Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2012, Side 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2012, Side 27
18.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 smáratorgi 522 7860 • korputorgi 522 7870 • glerártorgi 522 7880 Days svefnsófi 99.900 Þ að rennur skyndilega upp fyrir manni ljós að það er kúnst að velja ljós við hæfi, sérstaklega í ljósi úrvalsins. Ljósið sem við sjáum er eðlis- fræðilega rafsegulbylgjur innan ákveðins tíðni- sviðs og er þá oftast átt við það tíðnisvið sem manns- augað greinir og það er mikilvægt fyrir mannsálina. Það er því einnig mikilvægt að velja falleg ljós í kring- um okkur og lýsingu til að tendra yfir vetrarmánuðina. Hangandi ljós að koma inn aftur Það er ekki aðeins ljósið sjálft sem þarf að hafa í huga heldur einnig lýsingin eins og Ragnheiður Sverris- dóttir innanhússarkitekt bendir á. „Lýsing skiptir mjög miklu máli fyrir útlit á rými og það er mjög al- gengt að innanhússarkitektar og lýsingarhönnuðir vinni saman. Það er mjög vinsælt nú að nota óbeina lýsingu og svo stemningslýsingu eins og hangandi ljós eða gólflampa. Hangandi ljós eru nú mjög vinsæl eftir að hafa nær horfið af sjónarsviðinu um tíma og það sama má segja um gólflampana. Ljósaframboð í versl- unum er mjög mikið, allt frá þeim ljósum sem fást í IKEA og til hönnunarljósa. Einnig hafa íslenskir hönnuðir verið að gera spennandi hluti í hönnun ljósa.“ Reynir Örn Jóhannesson, lýsingarhönnuður hjá Verkís, segir að það sé af sem áður var að ljós séu bara ljós. „Fólk spáir meira í það hvernig ljós það vill hafa heima hjá sér og þá ekki eingöngu útlitið á lamp- anum heldur einnig ljóseiginleikann. Glóperan er nán- ast horfin af sjónarsviðinu, halógenperan heldur sér en nú eru komnir ljóstvistar (LED) með köldu og hlýju, hvítu ljósi og breytir um liti, jafnvel í sama ljósgjaf- Handverk Demo loftljós er íslensk hönnun og framleiðsla. Fæst í Epal og Aurum og kostar 67.000 kr. ÓLÍK LJÓS GETA HENTAÐ FYRIR ÓLÍK RÝMI INNAN VEGGJA HEIMILISINS. Unnur H. Jóhannsdóttir 23 HUGMYNDIR AÐ LÖMPUM OG LJÓSUM Í LOFT OG Á VEGGI Dýrðleg! Saloon flowers 9 skerma ljósakróna úr ILVU, 49.900 kr. Hlýlegt Það er eitt- hvað sem er svo hlýlegt við viðinn eins og þetta Pilke 28 loftljós úr Epal, 64.700 kr. Frísklegt X light loftljós frá Bauhaus á 10.320 kr. Öðruvísi Þessi krómhúðaða Onsjo ljósakróna eftir Siggu Heimis er ekk- ert nema draumur í dós. 11.990 kr., IKEA. Skemmti- legur Tví- höfða Ray gólflampi úr krómi, fæst í Bauhaus og kostar 9.495 kr.anum. Ljóstvistar koma sterkt inn sem arftakar sparperunnar og halógenljósa í framtíðinni en því miður eru ljóstvistarnir enn of kostnaðarsamir. Það er einnig hægt að fá ljóstvista í lengjum hvort sem það er í metratali eða í einingum, bæði fyrir úti- og innilýsingu. Fólk hefur marga mögu- leika á lýsingu og ljósmagni sem á við innbú þess og bætir vellíðan,“ segir Reynir og bætir við að að ýmsu sé að huga við val á ljósi. Lýsing taki mið af innbúinu „Fólk þarf að hafa í huga að velja hentugustu og bestu lýsinguna fyrir hvert herbergi á heimilinu. Eldhús þarf góða vinnulýsingu og baðherbergi góða lýsingu við spegilinn. Svefnherbergi þurfa gott ljós við fataskápinn og lesljós við rúmið, þar koma LED-lampar t.d. vel til greina. Gangar þurfa lýsingu sem dreifir sér vel, hvort sem það er vegg- eða loftljós,“ segir Reynir. Í stofum gildir að skapa réttu stemminguna og láta lýsinguna taka mið af innbúinu, en Reynir segir að fyrir dökkt innbú ætti t.d. að velja borð- og gólflampa sem gefa góða lýsingu en fyrir ljóst innbú sé hægt að nota dekkri skerma, sem ljós nær ekki að flæða eins vel úr. „Það er endalaust hægt að leika sér með ljósin,“ segir hann að lokum. Benda má á að Ljóstæknifélag Íslands gaf út frítt rit sem heitir „Góð lýsing á heimilinu“ og hægt er að nálgast á slóðinni www.ljosfelag.is. En hvernig svo sem ljósið á að vera þá er ljóst að úrvalið er nóg. Tignarlegur Fork gólflampi sem er væntan- legur í Lúmex. Skínandi Það skín af Cott- age loftljós- inu, sem er úr áli, og kostar 6.995 kr. í ILVU. Rýmið lýst upp Ógeðslega töff Dexter gólflampi, 24.995 kr. ILVA.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.