin var kyrrðarstundin haldin í
Grensáskirkju. Stundirnar voru
strax vel sóttar. Fyrsta árið var
kirkjan ekki alveg fullskipuð en ár
frá ári fjölgaði í hópnum. Brátt var
svo komið að fullt var út úr dyrum
og þá var ákveðið að færa kyrrð-
arstundina yfir í Grafarvogskirkju.
Þar hefur stundin verið haldin und-
anfarin ár og enn er þar nóg pláss.
Kvíðir jólunum
Jólin eru mjög mikil fjöl-
skylduhátíð. Það kemur því ekki á
óvart að þegar einhver í fjölskyld-
unni deyr verði næstu jól á eftir
þungbær fyrir eftirlifendur.
„Við heyrum fólk oft tala um kvíða
fyrir næstu jólum þó að dauðsfallið
eigi sér stað að vori,“ segir Rósa.
„Fólk gerir sér þá strax grein fyrir
að næstu jól verða ekki eins og þau á
undan. Mörgum finnst ógnvekjandi
að fara inn í þessa hátíð, að horfast í
augu við missinn og auða sætið við
jólaborðið.“
Rósa segir að sumir bregði á það
ráð að fara til sólarlanda en taki þá
jafnvel út erfiðleika næstu jól á eftir,
það sé í raun frestun á vandanum.
„Kyrrðarstundin er hugsuð til þess
að hjálpa syrgjendum að horfast í
augu við jólin og vinna bug á þeim
kvíða sem þau valda mörgum.“
Í föstum skorðum
Það er ekki bara sami kjarninn
sem heldur áfram að vinna að þess-
ari kyrrðarstund heldur er fyr-
irkomulag hennar einnig í föstum
skorðum. Fyrst er lesinn ritning-
artexti en þess má geta að meðal
fastra liða er að prestur heyrn-
arlausra túlkar það sem fram fer í
kirkjunni. Síðan er jólaguðspjallið
lesið, þótt það sé svolítið snemmt, en
þetta er gert til að búa fólk undir að
fara í kirkju á jólum og vera þá ekki í
hópi syrgjenda. Hamrahlíðarkórinn
hefur í mörg undanfarin ár sungið á
kyrrðarstundinni en að söngnum
loknum er hugvekja og minning-
arstund. Á minningarstundinni hef-
ur fólk færi á því að ganga að stóru
kerti og kveikja á kerti til minningar
um ástvini sína. Að athöfninni lok-
inni er boðið upp á kaffi og spjall. Þá
geta syrgjendur hitt þá sem sáu um
aðhlynningu þeirra sem fallnir eru
frá og fólk veitir hvað öðru stuðning.
„Við fylgjumst vel með og ef fólki
líður mjög illa bjóðum við því að fara
afsíðis ef það vill og fá aðstoð.“
Mikill léttir
Rósa segir það eftirtektarvert
hvað fólki léttir við að koma á kyrrð-
arstundina. Þar viti fólk að hverju
það gengur og allir séu mættir á
sömu forsendum. „Á samverustund-
inni eru syrgjendur sem eru komnir
til að taka þátt í ákveðnu ritúali sem
undirbýr þá fyrir jólahátíðina, því
þeir kvíða henni. Þar má gráta og
þar er samkennd.“
Í kaffispjallinu eftir athöfnina
segir Rósa að fólki sé augljóslega
létt. Það sé þá kannski búið að gráta
svolítið og takast á við aðstæður sem
það hefur kviðið. Algengt er að fólk
sé að koma í fyrsta sinn í kirkju eftir
fráfall ástvinarins. „Ár eftir ár
sjáum við líka sömu andlitin. Það
fólk er ekki að mæta vegna eigin
sorgar heldur til að veita öðrum
styrk og aðstoð. Sumir koma langt
að, jafnvel norðan úr sveitum,“ segir
Rósa og heldur áfram:
„Það er virkilega gefandi og þakk-
látt að standa að þessari kyrrð-
arstund. Mér finnst þetta vera
ómissandi hluti af aðventunni og
jólaundirbúningnum. Það er mikil
hlýja og samhugur sem einkennir
stundina og fólk er mjög þakklátt
fyrir hana. Maður vill ekki missa af
því að taka þátt í þessu, það er svo
gefandi og mikils virði að fá að hitta
fólk og heyra hvernig því líður og
hvernig gengur. Þetta er jú hátíð
ljóssins og það er ánægjulegt að sjá
fólk ná sér út úr þessum kvíða og inn
í vonina um betri líðan.“
Opið öllum
Það er hluti af eftirfylgni og
vinnuaðferðum gjörgæsludeilda,
krabbameinsdeildar, líknardeildar
og kvenlækningadeildar Landspít-
ala að senda út bréf til að minna á
samverustundina. Þó telur Rósa að
rétt sé að minna á að kyrrðarstundin
sé opin öllum og allir séu velkomnir.
„Það eru ekki allir syrgjendur
sem fá bréf og sjálfsagt að benda
fólki á kyrrðarstundina sem gæti
haft gott af henni.“
halldorbach@gmail.com
Kyrrðarstund dregur úr kvíða
Þrettánda árið í röð
standa ýmsar einingar
innan LSH, Hjúkrunar-
þjónustan Karítas, Ný
dögun og Biskupsstofa
fyrir kyrrðarstund fyrir
syrgjendur í upphafi
aðventu. Kyrrðarstund-
in hefur alla tíð verið
vel sótt og er mjög mik-
ilvæg fyrir þá sem búa
sig undir að halda jól í
skugga ástvinamissis.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Í sorg „Kyrrðarstundin er hugsuð til þess að hjálpa syrgjendum að horfast í augu við jólin og vinna bug á þeim
kvíða sem þau valda mörgum þeirra,“ segir Rósa Kristjánsdóttir, djákni á Landspítalanum.
’Samhugur sem einkennir
stundina og fólk er mjög
þakklátt fyrir hana. Mað-
ur vill ekki missa af því
að taka þátt í þessu, það
er svo gefandi og mikils
virði að fá að hitta fólk og
heyra hvernig því líður.
Bakstur er hluti afjólamenningu Ís-lendinga. Margar
fjölskyldur koma saman á
aðventunni, baka pip-
arkökur eða setja sama hús
úr sama efni. Katla er um-
svifamikið fyrirtæki í sölu
og framleiðslu bök-
unarvara og stendur nú, 17.
árið í röð, fyrir samkeppni
um glæsilegasta piparkökuhús landsins.
Við ákváðum að gera tilraun með að fara
með sýninguna í Ráðhúsið og taka þannig
þátt í jólaævintýrinu þar, sem á að gera enn
hærra undir höfði þetta árið,“ segir Gísli
Vagn Jónsson, sölustjóri hjá Kötlu hf. en að
þessu sinni er leikurinn haldinn í samvinnu
við Ráðhús Reykjavíkur, ZO-ON, Flugfélag
Íslands, Hótel KEA, Hótel Rangá og Þjóð-
leikhúsið, sem leggja til vegleg verðlaun.
Keppt er í fullorðinsflokki og barna- og ung-
lingaflokki. Piparkökuhúsunum á að að skila
í Ráðhús Reykjavíkur 10. desember á milli
kl. 17 og 20, hvar þau verða til sýnis fram til
21. desember. Verðlaunaafhending fer fram
í Ráðhúsinu 16. desember.
„Við höfum gjarnan fengið á bilinu 30 til
40 piparkökuhús í keppnina og stundum
raunar fleiri. Metnaðurinn er mikill hvort
sem fólk býr til hús með þekktar íslenskar
byggingar sem fyrirmyndir eða lætur hug-
myndaflugið ráða og gerir hús samkvæmt
eigin huga. Því skorum við á alla áhugabak-
ara landsins og hvetjum þá til þátttöku –
bæði í listrænum tilgangi og eins til að fylla
heimilið ljúfum bakstursilmi,“ segir Gísli
Vagn Jónsson.
sbs@mbl.is
Listfengi Piparkökuhús eru falleg. Mörg hafa borist í keppni Kötlu sem nú er í 17. sinn.
Girnilegt Húsið smakkast vel og allt má
borða, jafnvel jólasveininn á skorsteininum.
Bakstursilmur og
mikill metnaður
Sautjánda piparkökuhúsa-
samkeppni Kötlu hf. verður í
Ráðhúsi Reykjavíkur.
Gísli Vagn Jónsson