Morgunblaðið - 15.12.2012, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2012
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Þorláksmessa er um næstu helgi og
skötuilmurinn er þegar farinn að
kitla marga landsmenn, ef ekki í nef-
ið þá í hug og hjarta. Þorláksmessu-
skatan er löngu orðin ómissandi
þáttur í aðdraganda jóla hjá fjölda
Íslendinga. Starfsmenn Fiskbúð-
arinnar Höfðabakka, við Höfða-
bakka 1 í Reykjavík, voru í gær að
taka í hús kæsta og saltaða skötu og
byrjaðir að skola hana, verka og
skera. Þeir voru líka að leggja 300
kíló af saltfiski í bleyti.
„Það er þegar byrjað að spyrja
eftir skötu,“ sagði Eiríkur Auðunn
Auðunsson veitingamaður og fisksali
á Höfðabakka. „Skatan er rosalega
vel heppnuð í ár og verulega góð.
Það er þrælvanur skötuverkandi
sem verkar skötuna og geymir í
kæligámum þangað til hún nær því
marki kæsingar sem hún þarf að ná.
Svo er hún lögð í pækil yfir nótt og
verður við það klár í pottinn,“ sagði
Eiríkur. Þegar kæsta skatan kemur
í hús þá hengja þeir í fiskbúðinni
börðin upp í nokkra daga og þurrka.
„Þá magnast í henni styrkurinn
og það kemur almennilegur jóla-
ilmur í húsið. Sterka skatan er seld
sér en flestir vilja samt þessa sígildu
kæstu og söltuðu skötu sem er
tilbúin í pottinn.“
Skata í mörgum útfærslum
Eiríkur býður upp á margar út-
færslur af góðgætinu, þ.e. kæsta,
kæsta og saltaða skötu og kæsta
tindabikkju frá Suðureyri. Tinda-
bikkjan er rammkæst og ósöltuð.
Hann er líka með hnoðmör sem er
verkaður á Akranesi. Eiríkur sagði
að hnoðmörinn væri góður þótt hann
væri ekki vestfirskur!
„Jólin koma ekkert hjá mér fyrr
en ég sé skötu. Það eru engin jól
nema það sé skata,“ sagði Eiríkur.
„Við verðum með búðina opna alla
helgina, bæði laugardag og sunnu-
dag, og bjóðum líka upp á heitan mat
hér í fiskbúðinni. Þessi fiskbúð hefur
það umfram aðrar að við seljum ekki
bara fisk heldur líka hamborgar-
hryggi og nautasteikur. Svo seljum
við þetta eldað líka. Hér er hægt að
fá soðinn saltfisk eða skötu með
hömsum eða hnoðmör eftir því sem
fólk vill á lágmarksverði.“
„Skatan er rosalega
vel heppnuð í ár“
Morgunblaðið/Golli
Ljúf angan Eiríkur Auðunn Auðunsson, veitingamaður og fisksali, gaf skötunni hæstu einkunn fyrir ilmgæði.
Kæst og söltuð skata bíður þess að landsmenn setjist að
kræsingunum Sumir taka forskot á sæluna um helgina
Skata Kæst skata þykir mörgum ómissandi á Þorláksmessu, þótt margir
borði raunar skötu allt árið. Skatan er verkuð með aldagamalli aðferð.
Byrjað er að slátra nautgripum
sem greinst hafa með smitandi
barkabólgu. Ekki hefur reynst
unnt að finna smitleiðina og er yfir-
dýralæknir ekki bjartsýnn á að hún
finnist.
Atvinnuvegaráðuneytið fyrir-
skipaði niðurskurð á 33 smituðum
nautgripum á Egilsstöðum og ein-
um á Fljótsbakka. Eftir er að
slátra um 20 kúm á Egilsstöðum.
Unnið er að samningum um bætur.
Halldór Runólfsson yfirdýralæknir
segir að málið sé í eðlilegum far-
vegi.
Fylgst verður með hjörðinni með
sýnatökum á næstu mánuðum og ef
fleiri sýktir gripir greinast verða
þeir fjarlægðir jafnóðum. Að þessu
ferli loknu verður væntanlega hægt
að gefa það út að búið og þar með
landið sé aftur laust við barkabólg-
una. helgi@mbl.is
Eftir að fella
20 nautgripi
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í
Norðausturkjördæmi vegna fram-
boðslista við alþingiskosningarnar í
vetur verður haldið laugardaginn 26.
janúar 2013. Alls gefa níu manns
kost á sér í prófkjörið.
Frambjóðendur eru eftirtaldir:
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir,
verkefnastjóri hjá Austurbrú, Reyð-
arfirði, Bergur Þorri Benjamínsson,
viðskiptafræðingur, Akureyri, Erla
S. Ragnarsdóttir, framhaldsskóla-
kennari, Hafnarfirði, Ingvi Rafn
Ingvason, tónlistarmaður, Akureyri,
Ísak Jóhann Ólafsson. fram-
kvæmdastjóri, Egilsstöðum, Jens
Garðar Helgason, framkvæmda-
stjóri, Eskifirði, Kristján Þór Júlíus-
son, alþingismaður, Akureyri,
Tryggvi Þór Herbertsson, alþingis-
maður, Reykjavík og Valgerður
Gunnarsdóttir, skólameistari á
Laugum, Reykjadal.
Nánari upplýsingar um prófkjörið
verður að finna á www.islendingur.is
og www.xd.is
Níu manns gefa kost
á sér í prófkjöri
holabok.is/holar@holabok.is
Séra Pétur í Óháða
söfnuðinum hefur um
áratugaskeið fundið
skrýtin og skemmtileg
orð til að setja í stað
hinna hversdagslegu.
Hér eru þau öll!
Sjá verðlaunagetraun
í tengslum við bókina
á facebooksíðu
Bókaútgáfunnar Hóla.
ORÐASNILLD SÉRA PÉTURS
Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
SIGLING
frá Brasilíu til Ítalíu
1.-25. mars 2013
Athugið! Takmarkaður sætafjöldi
– aðeins í sölu til 7. janúar 2013
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
55
3
46
4 dagar í Rio de Janeiro og 19 daga
glæsisigling með Costa Favolosa
Glæsileg 19 daga sigling frá Rio de Janerio til Savona. Í upphafi
ferðar er m.a dvalið í 4 nætur í Rió, borginni sem iðar af lífi jafnt að
nóttu sem degi. Þrjár kynnisferðir innifaldar í verði. Siglingin með
Costa Favolosa tekur 19 daga og er siglt norður með strönd suður
Ameríku og stoppað víða á leiðinni. Þá tekur við 5 daga sigling yfir
Atlantshafið til Tenerife sem er fyrsti áfangastaður af fimm áður en
siglingu lýkur í Savona á Ítalíu.
Nánari ferðalýsing á www.heimsferdir.is
Verð frá: 479.900 á mann í tvíbýli í innri klefa.
Innifalið: Flug, skattar, akstur milli áfangastaða, gisting í 1 nótt í Windsor.
4 nætur í Rió. 3 kynnisferðir í Rió. Sigling í 19 daga með fullu fæði,
hafnargjöld og fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.