Morgunblaðið - 29.01.2013, Síða 12

Morgunblaðið - 29.01.2013, Síða 12
SVIÐSLJÓS Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Suðurpólsfarinn Vilborg Arna Giss- urardóttir kom til landsins í fyrrinótt eftir að hafa náð markmiðinu – að ganga ein á suðurpólinn. Vilborg Arna segir að sér líði vel eftir afrekið. „Tilfinningin er frábær. Það er rosalega magnað að ná mark- miðum sínum, sérstaklega þegar maður hefur unnið svona lengi að þeim og lagt mikið á sig. Því fylgir líka mikil eftirsjá því póllinn hefur verið eins og ástin í lífi mínu í svolít- inn tíma. Þetta er það sem ég hef hugsað um dag og nótt og mig dreymdi oft suðurpólinn áður en ég lagði af stað.“ Undirbúningur í áratug Markviss undirbúningur vegna ferðarinnar hófst fyrir um einu og hálfu ári en Vilborg Arna segir að fyrir um áratug hafi hún fyrst lesið bók um efnið. „Þá féll ég fyrir hug- myndinni og leynt og ljóst hef ég unnið í þessa átt síðan þá.“ Vilborg Arna segir að gangan krefjist mikils undirbúnings. „Það tekur tíma að afla sér nauðsynlegrar þekkingar til að geta komist á þann stað að geta farið,“ áréttar hún. Hún segist hafa aflað sér góðrar mennt- unar og hafi lært mikið í lífinu og undirstaðan hafi komið að góðu gagni. Hún hafi stundað útivist í þó nokkuð mörg ár og lengi unnið sem leiðsögumaður í fjallaferðum, en Vil- borg Arna er með BA-próf í ferða- málafræði og MBA-próf frá Háskóla Íslands. „Ég gekk yfir Grænlands- jökul í fyrravor og það var stærsta prófraunin fyrir suðurpólinn.“ Undirbúningurinn felst ekki síst í því að styrkja andlega þætti. Vilborg Arna segir að hún hafi lagt mikla áherslu á að setja sig inn í allar hugs- anlegar aðstæður sem geta komið upp á pólnum. „Andlegt úthald er ákveðinn lykill. Jafnaðargeð. Að láta ekkert koma sér á óvart.“ Erfitt tímabil Gangan gekk að mestu leyti vel en á tímabili öngruðu sár á lærum Vil- borgu Örnu. „Ég hafði svolitlar áhyggjur af sárunum en ég reyndi að hugsa eins vel um þau og ég gat, verja þau fyrir kulda og sýkingum, og meðan ég gat það var það í lagi. Þegar eitthvað svona kemur upp á skiptir miklu máli að takast á við það, ekki hundsa það, og leita leiða til að gera það besta úr aðstæðunum.“ Vilborg Arna, sem verður 33 ára í ár, var 60 daga á leiðinni, 10 dögum lengur en hún hafði áætlað, og þurfti því að fá matarsendingu en hún náði markmiðinu og það er aðalatriðið. „Þetta var mjög erfitt tímabil,“ segir hún og vísar til þess að leiðangrar hafi þurft að hætta og hafi ekki kom- ist á pólinn og aðrir leiðangrar hafi ekki náð að komast á fyrirhugaða áfangastaði. „Ég er mjög ánægð að hafa náð að klára við þessar að- stæður,“ segir hún en við tekur aftur vinna við ferðaþjónustu auk þess sem hún hefur boðað fyrirlestra um leiðangurinn. „Það er vel bókað fram á vor.“ Suðurpóllinn verið eins og ástin í lífinu  Vilborg Arna Gissurardóttir fer aftur í ferðaþjónustuna  Vel er bókað í fyrirlestra hjá henni um gönguna á pólinn Ljósmyndir/ Víkurfréttir Suðurpólsfarinn Vilborg Arna Gissurardóttir í Leifsstöð í fyrrinótt. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 „Það gekk ágætlega. Okkur tókst ætlunarverk okkar og það var mikill sigur,“ segir Hálfdán Pedersen leik- myndahönnuður um þátttöku Ís- lendinga í snjólistaverkakeppninni í Breckenridge í Colorado í Banda- ríkjunum, sem lauk um helgina. Keppnin var nú haldin í 23. sinn og voru Íslendingar með í fyrsta sinn, en að þessu sinni kepptu 15 lið frá 14 löndum. Keppnin felst í því að skera út listaverk úr þriggja metra breiðum, þriggja metra djúpum og þriggja og hálfs metra háum snjóklumpi. Keppnin hófst þriðjudaginn 22. jan- úar og lauk útskurði um helgina, en keppendur höfðu 65 tíma til að ljúka ætlunarverkinu. Lið frá Mongólíu varð í fyrsta sæti, kepp- endur frá Katalóníu urðu í öðru sæti og Eistlendingar hrepptu þriðja sætið. „Koma vonandi aftur“ Íslenski hópurinn kallaði snjóhús sitt Lopapeysuna, en það var með mörgum gluggum. „Þau stóðu sig vel, nutu vinsælda og koma vonandi aftur reynslunni ríkari,“ sagði Rob Neyland, skipuleggjandi keppn- innar. steinthor@mbl.is Ljósmynd/Margrét Aðalsteinsdóttir Lopapeysan Íslenska listaverkið lýst upp í Breckenridge. Íslenski hópurinn reynslunni ríkari Á lögfræðitorgi Háskólans á Akur- eyri, sem haldið verður í stofu M102 þriðjudaginn 29. janúar, mun Ingólfur Friðriksson lögfræðingur fjalla um löggjöf ESB og Noregs um vernd landfræðilega merkinga, markmið hennar og framkvæmd. Landfræðilegar merkingar telj- ast heiti á landbúnaðarvörum sem vísa til uppruna þeirra, þar sem tengsl eru talin vera milli gæða, eiginleika eða orðspors vöru og þess svæðis þaðan sem varan er upprunnin. Sem dæmi má nefna hinn gríska fetaost og Lamme- fjords-gulrætur frá Danmörku. Landfræðilegar merkingar ræddar Símaskráin 2013 verður tileinkuð sjálfboðaliðum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og þeirra góða starfi, segir í tilkynningu frá ja.is. Af því tilefni gefst landsmönnum tækifæri til að þakka öllum 18.000 sjálf- boðaliðum Slysavarnafélagsins Landsbjargar með því að senda þeim kveðju og/eða reynslusögu af því hvernig sjálfboðaliðar hafa komið þeim til hjálpar. Þeir sem vilja koma kveðju til sjálfboðaliða á framfæri geta farið inn á já.is og sent inn kveðju eða reynslusögu. Um leið á fólk möguleika á að styrkja starf björgunarsveitanna. Valin verða þrjú innsend erindi sem helst lýsa mikilvægi sjálfboða- starfsins og hljóta þau peninga- verðlaun sem höfundur lætur renna til björgunarsveitar að eigin vali. Valdar sögur og þakkir verða síðan birtar í Símaskránni 2013. Símaskráin 2013 til- einkuð Landsbjörg Morgunblaðið/Árni Sæberg STUTT Konfúsíusarstofnunin Norðurljós, Íslandsstofa og viðskiptafræðideild HÍ efna til fyrirlesturs Péturs Yang Li, „Aukin viðskiptatækifæri í Kína?“ á Háskólatorgi þriðjudaginn 29. janúar kl. 12.00-13.00. Í framsögu sinni mun Pétur með- al annars ræða þróun viðskipta- sambands Íslands og Kína og reifa helstu tækifæri og ógnir sem blasa við í ljósi aukinnar efnahagslegrar samvinnu með tilkomu hugsanlegs tvíhliða viðskiptasamnings á milli landanna. Erindið verður flutt á ensku. Allir eru velkomnir og að- gangur er ókeypis. Ræðir þróun við- skipta við Kína Veitingastaður / verslun Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is Full búð af spriklandi nýjum fiski alla virka daga Skannaðu kóðann til að sjá viðtal við Vilborgu Örnu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.