Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2012, Blaðsíða 15
skapa betri heim. Núna erum við
að vinna að því hvernig eigi að
fæða heiminn í framtíðinni. Í maí
síðastliðnum héldu Alþjóðasamtök
matreiðslumanna þing í Suður-
Kóreu þar sem félagsmenn voru
hvattir til að íhuga þessi mál. Í að-
draganda þingsins fór ég til Ólafs
Ragnars Grímssonar og spurði
hann hvort hann væri tilbúinn að
gera þriggja mínútna myndband
með hvatningu sem ég myndi sýna
á þinginu. Ég spurði Ólaf Ragnar
hvort hann gæti hringt í Al Gore
og beðið hann um að gera slíkt hið
sama. Ólafur Ragnar tók upp sím-
ann og viku seinna fékk ég mynd-
band frá Al Gore. Stuttu seinna
fékk ég myndband frá Ólafi Ragn-
ari þar sem hann hvetur mat-
reiðslumenn að halda áfram á þess-
ari braut.
Það er ekki verið að skipa mat-
reiðslumönnum fyrir því það er
misjafnt hvað hægt er að gera eftir
menningarheimum en við viljum að
þeir sem vinna með mat á hverjum
einasta degi séu meðvitaðir um að
það er fólk úti í heimi sem er
svangt. Þess vegna eigum við að
bera virðingu fyrir hráefnum og
henda minna. Við sömdum yfirlýs-
ingu og fengum alla félagsmenn
okkar til að skrifa undir hana og
vorum með pallborðsumræður um
málið. Markmið okkar er að halda
áfram að koma þeim málstað til
matreiðslumanna að ef allir gera
eitthvað smávegis verður árangur-
inn nokkuð mikill þegar á heildina
er litið.
Árið 2015 verður EXPO, heims-
sýningin, í Mílanó. Eitt þema þar
verður: Feed the Planet, Energy
for Life og þar koma samtökin
mjög við sögu. Ríkisstjórnir um
allan heim hafa áhyggjur af því
hvernig þær eigi að fæða þjóð sína
í framtíðinni. Stjórnmálamenn
koma með tillögur og halda ræður
á ráðstefnum en tala ekki við fólk-
ið sem vinnur við mat alla daga.
Einn daginn sagði ég við sjálfan
mig að nú ættum við í samtök-
unum að sýna að við værum tilbú-
in að hjálpa ríkisstjórnum í hvaða
landi sem er. Markmiðið ætti að
vera að vekja félagsmenn okkar til
vitundar um að í dag fer einn
milljarður jarðarbúa svangur í
rúmið á hverju einasta kvöldi og
20.000 manns deyja úr hungri á
dag. Á sama tíma er einn milljarð-
ur manna sem eru í yfirvigt. Við
vitum að það er nóg til af mat í
heiminum, en við hendum of mikl-
um mat. Skiptingin er ekki réttlát.
Við stefnum að því að fá árið
2015 helstu matreiðslumenn heims
til Mílanó til að setjast niður með
hópi stjórnmálamanna og segja
einfaldlega við þá: Við erum hér
til að bjóða fram aðstoð okkar.
Hvað getum við gert? Við ætlum
ekki að segja stjórnmálamönn-
unum hvað þeir eigi að gera en við
viljum að þeir finni að við í sam-
tökunum erum tilbúin að taka á
okkur ábyrgð og fá leiðbeiningar
frá þeim.
Margir hafa lagt þessu máli lið
og komið að verkefninu, til dæmis
Jamie Oliver Foundations. Nýlega
var ég í Dubai í klukkutíma sjón-
varpsviðtali og þátturinn var til-
einkaður samtökunum og Feed the
Planet. Áætlað var að 20-30 millj-
ónir hefðu horft á þáttinn í beinni
útsendingu. Þannig að það er
áhugi hjá matreiðslumönnum, fjöl-
miðlum, stjórnmálamönnum og al-
menningi. Tilgangur samtakanna
er að vekja fólk til umhugsunar.
Við teljum að ef matreiðslumenn,
stjórnmálamenn og fræðimenn
setjist niður til að ræða og kryfja
málin þá fæðist réttu lausnirnar.“
Og þú hefur sannarlega mætt
velvilja íslenskra stjórnmálamanna
og forsetans.
„Eitt það skermmtilegasta sem
ég hef upplifað í þessu starfi er já-
kvæðni ráðamanna. Hvort sem ég
hef talað við Geir Haarde, Guðna
Ágústsson, Steingrím J. Sigfússon
Össur Skarphéðinsson eða Ólaf
Ragnar Grímsson þá hef ég ætíð
fengið hvatningu. Það hvernig fólk
lítur á landið sitt er algjörlega
óháð stjórnmálum. Mér finnst
gaman að tala við Össur þegar
hann er upprifinn og hvetur mig
til að halda áfram og segir:
Gott fyrir Ísland!
Ég hef svo átt ákaflega góð
samskipti við forsetann. Hann er
ótrúlegur einstaklingur og alltaf
jákvæður. Mín skoðun er sú að
eitt af embættisverkum hvers for-
seta sé að hvetja fólk til dáða.
Ekki má heldur gleyma að hér eru
gríðarleg tækifæri fyrir íslensk
fyrirtæki sem vilja koma vöru
sinni á framfæri á erlendri grund
og ekki síður tækifæri til að koma
landi og þjóð á framfæri.
Ég verð einnig að minnast á
þann frábæra stuðning sem fé-
lagar í veitingabransanum veita
mér og sömuleiðis konan mín og
fjölskylda, það væri erfitt að
standa í þessu án þeirra.“
Gissur „Að mörgu leyti er
ævintýralegt að vera
fulltrúi 10 milljóna kokka í
93 löndum og ferðast til
ólíkra menningarheima.“
Morgunblaðið/RAX
18.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
1
2
-2
3
7
4
ÞESSI TÍMI
ER EINSTAKUR
Arion banki býður foreldrum í fæðingarorlofi að
lækka greiðslubyrði íbúðalána um allt að helming.
Hjá mörgum verða breytingar á ráðstöfunartekjum
við töku fæðingarorlofs. Því viljum við koma til
móts við foreldra og gefa þeim kost á að fresta
hluta af greiðslum íbúðalána sinna. Með þessu
viljum við auðvelda viðskiptavinum okkar að taka
fullt fæðingarorlof og njóta þess til fullnustu.
Hafðu samband við þjónusturáðgjafa okkar í
næsta útibúi Arion banka eða í síma 444 7000
og kynntu þér möguleika þína.