Morgunblaðið - 08.12.2012, Blaðsíða 50
50 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Að standa skil á sínu er hluti af reikn-
ingsdæminu. Ef þú getur unnið og verið ham-
ingjusamur/söm um leið skaltu ekki sættast
á neitt minna.
20. apríl - 20. maí
Naut Af einhverri ástæðu ertu í sviðsljósinu í
dag. Mundu að aðrir eru álíka fastir fyrir og
þú í vissum efnum. Þú klappar einhverjum lof
í lófa en færð engar þakkir fyrir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Stundum skjóta gamlir draugar upp
kollinum og hafa áhrif á okkur. Líttu í spegil
og segðu sjálfum/sjálfri þér að þú sért frá-
bær. Þú gætir lent í smá óhappi fljótlega en
það fer allt vel.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú verður að taka af skarið og hrinda
málum í framkvæmd þótt vinnufélagar þínir
séu tregir í taumi. Eru verðlaunin bardagans
virði? Þú ættir að fara oftar út fyrir bæinn í
sveitasæluna.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ættingjar þínir gætu þurft á hjálp þinni
að halda í dag. Ef óskir eru sagðar upphátt
hafa þær svo gott sem ræst.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Að hjálpa einhverjum úr klípu lætur
þér líða mjög vel. Lífið, líkt og djassinn, verð-
ur til í bilinu á milli nótna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú liggur yfir ferðabæklingum, vefsíðum
og tímaritum. Farðu varlega í að lofa börnum
og ungu fólki nokkru í dag. Þú gætir þurft að
efna loforðið. Einhver misskilningur skýtur
upp kollinum en hafðu ekki áhyggjur.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hamingja er hugsanamynstur.
Reyndu að festast ekki í hlutum sem þú færð
ekki breytt heldur beittu kröftum þínum þar
sem þeirra sér stað.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Fjarlægðu orðið „venjulegur“ úr
þinni huglægu orðabók og settu „uppfinn-
ingasamur“, „vandfýsinn“ og „djarfur“ í stað-
inn. Njóttu ávaxta erfiðis þíns.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Vitrar manneskjur hvetja þig hugs-
anlega til þess að takast á við veikleika þína.
Skilaboðin af andlegum toga hitta þig fyrir,
ekki vísa þeim sjálfkrafa á bug.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er rosalega gaman þegar allt
gengur manni í hag. Stuttar ferðir, útivera,
aukinn lestur og skriftir taka allan þinn tíma.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér er alveg óhætt að láta eitthvað
smávegis eftir þér í tilefni jólanna. Enginn er
fullkominn og þú ekki heldur svo þú skalt
bara herða upp hugann og halda áfram.
Það var þungt hljóðið í karlinum áLaugaveginum, þar sem ég hitti
hann við gamla Ostakjallarann og
var með stóran plastpoka merktan
Vínbúðinni í annarri hendinni.
„Hann er hálftómur,“ sagði hann og
hristi pokann. „Það eru ekki nema
þrjár dósir í honum. Verð að láta þær
duga. Nóg er þeim sér nægja lætur,
en Steingrímur sígur í!“ tautaði hann
og hysjaði upp um sig buxurnar:
Ráp milli ráðherrastóla
og rauðgrænna valdapóla
Steingrími líkar
og fjárlögum flíkar
sem fagnaðarboðskap jóla.
Árbók Þingeyinga fyrir síðasta ár
er nýkomin út. Mér er það alltaf til-
hlökkunarefni að fletta henni, efni er
fjölbreytt og fræðandi og vafalaust
að ekki er betur kveðið í öðrum
sýslum. Að þessu sinni skrifar Indriði
Ketilsson á Fjalli merkilega grein,
sem hann kallar „Ljós“ og segist tak-
marka mál sitt einkum við ljósfæri
sem hann þekkti í æsku en segir
einnig frá ljósum sem hann þekkti
ekki. Nú gríp ég niður í greininni:
„Hverf þú ekki litla ljós,
lífsins vonarstjarna.
Horfi ég gegnum hélurós
heim til konu og barna.
Svo kvað faðir minn, Ketill Ind-
riðason, einhverju sinni í hríðarveðri
og vetrarmyrkri á heimleið frá Syðra-
Fjalli og þótti sem hann sæi ljósi
bregða fyrir er hann vonaði að væri í
baðstofu- eða eldhúsglugga heima og
þótti vænt um þótt leiðin væri ekki
villugjörn né hann teldi sig í hættu.“
Indriði segir frá því, að einhvern
tíma þegar móðir hans vakti yfir
yngsta barni sínu og norðan hríð-
arhari buldi á baðstofunni hefði þessi
vísa orðið til:
Fátt er gott sem fylgir byl,
frostið herðir inni.
Þó má láta hann leggja til
ljós að þessu sinni.
Indriði bætir því við að ekki beri
að skilja það svo að frost væri í bað-
stofu, – „þar fannst mér aldrei kalt á
þessum árum en í frambænum gat
orðið kalt“.
Nú þykir mér við hæfi að rifja upp
vísur eftir afa Indriða og nafna Þor-
kelsson á Fjalli:
Úti um bleika og bera fold
börn sér leika án kvíða.
Her sinn eykur helja og mold.
Hugurinn reikar víða.
Varla verður betur kveðið en þetta:
Eina þá sem aldrei frýs
úti á heljarvegi
kringda römmum álnar-ís
á sér vök hinn feigi.
Halldór Blöndal
Vísnahorn
Rauðgrænir valdapólar
og Þingeyingar
eftir Jim Unger
„EINHVER HEFUR VERIÐ AÐ SELJA
INDJÁNUNUM KLARÍNETT.“
HermannÍ klípu
„SVO ÉG SAGÐI HENNI AÐ ÞETTA VÆRI
GEGGJUN, HÚN GÆTI EKKI NEYTT MIG
TIL AÐ VINNA YFIRVINNU.“
eftir Mike Baldwin
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að finna fyrir nærveru
hins þótt þið séuð hvort
í sínu landinu.
SKELL
LÍSA OG JÓN
VORU ÚTI ...
... AÐ SYNGJA
JÓLALÖG.
EKKI GEFA UPP
VONINA UM AÐ FINNA
HINA EINU SÖNNU,
LEIFUR ÓHEPPNI ...
... MUNDU AÐ
ÁSTIN GÆTI
LEYNST BAKVIÐ
NÆSTA HORN!
HVAR FINN ÉG
ÞETTA HORN?
Víkverji hefur verið sjónvarpslausí rúma viku. Satt best að segja
er þess ekki sárt saknað. Ástæða
sjónvarpsleysisins er einföld – flutn-
ingar. Símafyrirtækið sem Víkverji
skiptir við tekur sér rúma viku til að
flytja tenginguna á milli sveitar-
félaga. Þar sem Víkverji getur nálg-
ast sínar upplýsingar í gegnum netið
hefur það ekki farið mikið fyrir
brjóstið á honum.
x x x
Rás eitt hefur séð um að halda Vík-verja vel upplýstum og flutt
honum útvarpsfréttir með reglulegu
millibili, eins og stöðvarinnar er von
og vísa. Víkverji er ekki frá því að
inntak fréttanna síist betur inn í höf-
uðið á honum – smjúgi nánast í merg
og bein – þegar hann þarf eingöngu
að einbeita sér að athöfninni að
hlusta, en ekki hlusta og horfa sam-
tímis. Kannski er það að hlusta van-
metið á tímum þar sem sjónræni
miðillinn er ríkjandi.
x x x
Ef hlustað er á Spegilinn, kvöld-fréttatíma útvarpsins, sem er á
dagskrá alla virka daga frá 18 á Rás
1 og Rás 2, þarf vart aðra fréttatíma
til að vera sæmilega upplýstur um
fréttir dagsins. Raddir flestra út-
varpsmanna hljóma nokkuð vel,
enda má ætla að þeir hafi þurft að
þreyta inntökupróf til að komast inn.
x x x
Sjónvarpsins er helst saknað núþegar Evrópumót kvenna
stendur yfir. Þar hafa íslensku stelp-
urnar spreytt sig og staðið sig svo
sem ágætlega. Víkverji hefur því
gripið til þess ráðs að láta bjóða sér í
heimsókn og engum hefur orðið
meint af, honum vitanlega.
x x x
En sumir takast einir á við óblíðnáttúruöflin. Vilborg suðurpóls-
fari hefur lagt í sjálfskipaða útlegð
þar sem hún er ein með sjálfri sér og
lýsti því í viðtali að hún væri nokkuð
sátt við að losna við áreiti fjöl-
miðlanna, um tíma að minnsta kosti.
Ætli Víkverji láti sér ekki nægja
sjónvarpsleysið en skundi ekki á
suðurpólinn. víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Ef einhver þykist hafa
öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir
hann enn ekki eins og þekkja ber.
(I.Kor. 8, 2.)
Thermowave plötuvarmaskiptar
Þýsk hágæða vara á hagkvæmu verði
Eimsvalar fyrir sjó og vatn
Olíukælar fyrir sjó og vatn
Í mjólkuriðnað gerilsneiðingu
Fyrir orku iðnaðinn
Glycol lausnir fyrir byggingar og
sjávarútveg í breiðu stærðar úrvali
Títan–laser soðnir fyrir
erfiðar aðstæður svo sem
sjó/Ammoníak
Kælismiðjan Frost – leiðandi afl í kæliiðnaði
www.frost.is