Morgunblaðið - 24.11.2012, Síða 123
N
emaForum er „býli í
borg“, einskonar
menningarlegt rausn-
arbú þótt á miðju
Lækjartorgi sé,“ seg-
ir Ásta Kristrún, en jólastundirnar
verða haldnar á efstu hæð gamla
„strætisvagnahússins“ við Lækj-
artorg, með glæsilegu útsýni yfir
höfnina og Hörpuna. „Úr heimaeld-
húsinu berst ilmurinn af heitu
súkkulaði, jólatei og fleiru sem yljar
og kallar fram birtu og hlýjar minn-
ingar.“ Dagskráin byggir á upplestri
og frásögnum af íslenskum jólum og
jólahefðum og samtölum við gesti
um breytilega siði í sveitum og bæj-
um og svo auðvitað á söng og spili.
Dagskráin fer fram á íslensku frá
kl. 15-16:30 og á ensku frá kl. 17:30-
19. „Jólastundin á ensku er tvinnuð
saman við Bókmenntakynningar
NemaForum í tengslum við Reykja-
vík Bókmenntaborg Unesco.
Erlendir gestir á aðventunni
Erlendir jólagestir okkar eru
framhald af menningarvökum sem
við Valgeir höfum haldið á heimili
okkar um árabil,“ útskýrir Ásta .
„Það má segja að í dag búum við svo
gott sem á tveimur stöðum í 101.
Annan staðinn köllum við næt-
urhreiðrið og hinn NemaForum –
býli í borg. Í NemaForum er búslóð-
in okkar að stærstum hluta og þar
komum við saman þegar við gleðj-
umst með fjölskyld-
unni enda aðstaðan
öll hin glæsilegasta
og vítt til lofts og
veggja.“
Menningar-
dagskrár sínar fyrir
erlenda gesti og
ferðamenn halda þau
líka í bækistöð
NemaForum á
Lækjartorgi. „Við
horfum nú fram á að
halda heilög jól með
ókunnum erlendum gestum, meðal
annars frá Sviss,“ segir Ásta. „Við
erum sjálf sex manna fjölskylda og
það er hægur leikur fyrir okkur að
stækka hópinn og taka á móti góðu
fólki í leit að nýjum upplifunum. Við
upplifum þessar aðstæður sjálf sem
jólaævintýri. Sumir ferðast yfir höf
og lönd í leit að nýstárlegum upplif-
unum á meðan við fáum þau til okk-
ar, beint heim í stofu.“
Jólastund með fjölskyldunni
Það má segja að það sé ekki í kot
vísað að sitja við jólaborð við stóra
gluggavegginn gegnt Hörpu, sem
lýsa má sem einu stærsta gler-
listaverki í heimi, en hún blasir
óhindrað við í gegnum gluggann
með leiftrandi ljósaspili sínu.
„Hefðirnar verða á sínum stað,
setið og spjallað fyrir kvöldmáltíð-
ina, hlustað á messu og fagra tónlist,
en þar þurfum við að taka mið af trú
og stöðu okkar mætu gesta,“ bendir
Ásta á. „Við verðum með okkar
hefðbundna jólamat en þó fleiri
gerðir en ella til að vera við öllu bú-
in, svo sem eins og reyktan lax,
lamb, hamborgarhrygg og kalkún
og nóg af góðu grænmeti og ekki má
gleyma að bjóða upp á laufabrauð og
bita af hangikjöti. Hér eiga allir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi í
matarkosti. Við erum bæði talfús og
tónelsk fjölskylda og njótum þess að
miðla og veita gestum innsýn í ís-
lenskan veruleika.“
Að sögn Ástu er flutningur á
Grýlukvæðum Jóhannesar úr Kötl-
um fastur liður hjá þeim þar sem
hinir djúprödduðu synir þeirra Val-
geirs fara á kostum með föður sín-
um í söng og þýðingu vísnanna jafn-
óðum. „Hið ljósa man, dóttir okkar,
tekur lagið á mildum nótum og
franska tengdadótt-
irin segir frá upplif-
unum sínum við að
verða hluti af ís-
lenskri fjölskyldu.“
Jólin verða því sann-
arlega með alþjóð-
legum blæ á efstu
hæðinni við Lækj-
artorgið.
Sameiginlegum
jólapökkum er út-
hlutað af handahófi
með textabútum úr
íslenskri bókmenntaflóru og þannig
varpað ljósi á íslenska menningu í
núinu sem og þátíð.
„Að lokum verður meiri tónlist,
hlýja, ljós og spjall, þar til súkkulaði
með rjóma, líkjör og smákökur ferja
hugi gesta yfir á kodda nætur-
innar.“
jonagnar@mbl.is
Hjónin Ásta Kristrún Ragnarsdóttir og Valgeir Guðjónsson ætla að halda jólastund á vegum
NemaForum fyrir unga sem aldna alla sunnudaga fram að jólum.
Morgunblaðið/Kristinn
Jólagestgjafar Ásta Kristrún Ragnarsdóttir og Valgeir Guðjónsson kunna að skreyta hús með greinum grænum — og rúmlega það.
’Hefðirnar verða á
sínum stað, spjall-
að fyrir kvöld-
máltíðina, hlustað
á messu og tónlist
Ljúf stund við Lækjartorg
Jólablað Morgunblaðsins 123