Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.3. 2013
Í kosningum í mörgum ríkjum Bandaríkjannatíðkast að gefa kjósendum kost á að taka af-stöðu til aðskiljanlegra mála. Þannig gátu kjós-
endur í Kaliforníu tekið afstöðu til þess í kosningum
árið 2008 hvort banna ætti hjónabönd samkyn-
hneigðra. Þetta dró nokkurn dilk á eftir sér. Sam-
kvæmt kosningalögum í ríkinu skal greina frá öllum
styrkjum umfram eitt hundrað dollara. Svo var gert
í þessu tilviki. Tóku þá einhverjir sig til og söfnuðu
upplýsingunum á einn stað og birtu opinberlega.
Leið ekki á löngu þar til fyrirtæki sem stutt höfðu
bannið töldu sig finna fyrir rýrnandi viðskiptum auk
þess sem þau urðu fyrir hótunum.
Baráttufólki úr röðum samkynhneigðra leist þá
ekki á blikuna og vildi að eitt hundrað dollara mörk-
in yrðu hækkuð verulega, því þau sáu í hendi sér að
þetta gæti allt eins og jafnvel enn fremur komið í
bakið á þeim. Á þetta var ekki hlustað. Lögin voru
óhagganleg auk þess sem margir urðu til að tala fyr-
ir gagnsæi sem grundvallarkröfu. Það yrði að sýna
heiminn „einsog hann er“, ekkert mætti fela. Og
hvers vegna ættum við ekki að fá upplýsingar um
það hvern málstað fyrirtæki og fjársterkir aðilar
styðja? En eigum við þá rétt á öllum upplýsingum
um alla; hvaða skoðun hver og einn hefur og hvaða
afstöðu einstaklingar taka í hitamálum samtímans?
Álitamál af þessum toga hafa orðið til að örva um-
ræðu um netið. Vitað er að fjölmörg ríki notfæra sér
netið til að safna upplýsingum um einstaklinga og
samtök í pólitískum tilgangi. Í því sambandi hefur
m.a. verið talað um Kína, Íran og Sýrland. Banda-
ríkin hafa einnig verið nefnd. Bandaríska alrík-
islögreglan hefur þannig krafið Google og Facebook
um aðgang að persónuupplýsingum, í krafti laga um
þjóðaröryggi.
Í umræðu um þessi efni vegast á margs konar
sjónarmið, ekki síst um opna, gagnsæja umræðu,
um persónuvernd og friðhelgi einkalífs. Sjálfur hef
ég viljað opna sem mest en jafnframt verið varð-
stöðu-maður persónuverndar. Þetta er flókið mál.
En þótt málið sé flókið mega okkur ekki fallast
hendur.
Inn í þessa alþjóðlegu umræðu hafa Íslendingar
blandast síðustu daga og vikur vegna umræðu um
það hvort hægt sé að sporna gegn dreifingu á of-
beldisklámi, ekki síst til að verja börn gegn ágeng-
um ofbeldisiðnaði.
Í því efni hefur tvennt verið gert. Sem innanrík-
isráðherra hef ég beðið nefnd sérfræðinga að kanna
hvort hægt sé að skerpa á lagalegum skilgrein-
ingum á klámi en samkvæmt íslenskum lögum er
klám ólöglegt. Horft skal til annarra landa, ekki síst
norskrar löggjafar. Síðan hef ég sett niður starfshóp
til að kanna hvort unnt sé með einhverjum hætti að
sporna gegn því að framleiðendur á ofbeldisklámi
hafi óheftan aðgang að samfélaginu, einkum börn-
um okkar og unglingum. Þessa umræðu hafa
ákveðnir einstaklingar borið út um allan heim sem
„frumvarpið“ sem internetunnendur verði að
stöðva!
En stöldrum við. Þegar ágengur ofbeldisiðnaður
tekur völdin þá hljótum við að ræða hvað sé til ráða.
Notkun netsins hlýtur þá að verða til umræðu.
Varla á það að lifa sjálfstæðri tilveru. Ekkert frem-
ur en kvikmyndavél, þótt einhverjir kynnu að halda
því fram að hún sýni „heiminn einsog hann er“.
Aldrei kann það góðri lukku að stýra þegar tæki og
tól taka völdin, eins og um náttúruöfl sé að ræða en
ekki sköpunarverk mannanna. Að ekki sé á það
minnst þegar farið er að tilbiðja þau.
Að tilbiðja kvikmyndavél
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Senn kemur sumar
Facebook og Twitter iða af
sumarspenningi og vorfærslur
voru áberandi í
vikunni sem leið.
Sölvi Tryggva-
son fullyrti á
fimmtudag að það
væri bara korter í
sumarið. „Margra
mánaða D-vítamínsvelti er senn á
enda. Heyri ég amen!“ skrifaði
hann.
Sævar Pét-
ursson, verk-
efnastjóri atvinnu-
mála hjá
Akureyrarbæ og
ekki síst bróðir
Lindu Pétursdóttur, hlakkaði þá til
helgarinnar. Eftirvæntingin var þó
af óvenjulegra tagi en hann fagn-
aði því að lið hans, Liverpool, á
ekki leik þessa helgi. „Sýnist
stefna í góða helgi. Það að Liver-
pool er ekki að keppa eykur lík-
urnar á því að maður brosi í
gegnum alla helgina. Eigið góðar
stundir,“ skrifaði hann en
skemmst er frá því að segja að
liðið hefur ekki átt góða daga að
undanförnu.
Elín Hirst var
ekki alls kostar
ánægð með um-
fjöllun fölmiðla
um fyrirsætuna
Robyn Lawley. Sú
staðreynd að fyr-
irsætan er ekki í hinni dæmigerðu
fyrirsætustærð hefur vakið athygli
en hún notar stærð 16. „Hún er í
stærð 16, það er ekki yfirstærð ef
ég má skamma hinn ágæta frétta-
vef vísi.is. Ég vildi óska að staðan
væri sú að eðlilegur líkami þætti
flottastur, en ekki sá sem tísku-
bransinn gerir yfirleitt út á. Von-
andi er þetta að breytast með
fyrirsætum eins og Robyn Lawley
og fleirum,“ skrifar Elín.
Nanna Rögn-
valdardóttir
matargúrú átti 57
ára afmæli í vik-
unni og tók á
móti afmæl-
iskveðjum í stríðum straumum.
Auk þess að eiga afmæli lét
Nanna lesendur sína vita af því að
dóttursonur hennar hefði byrjað
að æfa frjálsar íþróttir og á aðeins
einni viku væri hann orðinn
Reykjavíkurmeistari í kúluvarpi!
AF NETINU
Hljómsveitin Sigur Rós spilaði á föstudaginn
hjá spjallþáttastjórnandanum Jimmy Fallon.
Þeir félagar tóku lagið Kveikur af samnefndri
plötu sinni sem á að koma út þann 18. júní.
Late Night with Jimmy Fallon er gríðarlega
vinsæll þáttur í Bandaríkjunum og um allan
heim. Rúmlega tvær milljónir horfa á hvern
þátt að meðaltali. Áður var það David Let-
terman sem stjórnaði þættinum og svo var það
Conan ÓBrien áður en Fallon tók við.
Bandið setti myndband af laginu Brenni-
steinn á vefinn og fékk það góðar viðtökur.
Eftirvæntingin er mikil eftir nýrri plötu – hér
heima og erlendis.
Jónsi í miklum ham.
Þeir félagar spiluðu
í hinum vinsæla
þætti Jimmy Fallon.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Sigur Rós
hjá
Fallon
Greint er frá því á breska vefmiðl-
inum rossshirejounal.co.uk að heim-
ildarmynd um flugslys sem varð við
Svartahnúk árið 1941 sé í bígerð.
Sex breskir hermenn létu þar lífið
þegar sprengju- og skotfærafarmur
hervélar þeirra sprakk í loft upp við
áreksturinn og braust út mikið bál.
Karl Smári Hreinsson er sagður
skrifa handrit kvikmyndarinnar en
hann hefur rannsakað þennan at-
burð og skrifað um hann greinar.
Sagt er að Íslendingar viti lítið um
þennan atburð en það voru hins veg-
ar bændur í Kolgrafafirði og Eyr-
arsveit sem urðu vitni að slysinu og
klifu fjallið til að ná í líkin.
Hermennirnir voru í eftirlitsflugi
milli Íslands og Grænlands en vélin
var af tegundinni Wellington og var
tveggja hreyfla. Vélin fórst í afar
vondu veðri.
Heimildarmynd í bígerð
Bændur í Eyrarsveit og Kolgrafasveit urðu vitni að slysinu
við Svartahnúk.
Vettvangur