Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 126

Morgunblaðið - 24.11.2012, Page 126
126 Jólablað Morgunblaðsins Laugardaginn 24. nóvember Kex hostel við Skúlagötu, frá kl. 13- 17. Íslenskur vínylmarkaður. Út- gáfa nýrrar íslenskrar tónlistar á vínyl hefur stóraukist. Því var ákveðið að taka höndum saman og setja upp þennan markað þar sem hægt er að nálgast vínylplöturnar á einum stað. Tónlistarmenn og hljómsveitir eins og Borko, Ojba Rasta, Snorri Helgason, Tilbury, Múm og Ólöf Arnalds flytja nokkur lög. Flóra, Hafnarstræti 90 á Akureyri kl. 14. Íris Ólöf Sigurjónsdóttir opn- ar sýningu sem nefnist Drósir og draumar og sýnir þar textílverk og skart úr hráefni úr ýmsum áttum. Sýningin stendur fram yfir nýár. Fella- og Hólakirkja í Reykjavík kl. 14. Lúðrasveit verkalýðsins blæs til jólatónleika. Gömul og ný íslensk og erlend jólalög verða flutt á tónleik- unum. Stjórnandi er Kári Húnfjörð Einarsson. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Kaffisala í hléi. Sjóminjasafnið við Grandagarð kl. 14. Dimma útgáfa stendur fyrir menningardagskrá í Víkinni. Lifandi suðupottur ljóða og tónlistar. Fram koma listamennirnir Aðalsteinn Ás- berg, Svavar Knútur, Kristjana Stefánsdóttir, Agnar Már Magn- ússon, Hjörtur Pálsson, Andrés Þór og Sigurður Flosason. Félagsheimilið Borg í Grímsnesi kl. 15-17. Uppsveitastjarnan, hæfileika- keppni Upplits, á Borg í Grímsnesi. Á meðal keppenda eru trúður, trommuleikari, söngvarar og tónlist- arfólk. Dómnefnd velur atriði sem halda áfram og keppa til úrslita í mars á næsta ári. Seltjanarneskirkja kl. 17. Kamm- erkór Seltjarnarneskirkju heldur tónleika undir heitinu Ljúfir tónar frá liðnum öldum. Á tónleikunum verða flutt verk gamalla meistara. Í Kamm- erkór Seltjarnarneskirkju eru eink- um lærðir einsöngvarar og koma allir einsöngvarar tónleikanna úr röðum kórfélaga. Félagar úr Sinfóníu- hljómsveit áhugamanna leika undir ásamt Judith Þorbergsson orgelleik- ara. Stjórnandi er Friðrik Vignir Stefánsson. Kjallarinn, Laugavegi 73 kl. 17. Leikfélagið Peðið sýnir óperuna Bjarmaland II eftir Jón Benjamín Einarsson. Þetta er sjálfstætt fram- hald óperunnar Bjarmaland rísandi land, sem Peðið sýndi í fyrra. Þá kynntumst við ástföngnu fólki í gift- ingarhugleiðingum. Nú er komið að brúðkaupsferð parsins sem ferðast innanlands, enda sannir Bjarmlend- ingar á ferð. Háskólabíó kl. 18 og 21.30. Fjalla- bræður og Lúðrasveit Vestmanna- eyja halda tvenna tónleika í Há- skólabíói. Meðal annars frumflutt í fyrsta skipti á sviði í fullum skrúða lagið Ísland sem er hluti af verkefn- inu Þjóðlag. Á sviðinu verða yfir 100 manns á þessum tónleikum. Gestir verða Sverrir Bergmann og Magnús Þór Sigmundsson. Sunnudagur 25. nóvember Tjarnarbíó í Reykjavík kl. 14:00 Ævintýrið um Augastein. Orri Hug- inn Ágústsson er tekinn við af Felix Bergssyni, sem hefur borið uppi sýn- inguna frá byrjun. Verkið byggist á sögunum um sveinstaulana þrettán, syni Grýlu og Leppalúða, sem áttu það til að hrella fólk um jólaleytið, en í ævintýri leikhópsins er það dreng- urinn Augasteinn sem allt snýst um. Sýningar verða á sunnudögum út að- ventuna. Meðleikari og sviðsstjóri er Guðmundur Felixson og Kolbrún Halldórsdóttir leikstýrir. Samkomuhúsið á Akureyri kl. 14. Leikfélag Akureyrar frumsýnir verkið Ef ég væri jólasveinn. Ungur drengur í Giljaskóla á þann draum heitastan að vera jólasveinn. Þetta er sannkallað jólaævintýri, tilvalið fyrir börn frá fjögurra ára aldri, seg- ir í tilkynningu frá Leikfélaginu. Leikarar eru Aðalbjörg Árnadóttir, Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Einar Aðalsteinsson og Skúli Gauta- son. Leikstjóri er Sigríður Eir Zoph- oníasardóttir. Menningarmiðstöð Gerðuberg í Reykjavík kl. 14-16 Söngstund. Gest- um gefst kostur á að eiga saman góða stund og syngja og hlýða á söngva og sögu um fagurt sólarlag, kvöldvökur, rómantík og ævintýri í rökkrinu. Lögin eru blanda af íslenskum og er- lendum alþýðulögum. Bára Gríms- dóttir og Chris Foster halda utan um söngstundirnar. Auk þeirra koma fram að þessu sinni m.a. Róbert Marshall, Davíð Arnórsson og syst- urnar Rumyana Þorbjarnarson og Veska Jónsdóttir frá Búlgaríu og sagnakonan Rósa Þorsteinsdóttir. Menningarverstöðin Hólmaröst á Stokkseyri kl. 15. Elfar Guðni Þórð- arson á lokadegi sýningar sinnar Frá Djúpi til Dýrafjarðar. Hann sýnir Vestfjarðamyndir. Síðdegis í dag, sunnudag, verður Trönuspjall í verstöðinni. Það leiða, auk listmál- arans sjálfs, Guðbrandur Stígur Ágústsson, Björn Ingi Bjarnason og Björn E. Hafberg. Harpa – Kaldalón kl. 17. Caput- hópurinn heldur tónleika tileinkaða Þorkeli Sigurbjörnssyni tónskáldi. Menningarmiðstöðin Gerðuberg í Reykjavík kl. 20 Tónlistarkonan Ragnheiður Gröndal kemur fram á tónleikum ásamt hljómsveit sinni sem skipuð er þeim Guðmundi Péturssyni á gítar og fótbassa og Birgi Baldurs- syni sem leikur á trommur og slag- verk. Sjálf leikur Ragnheiður á píanó og hljómborð. Uppistaða tónleikanna verður hinn margrómaði diskur Vetr- arljóð, sem kom út árið 2004. 30. nóvember Harpa – Kaldalón kl. 19:30. Caput- hópurinn heldur tónleika tileinkaða Atla Ingólfssyni tónskáldi og verk- um hans. Yfirskriftin er Hörð efni. Atli Ingólfsson hefur samið mikið fyrir Caput. Ráðhústorg á Akureyri kl. 14.45. Kveikt á jólatrénu frá Randers, vina- bæ Akureyrar í Danmörku. Lúðra- sveit Akureyrar undir stjórn Albert- os Porros Carmona leikur. Helgi Jóhannesson, ræðismaður Dana á Akureyri, afhendir tréð fyrir hönd Randers. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri tekur við því. Barnakór Glerárkirkju syngur. Jólasveinarnir Kjötkrókur, Kertasníkir og Hurða- skellir stíga á svið. Langholtskirkja kl. 17 og 20. Að- ventutónleikar Söngfjelagsins. Ein- söngvarar Björg Þórhallsdóttir sópran og Einar Clausen tenór. Á efnisskránni eru þekkt og klassísk jólalög í bland við nýrri tónlist frá ýmsum löndum. Frumflutt verður nýtt jólalag eftir Þóru Marteins- dóttur. Stjórnandi er Hilmar Örn Agnarsson. Grensáskirkja kl. 17 og kl. 20 Kórar Margrétar J. Pálmadóttur, Stúlkna- kór Reykjavíkur og Cantabile, halda sína árlegu aðventutónleika í Grens- áskirkju. Fram koma um 180 söng- konur. Einsöngvarar eru Maríus Sverrisson og Guðrún Árný Guð- mundsdóttir. Hljóðfæraleikarar eru Antonia Hevesi á orgel, Eydís Franzdóttir á óbó, Laufey Sigurð- ardóttir á fiðlu og Stefanía Ólafs- dóttir á víólu. Listrænn stjórnandi er Margrét J. Pálmadóttir. Miða- verð er kr. 3.000 í forsölu. 2. desember Hallgrímskirkja kl. 17. Jólaóratóría eftir Sigurð Sævarsson frumflutt. Jóhann Smári Sævarsson bassa- söngvari, Kirstín Erna Blöndal sópran, Schola cantorum og Caput- hópurinn. Stjórnandi er Hörður Ás- kelsson. 5. desember Hallgrímskirkja 12.00-12.30. Að- ventuhádegistónleikar með Schola cantorum. Stjórnandi Hörður Ás- kelsson. Café Rósenberg, Klapparstíg kl. 21. Borgardætur, söngkonurnar Andr- ea Gylfadóttir, Ellen Kristjánsdóttir og Berglind Björk Jónasdóttir. Hljómsveit skipa Eyþór Gunnars- son, Birgir Bragason og Matthías Hemstock. Frá útkomu Jólaplöt- unnar, árið 2000, hafa Borgardætur haldið jólatónleika. Dagskráin er blanda hátíðleika og gáska. Tónleik- arnir á Rósenberg verða alls sjö; 5., 6., 7., 8., 18., 19. og 20 desember, og hefjast alltaf kl. 21. Að auki verða haldnir einir tónleikar í Salnum, Kópavogi, sunnudaginn 16. desem- ber kl. 20. Þar gefst færi á að upplifa dagskrána í öðru umhverfi. 6. desember Hallgrímskirkja kl. 12.00-12.30. Tónlistarandakt á aðventu. Org- eltónlist og íhugun. 8. desember Hallgrímskirkja kl. 17. Karlakór Reykjavíkur heldur árlega aðventu- tónleika. Viðar Gunnarsson bassi syngur einsöng með kórnum, Lenka Mátéóvá leikur á orgel, Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Páls- son leika á trompet og um slagverk sér Eggert Pálsson. Stjórnandi kórsins er Friðrik S. Kristinsson. Menningarhúsið Hof á Akureyri kl. 20. Norðurjól – tónlistarmenn af Norðurlandi flytja þekktar jólaperlur. Meðal flytjenda eru Óskar Pétursson, Helena Marín Eyjólfsdóttir, Matthías Matthíasson, Lísebet Hauksdóttir, Marína Ósk Þórólfsdóttir og Rúnar Eff. Hljómsveitarstjóri er Hallgrímur Jónas Ómarsson. 9. desember Hallgrímskirkja kl. 17 og 20. Að- ventutónleikar Karlakórs Reykja- víkur endurteknir. Sjá nánar hér að ofan. 12. desember Laugarneskirkja kl. 20. Árlegir jóla- tónleikar Helgu Möller. Hún syngur lög eins og Ég kemst í hátíðarskap, Aðfangadagskvöld, Jólaengill og Ís- lensku jólin. Fram koma dúettinn Þú og ég (Helga Möller og Jóhann Helgason), Ragnar Bjarnason, Gunn- ar Þórðarson, Helena Eyjólfsdóttir og Elísabet Ormslev. 13. desember Hallgrímskirkja 12.00-12.30 Tón- listarandakt á aðventu. Orgeltónlist og íhugun. Laugarneskirkja kl. 20. Tónleikar Helgu Möller endurteknir. Sjá hér að ofan. Harpa – Norðurljós kl. 20. Eva Guðný Þórarinsdóttir fiðluleikari heldur sína fyrstu einleikstónleika á Íslandi. Hún hefur stundað fiðlunám frá unga aldri, bæði heima og erlend- is, og fengið ýmsar viðurkenningar. Undirleikari er Benjamin Powell. 15. desember Harpa – Eldborg kl. 14 og 16. Jóla- tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands. Fluttur er nýr jólaforleikur í útsetningu Sigurðar Ingva Snorra- sonar, þar sem sígild íslensk jólalög eru í forgrunni. Jólasveinasvíta Guðna Franzsonar, með Halldóru Geirharðsdóttur sögumanni, leggur út af Jólasveinavísum Jóhannesar úr Kötlum. Þá er farið yfir í ástsælt er- lent jólalag, Litla trommuleikarann, sem verður flutt af ungum slagverks- nemendum. Sígild jólalög eiga fastan sess á tónleikunum og verða flutt af Þóru Einarsdóttur sópransöngkonu og Stúlknakór Reykjavíkur. Tónleik- unum lýkur á nýrri útsetningu Sig- urðar Ingva Snorrasonar af Heims um ból þar sem bjöllukór Tónlistar- skóla Reykjanesbæjar hringir inn jól- in. Stjórnandi sveitarinnar er Bern- harður Wilkinson. Hallgrímskirkja kl. 16. Aðventu- tónleikar Drengjakórs Reykjavíkur. Stjórnandi Friðrik S. Kristinsson. 16. desember Harpa – Eldborg kl. 14. Jóla- tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands. Sjá nánar hér að ofan. Hallgrímskirkja kl. 17. Orgel- tónleikar Orgelið og jólin. Björn Steinar Sólbergsson flytur org- elverk eftir Carter, Guilmant, Messiaen og fleiri. 19. desember Dómkirkjan kl. 22.00. Notaleg jóla- stund eftir amstur dagsins. Dómkór- inn syngur íslenskar og erlendar jólaperlur. Aðgangur ókeypis. Hallgrímskirkja kl. 12.00-12.30. Jólahádegistónleikar með Schola cantorum. Stjórnandi Hörður Ás- kelsson. Hafnarfjarðarkirkja kl. 21. Kamm- erhópurinn Camerarctica heldur sína árlegu kertaljósatónleika í kirkjum nú rétt fyrir jólin. Leiknar verða tvær af perlum Mozarts, Klarinettukvintett- inn og Flautukvartettinn í D-dúr. Að venju lýkur tónleikunum á því að Camerarctica leikur jólasálminn góða Í dag er glatt í döprum hjörtum úr Töfraflautunni eftir Mozart. Harpa – Norðurljós kl. 20. Kamm- ersveit Reykjavíkur býður til sann- kallaðrar veislu fyrir jólin þar sem fiðla, óbó og semball verða í aðal- hlutverkum. Einleikarar eru Una Sveinbjarnardóttir á fiðlu, Matthías Nardeau á óbó og Claudio Ribeiro á sembal og stjórnar hann sveitinni. Á efnisskrá eru konsertar frá bar- okktímabilinu. Nefna má sembalkons- ert eftir Johann Sebastian Bach og óbókonsert eftir Ítalann Marcello. Hápunkturinn er væntanlega frum- flutningur á fiðlukonsert frá 18. öld sem talinn er vera eftir Antonio Viv- aldi. Tónleikarnir enda svo á hinum þekkta Jólakonsert eftir Corelli. 20. desember Hallgrímskirkja kl. 12-12.30. Tón- listarandakt á aðventu. Orgeltónlist og íhugun. Kópavogskirkja kl. 21. Kammer- hópurinn Camerarctica með kerta- ljósatónleika. Sjá hér að ofan. 21. desember Menningarhúsið Hof á Akureyri kl. 20:30. Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens. Í tæp 30 ár hefur Bubbi haldið tónleika á Þorláks- messu. Tónleikarnir á Akureyri verða með sama sniði og hinir venju- bundnu Þorláksmessutónleikar sunn- an heiða, sem verða 23. desember. Garðakirkja kl. 21 Kammerhópur- inn Camerarctica með kertaljósa- tónleika. Dagskrá sjá hér að ofan. 22. desember Dómkirkjan í Reykjavík kl. 21. Kammerhópurinn Camerarctica með kertaljósatónleika. Dagskrá sjá hér að ofan. 29. desember Harpa – Eldborg kl. 17. Jólaóra- tóría Bachs með Mótettukór Hall- grímskirkju og Alþjóðlegu barokk- sveitinni í Haag en konsertmeistari hennar er Tuomo Suni. Stjórnandi: Hörður Áskelsson. 30. desember Harpa – Eldborg kl. 17. Jólaóra- tóría Bachs endurflutt. Sjá hér ofar. Grafarvogskirkja kl. 21. Garðar Thór Cortes heldur nýárstónleika. Gestir Garðars verða faðir hans, Garðar Cortes, Valgerður Guðna- dóttir og söngflokkurinn Mr. Norr- ington. Tónlistarstjórar eru Friðrik Karlsson og Óskar Einarsson. Auk nýárstónleikanna kemur Garðar Thór einnig fram á Frostrósum í ár. 31. desember gamlársdagur Hallgrímskirkja kl. 17. Hátíða- hljómar við áramót. Hátíðartónlist fyrir trompeta, orgel og pákur. Trompetleikararnir Ásgeir H. Stein- grímsson, Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson, Björn Steinar Sólbergsson orgelleikari. Atburðir á aðventunni Morgunblaðið/Júlíus Reykjavík Fjölmargir áhugaverðir menningarviðburðir verða í Hörpu á næstunni. Þar má t.d. nefna jóla- tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands en það er fastur liður hjá fjölda fjölskyldna að sækja þá. Söngur Á sunnudagskvöld heldur Ragnheiður Gröndal tónleika í Gerðubergi en uppistaðan í dag- skránni þar eru lög af geisladiskinum Vetrarljóð. Söngur Mörgum finnst Helga Möller vera söngrödd jólanna. Hún heldur, samkvæmt venju, aðventu- tónleika í Laugarneskirkju.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.