Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2012, Page 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.11.2012, Page 36
STÆRÐIN? Hversu mikið magn er hægt að blanda í könnunni skiptir máli. Ef margir eru í heimili er betra að kannan geti tekið það mikið magn að ekki þurfi oft að hella upp á morgundrykkina. Algengt er að stærri könnurnar taki tvo lítra en hægt er að fá talsvert minni gerðir, sem taka þá 2-3 drykki eða 0,8 lítra. PLAST- EÐA GLERKANNA? Í raun er ekki svo mikill munur á því hvort blandari er með plast eða glerkönnu nema helst smekkur. Sumum þykir glerið fallegra og hugnast best að hafa drykkina sína í gleri. Glerkönnur eru oftast dýrari. Glerið hefur þá kosti að rispast ekki og það litast ekki eins með tímanum eins og plastið gerir oft. Á móti kemur að glerkanna er þyngri sem er þá umhugs- unarefni ef neytandanum þykir erfitt að halda á þungu og eldra fólk getur átt auðveldara með að hella úr léttari könnum. VÖTT? Hversu kröftugur blandarinn er skiptir máli en algengt er að blandarar séu á bilinu 300-600 vatta en þeir fást líka vel yfir 1.000 vött. Skiptir þá máli að sjá fyrir í hvað á að nota bland- arann. Eigi að nota hann í að mylja ísmola þarf að gæta þess að hann sé ekki með of fá vött. Kraftmiklir blandarar kosta hins vegar yf- irleitt meira. Öllu máli skiptir hvað á að blanda og ekki gleyma að bera það undir sölufólk verslana. HRAÐASTILLINGAR Til eru blandarar sem bjóða upp á annan tug hraðastillinga en aðrir eru með möguleika á mun færri. Hér eins og hvað vöttin varðar skiptir máli hvað á að blanda og best að ráðfæra sig við sölufólk. VITA MIX TNC Blandarinn er einnig mat- vinnsluvél en flýtur með í þessari samantekt þar sem hann hefur farið einstaka sigurför um heiminn. Hann hentar í að brjóta niður hvað sem er, allt frá grænmeti upp í hnetur og klaka, með mjög öflugum mótor. Endingar- góður, með öllum útbúnaði. Kælitækni, Rauðagerði 25. Verð: 99.900 krónur. Blandaðu þér í glas EITT MESTA ÞARFAÞING HEIMILISINS SÍÐUSTU ÁRIN ER GÓÐUR HEIMILISBLANDARI. ÞAR SEM DRYKKIR, SÚPUR OG BARNAMATUR ER MAUKAÐUR TIL SKIPTIS. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is CLATRONIC Góður og ódýr blandari með 1,5 lítra glerkönnu. 550 vatta mótor og hægt að nota til að brytja ísmola. Tvær hraða- stillingar og púlsstilling. Elko verslanir víðsvegar. Verð: 9.995 krónur. ÚTTEKT Á HEIMILISGRÆJU HOLLUSTUNNAR KENWOOD KMIX Blandari í hinni vönduðu kMIX heimilistækjalínu. Afar öflugur mótor, stór 1,6 lítra glerkanna og smart hönnun. Hentar vel fyrir stórar fjölskyldur. Heimilistæki, Suðurlandsbraut 26. Verð: 22.995 krónur. KITCHEN AID Klassískur blandari sem nýt- ur sífelldra vinsælda. Hann er með öflugum mótor, 1,5 lítra könnu, 5 hraðastill- ingum og glerkönnu. Hann fæst víða, meðal annars hjá: Einar Farestveit, Borgartúni 28. Verð: 42.990 krónur. 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.11. 2012 Græjur og tækni síður framúrskarandi til að vafra um vefinn, en stóri bróðir hans og meira að segja dugir hann vel til að skoða dagblöð, til að mynda iPad- útgáfu Morgunbaðsins, því þó að heilsíða blaðsins verði óneitanlega ansi lítil á svo litlum skjá er þorri lesenda hvort er vanur að stækka þær fréttir sem hann hyggst lesa og það er ekki síðra á Mini-skjánum. Gætið þó að því að skjárinn er ekki Retina-skjár eins og á nýja iPadinum, þ.e. upplausnin er minni, en þrælfín samt. Það er reyndar það sem menn hafa helst fundið að Mini-inum, þ.e. að hann sé ekki með Retina-skjá, en skýrist vænt- anlega af því að öflugri örgjörva þarf til að knýja þannig skjá og ekki got að koma honum fyrir í svo lítilli vél. Aðrir hafa gagnrýnt verðið á vél- inni og vissulega kostar hún sitt, frá 59.990 fyrir 16 GB WiFi- útgáfuna upp í 134.990 fyrir 64 GB WiFi- og 4G-útgáfuna. Eftir að hafa tekið hana til kosta er valið þó ekki erfitt að mínu mati – ég myndi fá mér Mini strax í dag og það frekar en fullvaxinn iPad með fullri viðingu fyrir því frábæra tæki. Frægt varð á sínum tíma þegar Steve Jobs hraunaði yfir sjö tommaspjaldtölvur, sagði að þær væru dauðans matur ef ekki þegardauðar. Annað kom á daginn og Amazon (Amazon Fire) og Go- ogle (Nexus 7) hafa sannað að hægt er að búa til framúrskarandi spjaldtölvur þó að skjárinn sé ekki nema sjö tommur eða svo. Apple- stjórar voru líka búnir að skipta um skoðun og sannast á nýrri græju, iPad Mini, sem kynnt var víða um heim á föstudaginn. Eins og nafnið ber með sér er iPad Mini minni gerð af iPad spjaldtölv- unni og skjárinn er 7,9" en á upprunalega iPad- inum er hann 9,7". Hann fer líka miklu betur í hendi, það er til að mynda hægt að halda á honum í einni hendi, sem er ekki hægt með hina græjuna, og fyrir vikið er hún frábær kostur sem les- tölva, ekki síður ef mann langar að horfa á vídeó. Hvað þá með vefsíður? spyr kannski einhver og því fljótsvarað: iPad Mini er ekki LOKSINS KOM LITLA SYSTIR APPLE KYNNTI Á FÖSTUDAG NÝJA GERÐ AF IPAD, ÖLLU MINNI EN ÞANN SEM ALLIR ÞEKKJA EN EKKI SÍÐRI. NÝJA GRÆJAN, IPAD MINI, ER FRÁBÆR SEM LESTÖLVA OG EKKI SÍÐRI TIL AÐ HORFA Á VÍDEÓ EÐA VAFRA UM VEFINN. Græja vikunnar * Ef miðað er við stóru systurer sú litla eðlilega léttari, og það umtalsvert léttari, 308 grömm sam- anborið við 652 g. Myndavélarnar eru þær sömu; 1,2 Mdíla myndavél að framan, en myndavélin að aftan 5 Mdíla með sjálfvirkum fókus og svo framvegis. Fremri vélin tekur 720p HD myndskeið og sú aftari 1080p HD myndskeið. * Uppgefin rafhlöðuending errúmir tíu tímar á WiFi-gerðinni, en það er líka hægt að fá iPad Mini með 3G /4G símatengingu og þá segja Apple-menn að hægt sé að vafra um netið í allt að níu tíma á einni hleðslu. Sú gerð er eins að öðru leyti nema hún er fjórum grömmum þyngri. ÁRNI MATTHÍASSON * Stærðin skiptir máli og iPadMini er nokkuð minni en fyrirrenn- arinn; 20 x 13,5 x 0,7 sm sam- anborið við 24 x 18,6 x 0,9 sm. Skjárinn er 7,9" en á stærri iPadinum er hann 9,7". Upplausnin er 1024 x 768, 163 dílar á tommu, en á Retina- skjánum á stóra iPadnum er hún 2048 x 1536, 264 dílar á tommu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.