Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2012, Síða 34

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2012, Síða 34
*Græjur og tækniRisar samfélagsmiðlanna Facebook og Google+ keppa bæði um notendur og auglýsendur »36 H ann ólst upp á Laugalandi í Eyjafirði og fékk strax áhuga á ýmsum tækjum. „Pabbi eignaðist fyrsta snjósleðann þegar ég var 10 ára; það var Massey Fergu- son, 21 hestafl og þótti rosalegt tæki,“ segir Finnur og hlær en kraftmesti sleðinn sem hann á er um 340 hestöfl. Þegar Finnur eignaðist svo fyrstu skellinöðruna 12 ára varð ekki aftur snúið. „Ég er stundum spurður að því hvernig ég tími að eiga allt þetta, en hef svarað því til að græjurnar séu mitt brennivín. Sumir eru fullir niðri í bæ allar helgar en ég hef aldrei nennt því,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. „Ég hef alltaf haft gaman af góðum græjum, alveg sama hvað það er,“ segir hann. Dæmi um það er að finna hér á síðunni. Um tugur vina hefur haldið hópinn frá því innan við tvítugt og brallar mikið saman. „Við vorum stundum kallaðir órólega deildin af þeim eldri,“ segir Finnur og vísar til fortíðarinnar. „Þeim fannst við vera glannar – sem hefur örugglega verið rétt á sínum tíma – en maður er orðinn rólegri núna.“ Finnur keppti árum saman á vélsleða og torfæruhjóli og hampaði Íslandsbikar ótal sinnum. Nú er keppnisferillinn að baki en hann nýtur þess alltaf jafn mikið að þeysa um. Þegar spurt er hvað sé skemmtilegast af öllu þessu, stendur ekki á svarinu: „Að vera á sleðanum. Það stendur algjörlega upp úr. Frelsið er svo mikið og fegurðin oft ólýsanleg þeg- ar komið er upp til fjalla. Svo er félagsskapurinn líka mjög góður.“ Hann nýtur þess líka að sigla. „Ég átti lengi litla báta með utanborðs- mótor en keypti alvöru sjóbát með V 8 innanborðsmótor fyrir nokkrum árum. Ég sigli mikið með krakkana og allir hafa gaman af.“ VÉLSLEÐAR Finnur á nú tvo „alvöru“ vélsleða. Þessi er Arc- tic Cat M8 Turbo og er 240 hestöfl. Hinn heitir M 1000 Turbo og er hvorki meira né minna en 340 hestöfl. Finnur er mikið á ferðinni á sleð- unum og segir það skemmtilegast af áhuga- málunum. „Ég er nánast fæddur og uppalinn á sleða,“ segir hann. TORFÆRUHJÓL KTM SX 144 enduro torfæruhjól. „Þetta er frekar lítið hjól, lík- lega 28 hestöfl,“ segir Finnur. „Þegar maður eldist verður maður að hafa vit á því að fá sér minni hjól en áður; það er svo erfitt að keyra stóru hjólin ef maður er ekki í toppformi og slysahættan meiri.“ Finnur fer iðulega í eins eða tveggja daga ferðir ásamt vin- um sínum upp til fjalla eða inn á hálendið. SNJÓFLÓÐAÝLIR Lítið og nett en lífsnauðsynlegt tæki á þeim svæðum þar sem hætta er á snjó- flóðum. Álíka stórt og farsími. Finnur var í hópi vélsleðamanna í Hlíðarfjalli þegar snjóflóð varð þar fyrir nokkrum árum. Einn grófst í flóðinu en fannst fljótt, þökk sú ýlinum. „Við vorum bún- ir að miða hann út eftir eina mínútu og grafa hann úr snjónum eftir tíu mínútur. Tækið sagði okkur nákvæmlega hvar hann var, hve langt frá og á hve miklu dýpi. Tæk- ið virkar eins og gps staðsetningartæki og er mjög nákvæmt.“ SNJÓFLÓÐAPOKI ABS loftpúðapoki. Ef sá sem ber pokann verður var við eða lendir í snjóflóði getur hann kippt í handfang, sem liggur vinstra megin í brjósthæð. „Þá springur gashylki sem blæs út líknarbelg á bakinu. Hann springur út úr pok- anum og maðurinn flýtur upp úr flóðinu. Þetta er eins og björg- unarvesti,“ segir Finnur. HASE BÁTUR 430 hestafla níu manna bátur sem Finnur segist aðal- lega nota til þess að skoða sig um. Hann hefur siglt út í Grímsey, Flatey og í fyrrasumar fór hann í fyrsta skipti til Vest- mannaeyja. Ók þá eldsnemma á sunnudagsmorgni frá Akur- eyri í Landeyjahöfn og sigldi þaðan á þjóðhátíð. Hafði aldrei komið til Eyja áður og segir hafa verið tilkomumikið að koma siglandi. Báturinn er með V 8 innanborðsmótor. Finnur hefur átt bátinn í hálft annað ár. Ljósmynd/Helgi Steinar Halldórsson FINNUR MARGT SEM HEILLAR Græjurnar eru mitt brennivín BLAZER HERRIFFILL Finnur á þennan stóra, ameríska Blazer herriffil, sem er 308 kal. Þetta er hrein- dýrariffillinn hans, auk þess sem hann tekur að sér að skjóta sel þegar þess gerist þörf. Erlendis er slík- ur gripur mikið notaður í stríði, segir Finnur. „Þetta er alvöru tæki,“ segir hann. Riffilinn eignaðist Finnur fyrir fimm árum. FINNUR AÐALBJÖRNSSON, VERKTAKI Á AKUREYRI, ER ÞEKKTUR GRÆJUKARL; HANN FER OFT TIL FJALLA Á KRAFTMIKLUM VÉLSLEÐUM, ÞEYSIR UM Á TORFÆRUHJÓLI OG Á LÍKA FORLÁTA BÁT. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.