Morgunblaðið - 29.01.2013, Síða 22

Morgunblaðið - 29.01.2013, Síða 22
22 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 Alda Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur - Hér er góð rækt og góður andi! E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra f í s k h ö n n u n Franskar og malískar hersveitir tóku í gær borgina Timbúktú í norðan- verðu Malí en borgin hefur verið í höndum herskárra íslamista. Þeir náðu norðurhluta Malí á sitt vald í fyrra. „Við erum að vinna þessa orr- ustu,“ sagði forseti Frakklands, Francois Hollande, í gær. Frakkar sendu um 3.000 manna herlið, stutt þyrlum og herþotum, til Malí fyrr í mánuðinum til að aðstoða stjórnarher landsins við að brjóta á bak aftur íslamista sem óttast er að reyni að gera landið að bækistöð al- þjóðlegra hryðjuverkasamtaka. Fram kemur á fréttavef BBC að flestir uppreisnarmennirnir hafi flúið út í eyðimörkina en einnig munu ein- hverjir reyna áfram að dyljast innan um mannfjöldann. Svæðið sem íslam- istar réðu yfir ásamt uppreisnar- hreyfingu túarega er fimm sinnum stærra en Ísland. Íbúar Timbúktu fögnuðu ákaft her- mönnunum í gær og veifuðu fánum Malí og Frakklands. Á laugardag tóku franskar hersveitir og malískir stjórnarhermenn borgina Gao. Næst er búist við að sókninni verði beint að borginni Kidal, síðasta vígi íslamista og túarega en hún er við landamærin að Alsír. kjon@mbl.is Íslamistar hrakt- ir frá Timbúktú  Mikil sókn herja Frakka og Malíbúa Brenna skjalasafn » Íslamistarnir í Timbúktu kveiktu í gær í byggingu þar sem geymd eru mörg þúsund forn handrit íslams. » Þau elstu eru frá miðöldum, og hafa að geyma trúarleg rit og skjöl veraldlegs eðlis auk ljóða. » Borgin fræga var á valdi ísl- amista í tíu mánuði. Þeir afrek- uðu m.a. að banna allan tón- listarflutning. Sigurreifir Malískir hermenn í varðstöð nálægt borginni Gao. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Átökin milli stjórnar og stjórnarand- stæðinga í Egyptalandi harðna stöð- ugt, einn féll í Kaíró í gær og and- stöðuleiðtogar hvetja til mótmæla í landinu öllu í tengslum við bænir á föstudag til að „minna á heilagleika blóðs píslarvottanna og ná fram markmiðum byltingarinnar“. Yfir 40 manns hafa fallið í átökunum síðustu daga milli lögreglu og andstæðinga Mohameds Morsis forseta og efna- hagurinn er á heljarþröm. Bæði mótmælendur og lögreglu- menn beittu grjótkasti á brú og við undirgöng nálægt Tahrir-torgi í Kaíró, fnykur af táragasi lá yfir svæðinu, að sögn fréttamanns AFP. Helstu samtök stjórnarandstæðinga í Egyptalandi neituðu í gær að eiga viðræður við Morsi. Vilja ekki „innihaldslausar viðræður“ „Við tökum ekki þátt í innihalds- lausum viðræðum,“ sagði leiðtogi Þjóðlegu frelsishreyfingarinnar, Mohamed ElBaradei, á blaðamanna- fundi. Samtökin segja að Morsi verði að fallast á lista með kröfum sem þau lögðu fram í liðinni viku. Þar er með- al annars að finna kröfu um að svo- kallaðri „þjóðbjörgunarstjórn“ verði komið á í landinu, öryggi fólks verði tryggt og endurbætur gerðar á stjórnarskrá sem íslamistar lögfestu án raunverulegs samráðs við and- stæðinga sína. Kristnir menn, um 10% þjóðarinnar, og ýmis frjálslynd öfl vilja að skil séu á milli ríkisvalds- ins og trúarhreyfinga. Stjórnarandstaðan sakar Morsi og samtök hans, Bræðralag múslíma, um að ætla að koma á einræði harð- línu-íslamista í Egyptalandi. Forset- inn beiti nú lögreglunni og hernum gegn andstæðingum sínum á sama hátt og reyndin var í tíð Hosni Mub- araks sem rekinn var frá völdum í febrúar 2011 eftir geysilega fjöl- menn og oft blóðug mótmæli í marga mánuði. Axli ábyrgð á blóðbaði Þeir Amr Moussa, fyrrverandi ut- anríkisráðherra Mubaraks og síðar forsetaframbjóðandi eftir fall hans, og Hamdeen Sabbahi, fyrrverandi forsetaframbjóðandi, höfnuðu eins og ElBaradei að hitta Morsi. Sab- bahi sagði að Morsi yrði að axla ábyrgð á blóðbaðinu síðustu daga. Á sunnudag var lýst yfir neyðarástandi næsta mánuðinn í borgunum Port Said, Suez og Ismailiya eftir blóð- ugar óeirðir þar sem tugir manna féllu. Útgöngubann verður að næt- urlagi. Setja skilyrði fyrir fundi  Andstæðingar Morsis Egyptalandsforseta vilja nýja stjórn „þjóðbjörgunar“ og breytingar á stjórnarskrá sem komi í veg fyrir alræði íslamista AFP Ákefð Egypskur stjórnarandstæðingur fleygir steini í átt að lögreglumanni í átökum skammt frá Tahrir-torgi í Kaíró á sunnudag.  Þrír stærstu bílaframleið- endur Japans, Toyota, Nissan og Honda, skýrðu í gær frá því að salan í fyrra hefði slegið öll met og Toyota væri nú á ný orð- in stærsta bíla- verksmiðja heims. Toyota framleiddi í fyrra 9,9 milljónir bíla sem var aukning upp á 26,1%. Bandaríska verksmiðjan General Motors, sem framleiddi mest árið 2011, varð að láta sér duga um 9,3 milljónir bíla í fyrra. Jarðskjálftar og flóðbylgja í Jap- an ollu miklum skakkaföllum í bíla- framleiðslu Japana 2011, einnig komu flóð í Taílandi niður á útibú- um japanskra bílaverksmiðja þar í landi. kjon@mbl.is Toyota aftur komin í efsta sæti í heimi Öflugt merki.  Lögreglan í Brasilíu hefur hand- tekið þrjá menn vegna elds í næt- urklúbbnum Kiss í borginni Santa Maria á sunnudag en þá fórst 231. Um er að ræða eiganda klúbbsins, liðsmenn hljómsveitarinnar Guri- zada Fandangueira og yfirmann ör- yggismála hjá klúbbnum. Einnig var leitað að fjórða mann- inum, meðeiganda í klúbbnum, að sögn BBC. Sveitin notaði skotelda til að lífga upp á sviðið og komust þá neistar í klæðningu. Aðeins einn neyðarútgangur var á húsinu og munu flest fórnarlömbin hafa dáið úr reykeitrun. Lýst hefur verið yfir þriggja daga þjóðarsorg í Brasilíu vegna harmleiksins á sunnudag. kjon@mbl.is Þrír handteknir vegna eldsvoða Harmur Aðstandendur syrgja látna í gær. Mohamed Morsi var þungur á brún þegar hann flutti sjónvarpsávarp á sunnudag og hvatti til viðræðna. Morsi er fyrsti þjóðkjörni leiðtoginn í sögu Egypta en þjóðin er klofin. Annars vegar íslamistar sem sumir eru afar herskáir og vilja ekki taka neitt tillit til þeirra sem eru annarrar trúar eða skoðunar. Hins vegar er fjöldi manna sem ekki vilja sætta sig við samfélag án fullra mannréttinda. Síðastnefnda fólkið virðist nú vera að sameinast gegn Morsi. Hann hefur að vísu stuðning þingsins en vaxandi atvinnuleysi og örbirgð geta grafið undan íslamistum í næstu kosningum. Andstæðingar að sameinast? FYRSTI LÝÐRÆÐISLEGA KJÖRNI LEIÐTOGI EGYPTA Mohamed Morsi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.