Morgunblaðið - 29.01.2013, Side 40

Morgunblaðið - 29.01.2013, Side 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2013 Það er óhætt að segja að þaðsé þrekvirki að ráðast í þaðað gera kvikmynd upp úrhinum geysivinsæla söng- leik Les Misérables og að gera hana í fullri stærð (og lengd). Leikstjórinn, hinn enski Tom Hooper, gerði árið 2010 „The Kinǵs Speech“ sem óþarft er að kynna fólki. Vesalingarnir eiga margt sameig- inlegt með sögu Georgs VI í kvik- myndagerðarsamhengi enda báðar sögur af baráttu og flóknum sam- skiptum manna í milli og stílbragð leikstjórans er sterkt og vel hægt að sjá að sami maður var við stjórnvöl- inn. Sagan segir af Jean Veljean (Hugh Jackman), dæmdum glæpamanni, sem fyrir náð og miskun biskups eins, Myrel að nafni, fær annað tæki- færi til að verða ærlegur maður. Hann stofnar verksmiðju og verður bæjarstjóri bæjarins síns og lifir áhyggjulausu lífi þar til lög- reglustjórinn Javert (Russell Crowe), hans gamli kvalari úr fanga- búðunum, kemur í bæinn og þykist þekkja fanga númer 24601. Veljean leggur á flótta en í millitíðinni bjarg- ar hann fyrrverandi starfsstúlku sinni, Fantine (Anne Hathaway), úr viðjum vændis til þess eins að sitja yfir henni á dánarbeðnum en þar lof- ar hann að annast dóttur hennar sem hún hafði komið í fóstur hjá kráareig- endunum herra og frú Thénardier (Sacha Baron Cohen og Helena Bon- ham Carter). 9 árum síðar fáum við aftur veður af Veljean þar sem hann er búsettur í París ásamt kjördóttur sinni, Cosette (Amanda Seyfried), dóttur Fantine. Þegar þar er komið sögu erum við stödd í miðri júníbyltingunni sem átti sér stað á götum Parísar árið 1832. Af frammistöðu einstakra leikara er margt að segja. Ber þá fyrst að nefna þann mann sem fyrstur birtist á skjánum, Russell Crowe. Þótt Crowe sé vel til þess fallinn að leika hinn valdmannslega Javert er ekki ofsagt að söngrödd hans er síður en svo til þess fallin að flytja þessa tón- list. Hugh Jackman á það hrós og þær tilnefningar sem hann hefur hlotið vel skilið. Það er engum blöð- um um það að fletta að hann er fjöl- hæfur með eindæmum og tvímæla- laust stórleikari. Því miður hefur hann ekki heldur rödd til að bera þetta stóra sönghlutverk. Vissulega er hann sýnu skárri en Crowe en engu að síður ekki nógu góður til að klára þessi lög vel. Það er kannski ósanngjarn samanburður en und- irrituðum fannst Þór Breiðfjörð margfalt betri í sama hlutverki í upp- færslu Þjóðleikhússins á sama verki. Anne Hathaway og Amanda Seyfried eru báðar mjög góðar og vel sínum hlutverkum vaxnar enda báðar af- bragðs leikkonur og þokkalegustu söngkonur. Þær eru báðar duglegar að mjólka tárin og að mínu viti má vart á milli sjá hvor stendur sig bet- ur. Það er í raun frekar merkilegt að söngleikur sem er að öllu jöfnu mjög fastur í formi og ekki má setja upp án blessunar eigenda höfundarréttar þess efnis að það sé gert rétt skuli fá þá meðferð sem hann fær. Bún- ingahönnuðurinn sem hefur aug- ljóslega haft í nógu að snúast er til- nefndur til óskarsverðlauna ásamt förðunar- og hárhönnuðum og er það vel skiljanlegt. Hitt er flóknara að skilja hvers vegna myndin er tilnefnd fyrir bestu hljóðblöndun. Hljóðið er á köflum frekar einkennilegt og ber þar helst að nefna upphafsatriðið sem gerist úti undir berum himni en hljómar eins og allir séu að syngja inni í trékassa. Einnig er hljóm- sveitin allt of oft í bakgrunni þegar hana mætti nota til að skila dýnamík- inni og kraftinum inn í heildar- hljóðheiminn. Eins er oft mjög frjáls- lega farið með tímasetningar í tónlistinni. Leikarar toga og teygja frasana og oft fylgir hljómsveitin með. Þetta er vel til þess fallið að angra þá sem þekkja tónlistina, þó ekki sé nema að litlu leyti. Þetta skánar þó talsvert í seinni hlutanum þegar kemur að stærri fjöldasöngvum, til að mynda meðal byltingarbræðranna í París en þar kynnumst við líka þeim sem standa upp úr að mínu mati. Persónurnar Marius (Eddie Redmayne) og Epon- ine (Samantha Barks) eru lang- kröftugustu persónurnar og langtum bestu söngvararnir í myndinni. Ást- arþríhyrningurinn á milli þeirra og Cosette er mjög einlægur og maður skynjar vel sársaukann og tregann þeirra á milli. Heilt yfir er Les Misérables samt stórgóð kvikmynd og frábær skemmtun ef maður er tilbúinn að líta á köflum fram hjá því að hún á að vera söngleikur sunginn af söngv- urum, eða svo segir hefðin allavega. Stórbrotin saga í misvel sungnum orðum Togstreita Óhætt er að segja að það mætist stálin stinn þar sem Javert og Jean Valjean eiga í hlut. Smárabíó, Laugarásbíó, Há- skólabíó og Borgarbíó Les Misérables bbbbn Leikstjórn: Tom Hooper, leikarar: Hel- ena Bonham Carter, Russell Crowe, Hugh Jackman, Anne Hathaway, Sacha Baron Cohen, Amanda Seyfried, Eddie Redmayne, Aaron Tveit. Lengd 158 min. HJALTI ST. KRISTJÁNSSON KVIKMYNDIR Kvikmyndin Argo var valin sú besta á verðlaunahátíð Sambands kvikmynda- og sjónvarpsleikara í Bandaríkjunum, Screen Actors Guild (SAG), í fyrrakvöld. Argo hef- ur verið spáð góðu gengi á Óskars- verðlaunahátíðinni sem haldin verður í næsta mánuði og þykir þetta auka enn líkurnar á því að svo verði. Daniel Day-Lewis hreppti verðlaun sem besti leikari í aðal- hlutverki fyrir túlkun sína í Lincoln og Tommy Lee Jones hlaut verð- laun fyrir bestan leik í auka- hlutverki í sömu mynd. Í kvenna- flokki var það Jennifer Lawrence sem hlaut verðlaun fyrir bestan leik í aðalhlutverki, í kvikmyndinni Sil- ver Linings Playbook og Anne Hathaway sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir leik sinn í Les Miserables. Af öðrum verðlaunum má nefna að dramaþættirnir Down- ton Abbey og gamanþættirnir Mod- ern Family hlutu flest verðlaun þegar kom að sjónvarpsþáttum. Sigursæll Ben Affleck, leikstjóri Argo, með SAG-verðlaunagrip. Argo hlýtur enn ein verðlaunin SÉÐ OG HEYRT/VIKAN -EMPIRE - V.J.V., SVARTHÖFÐI.IS RYÐ OG BEIN ÁST SÝND ÁFRAM VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA SÝND ÁFRAM VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ MORGUNBLAÐIÐ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ 2 GOLDEN GLOBE TILNEFNINGAR GOLDEN GLOBE BESTA ERLENDA MYNDIN 3 ÓSKARSTILNEFNINGAR 11 ÓSKARSTILNEFNINGAR - H.S.S., MBL” - Þ. Þ., FRÉTTATÍMINN - S.S., LISTAPÓSTURINN” - G.F.V., VIÐSKIPTABLAÐIÐ -H.V.A., FRÉTTABLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ VESALINGARNIR KL. 4.30 - 8 12 VESALINGARNIR LÚXUS KL. 4.30 - 8 12 DJANGO KL. 4.30 - 8 16 LIFE OF PI 3D KL. 5.15 - 8 10 THE HOBBIT 3D KL. 4.30 - 8 12 HVÍTI KÓALABJÖRNINN KL. 3.30 L VESALINGARNIR KL. 5.50 - 9 12 DJANGO KL. 9 16 LIFE OF PI 3D KL. 6 - 10.20 10 ÁST KL. 5.40 - 8 - 10.10 L RYÐ OG BEIN KL. 5.50 - 8 L VESALINGARNIR KL. 6 - 9 12 DJANGO KL. 9 16 THE HOBBIT 3D KL. 6 12 VESALINGARNIR Sýndkl.6-9:20 DJANGO UNCHAINED Sýndkl.6-9:20 THE HOBBIT 3D Sýndkl.9:20 THE HOBBIT 3D (48 ramma) Sýndkl.6 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar“Ekta hátíðarævintýri fyrir alla famelíuna.” -Séð & Heyrt/Vikan 12 12 12 16 - H.S.S MBL SÝND Í 3DOG Í 3D(48 ramma) 3 óskarstilnefningar -bara lúxus sími 553 2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð TILBOÐSDAGUR TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR –BARA LÚXUS www.laugarasbio.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.