Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.11.2012, Blaðsíða 57
18.11. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
„Vera Hertzsch sker sig ekki
úr. En það er einmitt þess
vegna sem saga hennar verð-
skuldar að vera sögð.
Hún er ekki undan-
tekningin heldur regl-
an,“ segir Jón Ólafs-
son á einum stað í
hinni merkilegu bók
sinni um Veru
Hertzsch og líf
kvenna í Gúlagi
Sovétsins. Þetta er
sérlega vel skrifað
og vandlega unnið
verk og gríðarlega
áhrifamikið.
Grimm örlög
Veru Hertzsch
Dr. Gunni hefur ástríðu fyrir
popptónlist og er einmitt
rétti maðurinn til að
skrifa sögu íslenskrar
popptónlistar. Stuð vors
lands heitir bókin þar sem
dr. Gunni rekur sögu
dægurtónlistar allt frá 19. öld
þegar dans var litinn hornauga
og fram til nútímans.Hann segir
sögu frægra söngvara og hljóm-
sveita. Þetta eru sögur af draumum
sem rættust en einnig sögur af
brostnum draumum. Sukksögur eru
svo að sjálfsögðu á sínum stað og sumar
allsvakalegar.
Kaflaheiti eru bráðskemmtileg: Dansað
út úr torfkofunum – Rómantík er ekki
væmni – Hvað er þessu fólki heilagt!?
– Bara burstaklipptur vitleysingur.
Rúmlega 1000 myndir prýða bók sem all-
ir poppunnendur hljóta að þrá að eignast.
Dr. Gunni skrifar fjörugan og afslappan
texta og áhugi hans á umfjöllunarefninu er
nánast smitandi. Þetta er hin besta bók í
alla staði – og bæði fróðleg og skemmtileg.
Það er enginn vandi að komast í stuð með
dr. Gunna.
DR. GUNNI Í EKTA STUÐI REKUR
SKRAUTLEGA POPPSÖGU ÍSLANDS
Stuð vors lands er full af
fjöri og fróðleik.
Ripleys 2013 – ótrúlegt en satt -
Stuðandi staðreyndir er einkar áhuga-
verð bók fyrir forvitin ungmenni sem vilja
kynnast því furðulega í tilverunni. Og það
er víst af nógu að taka þegar kemur að
furðum tilverunnar. Þarna er að finna frá-
sagnir af dularfullum verum og stór-
skrýtnu fólki. Sumt sem þarna er sýnt
virðist ótrúlegt en er samt satt.
Það er alkunna að of stór hópur
drengja kærir sig lítið um að lesa bækur
og eru líklegir til að andvarpa þegar þeir
opna jólapakka og sjá bók. Þetta er ein-
mitt bókin fyrir þennan hóp. Hún er
sneisafull af myndum sem augað festist við
og í framhaldi er ekki annað hægt en að
lesa textann.
Ripley’s er
full af furðum.
ÓTRÚLEGAR
FURÐUR TILVER-
UNNAR Í MÁLI
OG MYNDUM
Aðalpersónan í nýrri skáldsögu
Auðar Övu Ólafsdóttur, Und-
antekningunni, er skiljanlega í
miklu uppnámi því eiginmaður
hennar til ellefu ára er kominn
út úr skápnum og hefur yfirgef-
ið hana og unga tvíbura þeirra
og er fluttur inn til elskhugans.
Nágrannakonan Perla, sem er
dvergur, hjúpskaparráðgjafi og
leigupenni fyrir vinsælan glæpa-
sagnahöfund, tekur að sér að
gefa aðalpersónunni ráð. Hér
er á ferð fallega skrifuð og
seiðandi skáldsaga um ást og
missi, skáldskapinn og sköp-
unarkraftinn.
Falleg og seið-
andi skáldsaga
frá Auði Övu
Mikil gæði í
jólabókaflóði
ÁHUGAVERÐAR BÆKUR
ÓHÆTT ER AÐ SEGJA AÐ BÓKAORMAR HAFI
ÚR NÓGU AÐ VELJA ÞESSI JÓLIN ÞVÍ ÚRVALIÐ
HEFUR SJALDAN VERIÐ MEIRA OG GÆÐIN ERU
MIKIL. ÞÆR BÆKUR SEM MÆLT ER MEÐ ÞESSA
VIKUNA ERU ÓLÍKAR EN EIGA ÞAÐ SAMEIGIN-
LEGT AÐ VERA AFAR VEL SKRIFAÐAR OG VERU-
LEGA MINNISSTÆÐAR.
Í Farandskuggum sem komu út í fyrra sagði Úlfar
Þormóðsson sögu móður sinnar. Í Boxaranum
bregður hann upp sterkum og eftirminnilegum
myndum af föður sínum og ættingjum. Þetta er
saga af litríku og breysku fólki sem flest háði harða
lífsbaráttu. Bókin er skrifuð í öguðum og knöppum
stíl sem hæfir efninu einkar vel og er sneisafull af
minnisstæðum atvikum. Bók sem kröfuharðir les-
endur eiga ekki að láta framhjá sér fara. Allavega er
ljóst að lesturinn mun ekki valda þeim vonbrigðum.
Minnisstæð saga af
breyskum föður
Metsöluhöfundur Íslands, Arnaldur Indriðason,
er ekki vanur að bregðast væntingum lesenda
sinna og gerir það heldur ekki í Reykjavíkur-
nóttum sem fjalla um fyrsta mál Erlendar í lög-
reglunni. Arnaldur á ekki í neinum vandræðum
með að endurskapa Reykjavík ársins 1974 og
alls kyns hliðarsögur er varða störf lögreglunnar
og líf útigangsmanna gæða bókina dýpt og taka
jafnvel athyglina frá sjálfri ráðgátunni um dularfullt dauðsfall og
mannshvarf.
Arnaldur bregst ekki
* Því gáfaðri sem maður er því fleirifrumlega menn finnur hann. Venjulegtfólk sér engan mun á fólki. Blaise Pascal BÓKSALA 4.NÓV.-10.NÓV
Allar bækur
Listinn er byggður á upplýsingum frá flestum bókaverslunum
landsins og öðrum verslunum sem selja bækur
1 ReykjavíkurnæturArnaldur Indriðason
2 Stóra Disney heimilisréttabókinDisney
3 Reykjavíkurnætur (kilja)Arnaldur Indriðason
4 HáriðSaga Sig ljósmyndir & Theodóra Mjöll
5 Iceland Small WorldSigurgeir Sigurjónsson
6 Fimmtíu gráir skuggarE.I. Jones
7 Gísli á UppsölumIngibjörg Reynisdóttir
8 Frábært hárÍris Sveinsdóttir
9 JólakúlurArne Nerjordet & Carlos Zachrison
10 HrafnsaugaKjartanYngvi Björnsson &
Snæbjörn Brynjarsson
Metsölulisti1.jan.-10.nóv.
1 Grillréttir HagkaupsHrefna Rósa Sætran
2 Iceland Small WorldSigurgeir Sigurjónsson
3 Heilsuréttir fjölskyldunnarBerglind Sigmarsdóttir
4 Fimmtíu gráir skuggarE.I. Jones
5 Heilsuréttir HagkaupsSólveig Eiríksdóttir
6 Eldar kviknaSuzanne Collins
7 HungurleikarnirSuzanne Collins
8 EnglasmiðurinnCamilla Läckberg
9 SnjókarlinnJo Nesbø
10 HermiskaðiSuzanne Collins
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Sínum gjöfum er hver líkastur.