Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2012, Page 9
Google.com er ein mest notaða leitarvél heims. Ekki er langt síðan sá möguleiki
bættist við þegar leitarorð er slegið inn í leitargluggann að google birti tillögur
að því hvernig klára ætti setninguna eða nafnið sem leita átti að.
Samkvæmt upplýsingasíðu Google á leitarsíðan yfirleitt að skila góð-
um og viðeigandi niðurstöðum og gefa í skyn í hvaða samhengis
ákveðinna orða er oftast leitað af almenningi.
Flýtileit sýnir þá sjálfkrafa niðurstöður fyrir vinsælar leitir
sem byrja á ákveðnum bókstöfum og einstökum orðum. Stund-
um verða útkomurnar þó ansi skondn-
ar. Hér gefur að líta nokkrar
skemmtilegar niðurstöður af hin-
um og þessum leitarorðum og
nöfnum. Þess má geta að áður en leitin
var gerð í tölvu þar sem enginn var skráður
inn á gmail og leitarsaga hreinsuð. julia@mbl.is
ÚTKOMAN GETUR ORÐIÐ
SKONDIN ÞEGAR LEITARVÉLIN
GOOGLE.COM TEKUR VÖLDIN
OG KEMUR MEÐ UPPÁSTUNGUR
AÐ ÞVÍ HVERNIG BOTNA SKULI
LEITARLEIÐANGUR NOT-
ENDA. NIÐURSTÖÐ-
URNAR VEKJA OFT
KÁTÍNU OG UNDRUN.
Þegar
tekur leitina yfir
Hljómsveitin íslenska og heimsfræga Of
Monsters and Men er loksins stödd hér
á landi í tengslum við Icelandic Airwa-
ves. Hljómsveitin spilaði meðal annars
fyrir erlenda útvarpsstöð í vikunni og
upptökurnar voru á þriðju hæð Iðnó.
Einum útvarpsmannanna brá heldur en
ekki í brún þegar hann sá hóp skóla-
krakka úr Menntaskólanum í Reykjavík
á harðahlaupum. Hélt hann að þetta
væru æstir aðdáendur sveitarinnar sem
hygðust sitja um Of Monsters and Men
við Iðnó og vildi láta sveitina fara út um
bakdyr. Hér á landi eru það hins vegar
bara erlendar stórstjörnur sem eru
myndaðar í bak og fyrir og flestar
þeirra geta gengið óáreittar um stræti
og torg enda var þetta einfaldlega leik-
fimitími með tilheyrandi útiskokki hjá
mennskælingum.
Ógnandi
MR-ingar
Ljósmynd/Sverrir Vilhelmsson.
Nemar í Menntaskólanum í
Reykjavík voru taldir æstir aðdáendur.
Segja má að fimmtudagskvöldið á Kex Hos-
tel hafi verið svolítið sögulegt. Stórstjörnur
eins og Björk Guðmundsdóttir mættu á
staðinn en senuþjófar kvöldsins voru þó
meðlimir bresku hljómsveitarinnar The
Vaccines en sveitin tróð óvænt upp. Með
sveitinni spilar bassaleikarinn Árni Hjörvar
Árnason. Meðal þeirra laga sem sveitin spil-
aði var hinn sígildi pönkslagari Ó, Reykja-
vík sem íslenska hljómsveitin Vonbrigði
gerði frægan fyrir nokkrum áratugum.
Kom þetta gestum Kex Hostel skemmtilega
á óvart því ekki hafði verið gert ráð fyrir
að sveitin kæmi þar fram. The Vaccines er
ein heitasta hljómsveit Bretlands um þessar
mundir.
Hljómsveitin The
Vaccines nýtur mikilla
vinsælda í Bretlandi
um þessar mundir.
Senuþjófar á Kex Hostel
4.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Baldur Ari 2 ára og Baldvin Týr 3 ára
eru með Duchenne sjúkdóminn.
Morgunblaðið/Kristinn
Mömmu-
hópurinn
safnar fyrir
rannsóknum
Þegar synir Sifjar Hauksdóttur og
Guðna Hjörvars Jónssonar greind-
ust með vöðvarýrnunarsjúkdóm-
inn Duchenne í ágúst sl. voru vin-
konur Sifjar ekki lengi að ákveða
að efna til söfnunar til styrktar
rannsóknum á sjúkdómnum.
Mömmuhópurinn, sem hefur hist
frá því börn hópmeðlima voru enn
í móðurkviði, efnir til „Duchenne
styrktardags“ á sunnudag, 4. nóv-
ember, í Fylkishöllinni.
Duchenne er alvarleg vöðva-
rýrnun sem leggst á drengi, en ell-
efu drengir eru greindir hér á landi.
„Gátum ekki setið heima“
„Þegar seinni strákurinn var
greindur hugsuðum við í hópnum
að við gætum ekki setið heima og
gert ekki neitt. Í kjölfarið fórum við
af stað með þennan styrktardag.
Þarna verða seldar veitingar, við
verðum með happdrætti og upp-
boð á landsliðstreyju auk þess að
selja stuttermaboli og armbönd.
Við fengum allt frítt þannig að það
er ekkert sem þarf að taka til hlið-
ar fyrir kostnaði í lok dags. Allur
ágóði rennur beint til Duchenne-
félagsins sem styrkir rannsóknir á
sjúkdómnum í Bandaríkjunum,“
segir Tinna Borg Arnfinnsdóttir
sem er ein úr mömmuhópnum.
Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn. Húsið verður opnað kl.
12.40 og stendur skemmtidagskrá
til kl. 17. Meðal þeirra sem fram
koma eru Jón Jónsson, Einar Mikael
töframaður og Sigga og María úr
Söngvaborg.
Nánari upplýsingar um dagskrá
og Duchenne er á viðburðasíðu
söfnunardagsins á Facebook.