Morgunblaðið - 08.12.2012, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 08.12.2012, Blaðsíða 54
54 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2012 Á mánudaginn var tilkynnt hvaða tólf plötur eru tilnefndar til Nor- rænu tónlistarverðlaunanna eða Nordic Music Prize. Þessi verðlaun voru veitt í fyrsta sinn fyrir árið 2010 en þá hreppti Jónsi okkar hnossið fyrir plötu sína Go. Í fyrra sigraði svo Svíinn Goran Kajfeš. Verðlaunin eru veitt í febrúar á næsta ári þegar tónlistarhátíðin by:Larm í Ósló fer fram. Verðlaun- unum svipar til Mercury-verð- launanna bresku þar sem áhersla er á listrænt innihald fremur en frægð og hve markaðsvænar plöturnar eru. Norræn dómnefnd sá um að velja plöturnar tólf úr fimmtíu platna potti en alþjóðleg dómnefnd sker svo úr um lokasigurvegarann. Í ár eru tvær íslenskar plötur til- nefndar, plata Ásgeirs Trausta, Dýrð í dauðaþögn, og svo þriðja plata Retro Stefson, sem er sam- nefnd hljómsveitinni. Óþarfi er að gera nánari grein fyrir innihaldi og stíl þeirra platna hér en hlaupum aðeins yfir hinar tíu. Áleitið Svíar eiga þrjár plötur í þetta sinn. Sú merkasta er hiklaust önnur plata Önnu Von Hausswolff, Cere- mony. Hafið varann á, gott fólk, tónlistin er jafnvel enn drungalegri en bæði nafn listakonunnar og titill- inn gefa til kynna. Platan var tekin upp í kirkju í Gautaborg og þemað er – já þú giskaðir rétt – dauðinn. Þegar hlustað er kemur nafn Joy Division óneitanlega upp, bæði tón- listin, umslagið og titillinn (síðasta lag Joy Division/fyrsta lag New Or- der heitir „Ceremony“). Hausswolff fer alveg út að brúninni hvað epík, drama og myrkur varðar en er allan tímann sannfærandi. Í því felst ár- angurinn, hún hljómar aldrei til- gerðarlega, þó að þær hættur leynist á bak við hvern tón. First Aid Kit, þjóðlaga/„americana“-dúett systranna Jóhönnu og Klöru er einnig á lista en frægð þeirra á al- þjóðavísu eykst statt og stöðugt. Neneh Cherry & The Thing er svo þriðji fulltrúi Svíþjóðar en flestir kannast líklega við Cherry sem poppsöngkonu („Buffalo Stance“, „7 Seconds“ ásamt Youssou N’Dour). Cherry er sænsk þó margir álíti hana breska og stjúpfaðir hennar er djassgoðsögnin Don Cherry. Hér leitar hún hins vegar aftur í pönk- ræturnar (hún starfaði t.d. með til- raunakennda síðpönksbandinu Rip Rig + Panic) og innihaldið spuna- kenndur hávaðadjass. Danir náðu þá inn tveimur plöt- um, hin frábæra Choir of Young Believers er þarna með aðra plötu sína og hin ógurlega Selvhenter á þarna plötu líka. Hin síðastnefnda er sannkallað stolt Dananna, þetta land sem hefur ekki beint verið þekkt fyrir áleitna og ögrandi tón- list teflir þarna fram kolbrjálaðri, hávaðaleginni og yfirlýstri fem- ínistasveit sem er í framlínu „danska vorsins“ í tilraunatónlist ef ég má kalla það svo. Aðsópsmikið Hinir olíubornu Norðmenn eiga þrjár plötur. Lindstrøm er dans- tónlistarmaður sem hefur lítinn bakgrunn í þeirri eðla list, stað- reynd sem sveipar plötu hans, Smalhans, undirfurðulegum, for- vitnilegum blæ. Susanne Sundfør gerir út á hátimbruðu ísprinsess- umiðin sem hafa verið fjölsótt af frændum okkar undanfarin ár, sér- staklega af Svíum og Norðmönnum. Þriðja plata Norðmanna er svo eftir söngvaskáldið Tønes. Hiklaust merkilegasta framlag þeirra og „skandinavískasta“ platan af öllum þeim sem tilnefndar eru. Það verð- ur áhugavert að heyra hvað al- þjóðlegu dómnefndinni þykir um gripinn. Sálusystkini okkar í Finnlandi snara þá fram tveimur plötum og alls ólíkum. Pää kii spila sóma- samlegt en fremur óspennandi ný- bylgjurokk en sama verður ekki sagt um Kerkko Koskinen Koll- ektiivi. Um er að ræða himinháa, þrælútsetta stórsveitatónlist með sovéskri undiröldu!? Ég veit. Söng- konurnar þrjár gefa þessu fagra liti og sumir sprettirnir eru hreinlega „kvikmyndalegir“, þar sem tónlistin flæðir áfram á aðsópsmikinn, æv- intýralegan hátt. Jebbs, svona hljómaði Skandin- avía árið 2012. Það besta á Norðurlöndum? »Norræn dómnefndsá um að velja plöt- urnar tólf úr fimmtíu platna potti en alþjóðleg dómnefnd sker svo úr um lokasigurvegarann. Myrkur Hin sænska Anna Von Hausswolff keyrir dramatíkina upp í ellefu á plötu sinni Ceremony. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is ● Tólf plötur keppa um Norrænu tónlistarverðlaunin sem veitt verða í þriðja sinn í febrúar ● Tveir fulltrúar frá Fróni, en skoðum aðeins hvað er að gerast hjá frændum vorum Heill heimur af ævintýrum Heilsa & lífsstíll SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 12, miðvikudaginn 19. desember. Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað umHeilsu og lífstíl fimmtudaginn 3. janúar Í blaðinu Heilsa og lífsstíll verður kynnt fullt af þeim möguleikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á heilsuátak og bættan lífsstíl.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.