Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.03.2013, Blaðsíða 15
geti túlkað verkið á sinn hátt. En getur ekki verið að höfundurinn hafi ekki vitað hvernig hann ætti að enda leikritið? Ég segi: Farðu heim og kláraðu leikritið. Það gerist ansi oft að verk sem fæstir áhorfendur skilja fá styrki upp á margar milljónir. Svo sitja fimmtán manns í salnum og remb- ast við að greina það sem er að gerast á sviðinu. Ég er ekki sú eina sem hef tekið eftir þessu. Styrkir eru borgaðir af þjóðinni og því ekki að styrkja líka þá lista- menn sem áhorfendur vilja sjá? Ekki geta allir unnið í Þjóðleik- húsinu eða Borgarleikhúsinu og mér finnst frábært að vinna sjálf- stætt. En þegar kemur að út- hlutun styrkja þá virðist sem fólk sem áratugum saman vinnur sjálf- stætt og sannar sig margítrekað eigi ekki möguleika. Svo er áber- andi hversu þeir listamenn sem vinna við gamanleik eiga erfitt með að fá styrki. Til gamanleikara er gerð sú krafa að þeir standi sig svo vel að fólkið komi alltaf til að horfa á það sem þeir gera. Þeim má ekki mistakast. Ég vildi óska að sjóðurinn myndi stundum styrkja uppáhaldslistamenn fólks- ins, þá yrðu örugglega búin til fleiri íslensk gamanleikrit.“ Hvað um sjálfa þig og styrkja- kerfið? „Ég þarf að treysta á sjálfstæða framleiðendur til að taka upp veskið af því að þeir hafa trú á mér og kosta þess vegna upp- færsluna á verkum mínum. Það kostar 7 milljónir að setja upp Blakkát, það er sjálfstæður fram- leiðandi úti í bæ sem fjármagnar sýninguna. Ég sé ekki fram á að fá menningarstyrki eða styrki frá Leiklistarráði fyrir næstu verkefni, nema einhver stórkostleg breyting verði. Ég hef lært af reynslunni að það gerist ekkert í mínu lífi nema ég geri það sjálf. Ég er mikið til hætt að sækja um styrki. Við Gunni rekum Gaflaraleikhúsið ásamt Ágústu Skúladóttir leik- stjóra og Lárusi Vilhjálmssyni og sóttum um styrk vegna starfsem- innar. Svarið var nei og þegar ég leitaði eftir skýringu var talað um að við yrðum að sanna okkur. Það er enn verið að segja okkur Gunna að við eigum eftir að sanna okkur. Okkur finnst það dálítið ein- kennilegt svar því við höfum svo lengi unnið að list okkar og yf- irleitt gert hlutina sjálf.“ Ertu farin að huga að næsta verkefnum? „Ég frumsýndi nýjan söngleik með Verslunarskóla Íslands í febr- úar sem hefur slegið aðsóknarmet. Við erum á leið í leikferð til Ak- ureyrar 13. apríl og munum sýna í Hofi, þannig að í vetur eru tvær frumsamdar sýningar eftir mig á fjölunum Svo er ég með hugmynd um fjölskyldusýningu sem gerist á veitingastað. En ég ætla ekki að segja meira. Fyrst er að byrja, svo getur maður sagt frá. Björk Jakobsdóttir Ég hef lært af reynslunni að það gerist ekkert í mínu lífi nema ég geri það sjálf. Morgunblaðið/Árni Sæberg *Það geristansi oft aðverk sem fæstir áhorfendur skilja fá styrki upp á margar milljónir. Svo sitja fimm- tán manns í salnum og remb- ast við að greina það sem er að gerast á sviðinu. 24.3. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 islandsbanki.is | Sími 440 4000 Við bjóðum góða þjónustu Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka styrkir verkefni á sviði umhverfismála með sérstakri áherslu á endurnýjanlega orku, sjálfbæran sjávarútveg og verndun hafsvæða. Markmið sjóðsins er að hvetja til nýsköpunar og þróunar á þessum sviðum. Heildarupphæð úthlutunar er allt að fimm milljónum króna. Nánari upplýsingar um sjóðinn og úthlutunarreglur hans má finna á vef Íslandsbanka. Úthlutunardagur er 18. apríl 2013 Sækja skal um á vef bankans til ogmeð 11. apríl 2013: www.islandsbanki.is/frumkvodlasjodur Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka auglýsir eftir umsóknumum styrki Umsóknum skal fylgja, eftir því sem við á: · Greinargóð lýsing á verkefninu · Verk- og tímaáætlun · Ítarleg fjárhagsáætlun · Upplýsingar um aðra fjármögnun verkefnis · Ársreikningur · Upplýsingar um eignarhald og rekstrarform Holtagörðum, s. 553-1800 Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-15 www.facebook.com/fondurlist Föndur Föndraðu fyrir ferminguna Úrvalið er hjá okkur Föndur Fríar vinnustofur* Kertaskreytingar Skreyta Gestabækur Shamballa - Skartgripagerð Skreyta Mynda albúm (skrapp) Skartgripagerð með Premo leir *Þú greiðir aðeins fyrir efni NÝTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.