Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2012, Blaðsíða 20
*Heilsa og hreyfingHelga Kristín Ingólfsdóttir dansari úr Dans dans dans stundar karate af kappi samhliða ballett »22 R étt er að taka fram í byrjun að fólk sem þjáist af alvarlegum einkennum skammdegisþunglyndis ætti tafarlaust að hafa samband við lækni. Alvarleg ein- kenni eru meðal annars mikil depurð og svartsýni sem þarfnast oft meðhöndlunar með lyfjameðferð og rannsóknir hafa sýnt að reglubundin ljósameðferð getur stund- um ráðið bót á sjúkdómnum. Hins vegar finna margir fyrir vægum einkennum; þreytu, sleni og einbeitingarleysi. Önnur einkenni geta verið bráðlyndi, félagsfælni, kvíði og áhyggjur, mikil löngun í kolvetnisríka fæðu og sætindi og aukin líkamsþyngd getur bent til að viðkomandi þjáist af skamm- degisþunglyndi. Algengt er að einkennin geri fyrst vart við sig í október eða nóv- ember og ástandið getur varað í allt að átta mánuði. Til eru ýmis ráð sem þeir sem verða eilítið blúsaðir yfir vetrartímann geta nýtt. Grunnatriðin eru góð hreyfing og holl og næringarrík fæða. Sumir kaupa sér lampa sem er sérstaklega til þess gerður að blekkja heilann og koma efnabúskap í réttar skorður. Vægari ein- kenni má einnig tækla með nokkrum einföldum ráð- um sem hægt er að koma inn í daglegar lífsvenjur. Samvera við sína nánustu, hugleiðsla, að fara ekki of seint að sofa og inntaka D-vítamíns er meðal þess sem getur gert gagn. Þessar tillögur eru allar byggðar á virtum rannsóknum á vetrarþunglyndi og því sem gagnast getur í baráttu gegn því. D-vítaím Fæða sem inniheldur mikið D-vítamín er til að mynda feitur fiskur og eggjarauður. D- vítamín getur hjálpað til við að minnka ein- kenni skammdegisþunga. Morgunblaðið/Eggert Ljós Ljósameðferð getur virkað á vægt skamm- degisþunglyndi. Hér á landi er það meðal annars Pfaff á Grensásvegi sem selur slíka lampa, til dæmis þennan frá Beurtl, en hann kostar 28.900 kr. Hlátur Gamanmynd er gulli betri þegar örlítill blús sækir að. Einnig heimasíður á borð við baggalutur.is. Margir hafa farið í gegnum erf- iða tíma síðustu árin með því að lesa bagga- lutur.is rétt fyrir svefninn. Svefn Góður og mátulegur svefn er eitt af grunn- atriðum góðrar andlegar heilsu. Þá skiptir víst líka máli hvenær farið er að sofa. Það getur munað miklu hvort fólk fer að sofa fyr- ir eða eftir miðnætti; munar þá jafnvel hvort lagst er til hvílu tíu mínútur í tólf eða tíu mín- útur yfir. Regluleg hreyfing Fyrir nokkrum árum leiddu rannsóknir í ljós að góð hreyf- ing getur unnið á vægum einkennum skammdegisþunglyndis. Er þá gott að miða við að taka ágætlega á því, svo að fólk svitni, en geti þó haldið uppi sam- ræðum. Ekki þarf langan tíma en gott er að hafa hreyfinguna reglulega og í kringum hálftíma, nokkr- um sinnum í viku. Hollur matur Eitt af einkennum skammdeg- isþunglyndis er löngun í kolvetn- isríka fæðu. Gott er að hafa þetta í huga þeg- ar haldið er í bakaríið og huga að því að fara frekar og kaupa fisk, grænmeti og hollari mat í næstu matvöruverslun. Miklu skiptir í baráttu gegn hvers kyns geðrænum vandamálum að borða reglulega og holla fæðu. Hætt er við að líðan versni ef mál- tíðum er sleppt. Hlúð að einhverju(m) Eitt af einkennum depurðar er að hæfni til að annast aðra er minni. Afskiptaleysi er al- gengt, bæði gagnvart gæludýrum sem og ástvinum. Hins vegar getur það reynst vel, sérstaklega fyrir einstæðinga, að hafa eitthvað til að hlúa að. Það þarf ekki að vera hundur heldur getur einfaldlega verið falleg stofuplanta, sem getur verið áskorun að halda í lífinu yfir myrkustu mánuðina. Dagbók Mörgum gagnast vel að halda dag- bók ef vanlíðunar gætir. Þannig er þunglyndum oft ráðlagt að prófa að skrifa niður hvernig þeim líður en viss útrás og yfirsýn getur verið í því fólgin að koma líðan sinni í orð. Morgunblaðið/Ásdís SKAMMDEGIÐ GETUR TEKIÐ SINN TOLL Ráð við vægum blús VINNA MÁ GEGN VÆGUM EINKENNUM VETRARDEPURÐAR Á ÝMSA VEGU EN ÞAR SKIPTIR MIKLU MÁLI AÐ TEMJA SÉR HOLLA LÍFSHÆTTI. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Hugleiðsla Að hugleiða er meðal þess sem nýlega hefur sýnt sig að hefur góð áhrif á andlega líðan og dregur úr einkennum vetrarþunglyndis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.