Morgunblaðið - 08.12.2012, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 8. D E S E M B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 288. tölublað 100. árgangur
Sendu jólakveðjur
á www.jolamjolk.is
dagar til jóla
16
NÝ KVIKMYND
TIL VARNAR
SYSTRUM
AGNES BISKUP Í
NÝJUM TAKTI Í
ÁTT TIL VONAR
ÁSGEIR TRAUSTI
Í ÚRVALSHÓPI
NORÐURLANDA
SUNNUDAGUR VERÐLAUN 54FYRST Á ÍSLANDI 52
Morgunblaðið/ÞÖK
Annir Mikið álag er á bráðamóttökunni.
„Þetta er svona í meiri kantinum
núna og er reyndar búið að vera
svona undanfarna daga. Maður hef-
ur nú séð það hægara,“ segir Bene-
dikt Kristjánsson, sérfræðilæknir á
bráðadeild Landspítalans, en mikið
annríki var á deildinni í gær.
Það er ekki bara hálkan sem hef-
ur aukið álagið á bráðamóttökunni
heldur eru umkvörtunarefni sjúk-
linga af ýmsum toga; brjóstverkir,
kviðverkir, slappleiki, brot, togn-
anir og fleira.
Benedikt segir erilinn á bráða-
deildinni hafa dómínóáhrif inn á
spítalann. „Það er meira og minna
alltaf fullt alls staðar.“
Mikið annríki á
bráðadeild LSH
undanfarna daga
Treyst á fáa markaði
» 75-80% af öllum Atlants-
hafsþorski, hvort sem hann er
norskur, íslenskur, rússneskur
eða færeyskur, fara til Evrópu.
» Stór hluti neyslunnar fer til
Portúgals, Spánar, Englands,
Frakklands og Ítalíu en hart er í
ári í öllum þessum ríkjum.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Það verður mikill þrýstingur á veið-
ar og vinnslu á Íslandi. Verð hefur
þegar gefið eftir og spurningin er
hvort það muni gefa frekar eftir á
næsta ári. Auðvitað veit það enginn
en það má ætla að svo verði, að verð
verði undir meiri þrýstingi,“ segir
Helgi Anton Eiríksson, forstjóri Ice-
land Seafood International, um horf-
urnar á fiskmörkuðum.
„Þetta hefur fyrst og fremst áhrif
á hinum enda virðiskeðjunnar, hjá
þeim sem veiða og frumvinna fisk-
inn, þar verður höggið mest við
lækkandi afurðaverð,“ segir Helgi
Anton og upplýsir að vegna niður-
sveiflunnar seljist núorðið 5-8%
minna af fiski í Suður-Evrópu.
Allt að fimmtungslækkun
Magni Þór Geirsson, fram-
kvæmdastjóri Icelandic UK, segir
lægra verð ekki auka söluna.
„Verðið hefur almennt fallið. Sjó-
frystur þorskur hefur til dæmis
lækkað um 15-20% og samt er engin
hreyfing á markaðnum … Síðustu
sex mánuðir hafa verið þungir á
mörkuðum. Menn reyna að hafa eins
litlar birgðir og þeir geta.“
Adolf Guðmundsson, formaður
LÍÚ, segir stöðuna erfiða. „Maður
heyrir að það séu að safnast upp
birgðir frá frystitogurum og í frysti-
húsunum … Fara þarf átta til níu ár
aftur til að finna sambærilega
stöðu,“ segir Adolf.
Erfitt ár fyrir fiskvinnslur
Forstjóri ISI segir róðurinn verða þungan fyrir veiðar og vinnslu á næsta ári
Sjófrystur þorskur hefur lækkað um 15-20% í verði en samt eykst salan ekki
M Daprar horfur »4
Morgunblaðið/Ómar
Leynd Maðurinn vill ekki láta nafns
síns getið af tillitssemi við börnin.
Maður sem rætt er við í Sunnudags-
blaði Morgunblaðsins fullyrðir að ill-
ir andar hafi tekið sér bólfestu í
tveimur barnabörnum sínum um
nokkurra vikna skeið fyrir fáeinum
misserum. Börnin bjuggu þá erlend-
is ásamt móður sinni, dóttur manns-
ins, sem er einstæð. Hann hafði farið
utan til að hjálpa þeim að flytja í
nýtt húsnæði.
Andsetningin lýsti sér með ýms-
um hætti en áberandi var að börnin
komust úr jafnvægi við hlý orð og
bænir. Máttu ekki heyra Jesú Krist
nefndan á nafn. Þegar mest gekk á
létu þau öllum illum látum, hræktu á
og formæltu fólki.
Illa gekk að tjónka við börnin ytra
og komu feðginin heim til Íslands
með þau að þremur vikum liðnum.
Þegar ekkert hafði breyst sex eða
sjö vikum síðar komust þau í sam-
band við mann hér heima sem varð
til þess að börnin urðu eðlileg á ný.
Hann staðfestir frásögn afans og
lýsir því, í samtali við blaðið, hvernig
honum tókst með tilstyrk Guðs að
losa böndin sem haldið höfðu börn-
unum. „Maður mætir hinu andlega
með hinu andlega,“ segir hann.
Illur andi hljóp í börnin
Afi fullyrðir að tvö barnabörn hafi um tíma verið andsetin
Heildarvirði áheita í söfnunarátaki Unicef stóð í
116 milljónum króna um tíuleytið í gærkvöldi, að
sögn Stefáns Inga Stefánssonar, framkvæmda-
stjóra Unicef á Íslandi. Sjónvarpað var frá söfn-
uninni í gærkvöldi og landsmenn lögðu sitt af
mörkum á Degi rauða nefsins með því að kaupa
rauð trúðsnef, taka þátt í sms-leik, með fjár-
framlagi eða með því að gerast heimsforeldrar,
en þeir eru nú orðnir alls 21.500 hér á landi.
Milljónirnar rúlluðu í kringum rauða nefið
Morgunblaðið/Kristinn
Borðspilið
Valborg er loka-
verkefni Sigur-
steins Jóhann-
esar Gunnars-
sonar í ritlist frá
Háskóla Íslands.
Sigursteinn hef-
ur frá barns-
aldri haft mik-
inn áhuga á spilum. Í Valborg fær
hver leikmaður sína persónu og
eiga leikmenn síðan í sameiningu
að vinna að því að bjarga Reykja-
vík. »10
Leikmenn í Valborg
bjarga Reykjavík
Farþega-
skattar frá
Reykjavíkur-
flugvelli munu
hækka um 41% á
næsta ári og
nemur hækkunin
70-80 milljónum.
Flugrekendur
tala um landsbyggðarskatt og ótt-
ast að farþegum muni fækka í
kjölfarið. Þeir vilja þátttöku í
ákvörðunum rekstraraðila flug-
vallanna um rekstur og fjárfest-
ingar. »2
Gjöldin hækka
um 70-80 milljónir
á næsta ári