Morgunblaðið - 29.01.2013, Side 17

Morgunblaðið - 29.01.2013, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 FÆST Í NÆSTA APÓTEKI HÁGÆÐA HÚÐVÖRUR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Á FRÁBÆRU VERÐI. ENGIN ILM- EÐA LITAREFNI. HLÚÐU AÐ VIÐKVÆMRI HÚÐ Í FROSTINU Þá bendir Stefán Már á að dóm- urinn sé í raun að segja að þegar allsherjarhrun verði hafi ríki mjög víðtækt vald til að ráða þar bót á. Stefán bendir einnig á að síðar í sömu málsgrein dómsins segi í raun að allsherjarhrun geti komið til skoðunar sem mögulegur grundvöllur fyrir réttlætingu (e. justification). Ef Bretar og Hollendingar myndu höfða mál hérna, fyrir ís- lenskum dómstólum, og bera fyrir sig að fjórða greinin hafi verið brotin og mönnum mismunað þá myndu íslenskir dómstólar vænt- anlega vísa í þetta,“ segir Stefán Már en tekur þó fram að það sé ekki sérstaklega líklegt eftir þennan dóm að Bretar og Hollend- ingar fari þessa leið. Málinu lokið af hálfu ESA Aðspurður hvort einhver mögu- leiki sé á því að ESA haldi áfram með málið segir Stefán Már svo ekki vera, að hans mati sé málið alveg búið að þeirra hálfu. „Þessi dómur hann vekur traust á EFTA- dómstólnum, þ.e. að hann sé í raun sjálfstæður dómstóll, ekki síst gagnvart áhrifum frá Evrópusam- bandinu og framkvæmdastjórn þess,“ segir Stefán Már. Afar athyglisverður dómur  Lagaprófessor segir ólíklegt að Bretar og Hollendingar höfði mál  Dómurinn vekur traust á EFTA-dómstólnum Morgunblaðið/Ómar Icesave-sigur Öllum kröfum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) í málinu var hafnað af EFTA-dómstólnum. Stefán Már segir dóminn athyglisverðan. BAKSVIÐ Skúli Hansen skulih@mbl.is Icesave-dómurinn, nálgunin og röksemdafærslan sem þar má finna, er mjög athyglisverður að sögn Stefán Más Stefánssonar, lagaprófessors við Háskóla Ís- lands. Hann segir að málið hafi snúist um tvær málsástæður. Það er annars vegar hvort Ísland hafi fullnægt 7. grein tilskipunarinnar um að greiða öllum innistæðu- eigendum 20 þúsund evrur og hvort að Íslandi væri skylt að greiða þá fjárhæð. „Þar er fallist á með ítarlögum rökum að tilskipunin geri ekki ráð fyrir ríkisábyrgð af þessu tagi heldur eigi ríkin einungis að inn- leiða tilskipunina og hafa visst eftirlit með því að innlánatrygg- ingakerfinu sé komið á fót en skyldurnar gangi ekkert lengra en það,“ segir Stefán Már. Aðspurður hvort það sé eitthvað sérstakt sem veki athygli hans í dómnum bendir Stefán á 227. málsgrein dómsins. „Nú var þetta þannig að ESA höfðaði málið á kannski mjög þröngum grundvelli hvað varðar mismunun og dóm- urinn segir það og afgreiðir. En svo segir „að til þess að taka af all- an vafa“ og þá fara þeir út í ef ESA hefði bara byggt á fjórðu greininni, eins og þeir hefðu kannski getað gert, það er al- menna ákvæðinu um bann við mis- munun, og gefa í skyn að það hefði heldur ekki dugað.“ „Tæknilega séð gæti málið haldið áfram. ESA gæti ákveðið að opna aðra rannsókn og skoða þá mismunun á einhverjum öðr- um grundvelli og tæknilega séð gætu einhverjir innistæðu- eigendur, sem hafa kannski ekki fengið greitt, ákveðið að láta reyna á rétt sinn fyrir íslenskum dómstólum. Það eru engar sérstakar líkur á því en tæknilega séð er það ekki útilokað,“ segir Dóra Sif Tynes héraðsdómslögmaður, aðspurð hvort Icesave-málið geti mögulega á einhvern hátt haldið áfram. Þá bendir hún á að það sé síðan íslenskra stjórnvalda að vinna úr því hvaða áhrif niðurstaða EFTA-dómstólsins hefur á bæði innistæðu- tryggingakerfið hér á landi sem og hvort hún kunni að hafa einhver heildstæð áhrif á EES-samninginn og stöðu hans. skulih@mbl.is Segir Icesave-málið geta haldið áfram Dóra Sif Tynes Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is „Jú, það má nærri geta að ég varð glaður. Þetta var sérstaklega ánægjulegt og ljóst að barátta fjölda manna skilaði sér með þessum ár- angri. Ég tel líka að ákvarðanir for- seta Íslands, inngrip hans í tvígang í þetta mál, þær sé ekki hægt að gagnrýna. Það hefur komið í ljós núna,“ segir Geir H. Haarde, sem var forsætisráðherra þegar Icesave- málið kom fyrst upp árið 2008, um viðbrögð sín við niðurstöðu þess. Hann telur að málinu sé nú lokið en treystir sér ekki til þess að leggja mat á hvaða áhrif dómurinn kemur til með að hafa á bankamál og reglu- verkið í Evrópu. Geir segir að þeir sem starfi í stjórnmálum á Íslandi geti lært heil- margt af Icesave-málinu. „Að dómurinn hafi leitt í ljós að í svona stórum málum sé betra að reyna að byggja upp pólitíska sam- stöðu í kringum hlutina í stað þess að vera í sífelldu stríði með ónot í garð manna sem ekki eru sammála,“ segir hann. Bentu á hann sem sökudólg Honum finnst kaldhæðnislegt að þeir sem stóðu að ákæru gegn hon- um fyrir Landsdómi, m.a. vegna Ice- save, skuli nú tala um að ekki eigi að benda á sökudólga. „Þetta fólk benti á mig sem söku- dólg, en Landsdómur hafnaði því eins og öllum þeim atriðum sem sneru beint að bankahruninu. Ég gef ekki mikið fyrir þessi orð.“ Geta lært margt af málinu  Kaldhæðnislegt tal um sökudólga, segir Geir Haarde Morgunblaðið/Kristinn Ákærður Geir H. Haarde svaraði til saka sem tengdust Icesave.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.